Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.11.1991, Side 19

Víkurfréttir - 07.11.1991, Side 19
19 • Adam Ingason glaður með 130 stigin sín. Á innfeldu myndinni má sjá þá Hörk Birgisson og Jón Inga sem urðu í 2. og I. sæti á mótinu. 130 hjá Adam! -hæsta skor sem Suðurnesiamaður hefur náð. „Hreinsaði" borðið Adam Ingason. snókerleikari náði hæsta „stuði“ sem gert hefur verið í snókerleik í Keflavík. I lann fékk 130 stig í flokkamóti á Knattborðsstofu Suðumesja í viðureign við Jón Olaf Jónsson. Adarn, sem er aðeins 14 ára, gerði fyrsta stuðið í leiknum, Jón Olafur reyndi síðan við rauða kúlu en mistókst og Adam gerði sér lítið fyrir og lauk leiknum. Engum Suðurnesjamanni hafði áður tekist að komast yfir 100 stig en hæst er hægt að ná 147 stigum. Sjálfur hafði Adam mest náð 90 stigum áður. Þegar Adam hafði á snilldarlegan hátt náð 100 stigunum í leiknum gekk ltann frá borðinu og öskraði af gleði og losaði sig þannig við spennu sem fylgir að ná því tak- niarki. Hann gekk síðan rakleiðis til verks og kláraði dæmið. „Það var unun að fylgjast með stráknum. Þetta var frábært hjá honum. Hann spurði mig einu sinni hvað hann væri kominn langt. Eg sagði honum ekki að hugsa um það heldur einbeita sér að því að leika“ sagði and- stæðingur hans í leiknum, Jón Ó- lafur Jónsson. En þessi frábæra frammistaða Adams dugði honum þó ekki til sigurs í flokkamótinu. Hann tap- aði í undanúrslitum fyrir Berki Birgissyni 3:4. Börkur mætti síð- an Jóni Inga Ægissyni í úrslitum. Sá síðarnefndi sigraði nteð 5 vinningum gegn 3. I úrslitum um 3. sætið sigraði Adam Gunnar Gunnarsson 3:1. í 1. flokki sigraði Adólf Sveinnsson. Hann lagði Geir Sig- urðsson í úrslitum 5:1. Jón Örvar Arason vann Heiðar Reynisson í úrslitum um 3. sætið með þrem vinningum gegn engum. Njarðvíkingar unnu öruggan sigur ú njarðvískuin Þórsuruin sl. föstudag eð 100 stigum gegn 64 í Njarðvík. A myinlinni að ofan inú sjú m.a. nvjan Kana Þórsara. .loe Harge og Njarðvíkingana (íeorg Kirgisson og Gunnar Ör- lygsson ú Þórsbekknum. Af öðrum körfufréttum er það að segja að kvennalið ÍHK vann Stúdínur 67-52. Olga Færselh var stigahæst með 20 stig. Eydís náði EV- lámarki Eydís Konráðsdóttir, sundkona úr Sundfélaginu Suðumes setti bæði telpna- og stúlknamet á ung- lingameistaramóti íslands í sundi um sl. helgi. Eydís synti 200 m baksund á 2:29,69 mín. og bætti eldra met Elínar Sigurðardóttur úr sama félagi. Eydís bætti gamla metið um heilar 8 sekúndur. Sundfólk Suðumesja æfir nú stíft fyrir fleiri verkefni. Hæst ber þar Bik- arkeppnin sem verður 20. nóv. Þar ætlar félagið sér stóra hluti. Sundfélagið Suðumes verður með aðalfund sinn í kvöld. - fréttir Hópleik ÍBK er lokið. EMM ESS vann, fékk 61 leik réttan. I 2.-3.sæti urðu ÖFUGA LÍN- AN og RAUNIR með 58 rétta. í 4.sæti SÚ-ELLEN með 56 og AGA í því fimmta með 55 rétta. Sig- urvegaramir hlutu 20 þús. kr. en liðin í 2. og 3. sæti fengu lOþús. kr. hvort. Til hamingju. GETRAUNALEIKUR SAMVINNUFERÐA OG VÍKURFRÉTTA Kjartan stefnir á úrslitin! Kjartan Másson afgreiddi þriðja andstæðing sinn, Guðna Kjartansson, með 7 réttum gegn 6 og stefnir ótrauður á úrslit get- raunaleiksins. Hann tippar nú í fjórða skipti. Næsti andstæðingur hans er for- maðurknattspymuráðs ÍBK. Jóhannes Ellertsson. Ekki verur uppgefið uppáhaldslið Jóhannesar þar sem það leikur ekki í ensku deildinni. Það mun samkvæmt mjög óáreiðanlegum heimildum okkar vera 4. deildarlið á Kýpuren með því liði Ieikur föðurfrændi systur vinkonu hans, sem býr ú Bíldudal. Ekki meira um það Nú er spumingin hvort Jói stöðvi sigurgöngu Kjart- ans. Þetta er ekki spennandi seðill, allt leikir úr 2. og 3. deild. En frantundan eru spenndi tímar í getraunum með frændum okkar Sví- f, .1 Kjartan Jóhannes Barnsley-Bristol Rovers 1 í Brighton-Middlesbro 1 X Bristol Rovers-Sunderland 12 2 Charlton-Blackbum 1 2 Ipswich-Cambridge 2 1X2 Newcastle-Grimsby X2 1 Port Vale-Millwall 1X2 2 Portsntouth-Oxford 1 i Southend-Swindon 1 1X2 Watford-Leicester 2 12 Wolves-Derby 1X2 2 Huddersfield-Biimingham I IX Handknattleikur 2. deild HKNá toppnum -hefur unnið alla leiki sína HKN trónir nú á toppi 2. deildarinnar í handbolta, með 8 stig eftir fjóra leiki. ÍR-ingar hafa jafnmörg stig, en hafa lak- ara markahlutfall. HKN hefur markahlutfallið 112:66, en ÍR 94:62. HKN lék gegn Völsungi frá Húsavík um helgina og sigraði þáörugglega 29:17. Sigur HKN var næsta öruggur. ef frá er talið smá basl í fyrri hálfleiknum. Staðan í hálfleik var 13:9. Það var fyrst og fremst öfl- ugur varnarleikur sem skóp sigur HKN, en liðið sem heild átti góðan dag. Gísli Jó- hannsson var sent fyrr at- kvæðamestur HKN-manna, skoraði níu mörk, þrátt fyrir að vera utan vallar í samtals sex mínútur vegna brottvikninga. Fyrirliðinn, Ólafur Thordersen, skoraði 6 mörk, Guðbjörn Jó- hannesson 5, Romas Pavalonis 4, Hermann Hermanns 2, og Hannes Leifs, Arinbjöm Þór- halls og Björgvin Björgvins 1 mark hver. Alvaran að hefjast hjá HKN HKN leikur fyrsta alvöru prófleik sinn í handboltanum, í kvöld, þegar liðið mætir KR í Laugardalshöllinni. Leikurinn hefst kl. 20, og nú verða leik- menn að sýna hvað í þeint býr. Þeir þurfa þó enga virðingu að bera fyrir KR-ingum. Allar stjörnur á borð við Einvarð Jó- hannsson eru löngu búnar að yfirgefa liðið, svo það á m.a.s. erfitt uppdráttar í 2. deildinni nú í ár. A sunnudaginn leikur HKN svo heima gegn Aftureldingu úr Mosfellsbæ, en liðið er eitt toppliðanna í 2. deildinni. Má búast við hörkuleik, en hann hefst kl. 20. - Og munið nú á- horfendur- Áfrant HKN!!! Bikarkeppni HSÍ Víkingar voru of sterkir Það blés ekki byrlega fyrir HKN-mönnum í upphafi bikarleiks þeirra gegn Víkingum í síðustu viku. Víkingar bókstaflega keyrðu yfir þú þegar í upphafi, og skoruðu fimm mörk gegn engu marki HKN. Þá loksins röknuðu HKN-menn við sér og byrjuðu að skora og komust í 5:11. Víkingar gáfu liins vegar ekkert eftir og höfðu yfir í hálfleik 10:18. 1 síðari húlfleiknum tóku HKN menn sig til í andlitinu og fóru að berjast í Víkingunum. Gísli fór á kostum og skoraði útta mörk, en það kom fyrir ekki, Vfkingar héldu sínu og stóðu uppi sem sigurvegarar 24:29. Gísli gerði langflest mörk HKN, 10. Romas gerði 4. Óli Thord 3, Magnús 3 en aðrir færri. • Guðbjörn Jóhanncsson, HKN, skoraði 5 mörk gegn Völs- ungi. ljósm.; mad.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.