Víkurfréttir - 28.11.1991, Qupperneq 17
17
Viðhorf
Víkurfréttir
28. nóv. 1991
Þyrlumálin:
Allt tal um aura-
leysi er bara rugl
Enn einu sinni hefur orðið
skelfilegt sjóslys, svo hörmu-
legt að orð eru þar alls ómegnuð
um að tjá.
Það er tvennt í sambandi við
þetta slys sem setur meiri hroll
í fólk en mörg önnur stórslys á
undanfömum árum. Annað er
það að ekki virðast hreinar línur
í því hver hafi í raun með
björgunarþyrlumálin að gera,
þegar slys ber að höndum og í
sjónvarpi vísar hver á annan.
Þyrla eina hjálp-
artækið
Hitt er það að það er vitað að
þegar mest á ríður og tíminn
mælist í mesta lagi í mínútum er
þyrla eina hjálpartækið sem
dugar og má þar nefna tvo
skipstapa héðan frá Sandgerði.
Annan við Svörtuloft og hitt við
Krísuvíkurbjarg. Þar sem fólki
var naumlega bjargað með
snarræði áhafnar íslensku þyrl-
unnar.
En það er með þyrlur eins og
önnur mannanna verk að þær
láta á sjá og eldast og þurfa
aukið viðhald og þess vegna
kemur upp sú staða að þyrlan
var biluð í þessu hörmulega til-
viki við Hópsnes 23. þ.m.
Verulegar umræður urðu á
þingi síðasta vetur um kaup á
nýrri þyrlu og komst það langt
að skipuð var „nefnd'1 í það mál.
Illu heilli var Björn Bjamason
íhaldsþingmaður og fyrrverandi
snúninga drengur á Mogganum
fyrir þeirri nefnd og að sjálf-
sögðu snérust hans áhugamál
bara unt það eitt að skríða inná
Vamarliðið með þyrlumálið -
því miður. Allt taí núverandi
ríkisstjórnar um að ekki sé fjár-
haglega fært að kaupa þyrlu er
svo auðvirðilegt kjaftæði að ég
að minnst kosti skil ekki þá lá-
kúru.
Það er talað um að sæmilega
vel útbúin þyrla í dag kosti um
það einn milljarð.
Þetta auð-
virðilega flakk
í Mogganum 25. sept. sl. er
Guðmundur
Vigfússon
skrifar
sagt að ferða-, risnu- og bíla-
kostnaður sé varlega áætlaður
þetta ár 2760 milljónir eðaverð
þriggja góðra og velbúinna
björgunarþyrla. Þá hefur ný-
lega komið fram að búið er að
henda í álmálið fræga rúmum
1200 milljónum og 1800 millj-
ónum er áætlað að kasta í Þjóð-
leikhúsið þannig að allt tal um
auraleysi er bara rugl.
Það er alveg hægt að minnka
þetta auðvirðilega flakk á for-
setanum og ríkisstjóminni, til
að safna fyrir þyrlu og stóla
ekki of mikið á herdraslið, þó
þeim beri náttúrulega sið-
ferðisleg skilda til að veita alla
hugsanlega hjálp jafn á Kili sem
sjó. Og jafnvel þó hugmynd
Davíðs forsætisráðherra um að
flytja fólkið af ströndinni og
pakka því meira saman en orðið
er mega þær vangaveltur ekki
tefja þyrlukaup.
En aðeins að öðru
Islenskir ráðamenn og fjöl-
miðlar gerðu mikið mál á sínum
tíma að einræði og hörm-
ungunum í Rúmeníu og fögn-
uðu falli þess sem hafði stýrt
landinu. Meðal annars voru
sýndar hér í sjónvarpinu myndir
af vanheilum bömum sem
höfðu verið nánast falið vanda-
mál. En hvernig er með for-
dóma okkar hér.
Hvemig er með Sæ-
brautarmálið og Þverárselið þar
sem niðursetningurinn sem
Davíð setti í sæti sitt, vildi taka
meira tillit til fbúanna í götunni
en þeirra sem höllustum fæti
standa í tilverunni. Það er erfitt
að vera öðruvísi en fjöldinn og
þurfa að leita hjálpar sam-
ferðamanna.
En það er best að opna gleð-
innar dyr með varúð, því mörg-
um hefur orðið fótaskortur í
þeim þrepskjöld.
Guðmundur Vigfússon
...„að sjálfsögðu snérist hans
áhugamál bara um það eitt að skríða
inn á Varnarliðið, með þyrlumálið -
því miður.“
i------------------------------------1
| Eru fjármálin j
] í ólagi? ]
Viðskiptafræðingar og lögfræðingur að-
I stoða fólk og fyrirtæki í greiðsluerfið- |
I leikum. Upplýsingar í síma 91-685750. |
I I
i Fyrirgreiftslan___________________ i
I -fyrstir til aðstoðar •
I I
I_________________________________________I
STYTTIST í JÓLIN
-þarftu að auglýsa
Símarnir eru 14717 & 15717
Fax 12777
nhlgcizi
Pantið jóla-
hársnyrtinguna
tímanlega.
Tímapantanir í síma
14848
HÁRGREIÐSLUSTOFAN
Æleqcná
Vatnsnestorgi Sími 14848
Vinnuslys í Sandgerði:
Fékk flís í
augað
Vinnuslys varð í fyrirtækinu
Miðnes hf. í Sandgerði á dög-
unum. Átti slysið sér stað kl. 9
um morguninn.
Starfsmaður á lyftara liugð-
ist lyfta félaga sínum upp í
fiskikari. Keyrði hann því
lyftarann að karinu. Menn
gættu hins vegar ekki að kústi
sem varð á milli karsins og
lyftarans. Klemmdist kúst-
urinn á milli og brotnaði, með
þeirn afleiðingum að flís úr
honurn skaust í annað auga
þess sem í karinu var.
Var maðurinn fluttur til
læknis og gekkst undir augn-
aðgerð. Ekki fengust upp-
lýsingar um hversu alvarlegir
áverkamir voru.
Garðskagi:
Nes í Gullbringusýslu, nyrsti
oddi Rosmhvalaness; flatlendur
og sendinn. A Garðskaga er
þéttbýliskjarni í Garði. Viti frá
1944 er á Garðskagatá og gamli
vitinn frá 1897 stendur enn.
Fyrir sunnanr Garðaskaga ligg-
ur ævafom grjótgarður, Skaga-
garður, þvert yfir Rosmhvala-
nes og varði þar akurlönd fyrr
á öldurn.
Keflavíkurkirkja
auglýsir
símanúmer
Hjá sóknarpresti séra Lárusi
Halldórssyni, nýtt simanúmer
15780.
Símanúmer starfsfólks:
Kirkjuvörður og umsjónarmaöur
safnaðarheimilis, Helga
Bjarnadóttir, sími 12958.
Organisti og söngstjóri, Einar
Örn Einarsson, sími 14563.
Safnaöarfulltrúi, Ragnar Snær
Karlsson, sími 13985.
Geymið auglýsinguna.