Víkurfréttir - 24.04.1992, Side 8
8
m a M ^ grín - gagnrýni m "vangaveltur ■ ^^^J^umsjón: emil páll*
Keflvíkingar komu
víða fram...
Keflvísk andlit komu víða
fram í sjónvarpsmyndum um
hátíðarnar. Sá yngsti sem sást
þar var Guðjón Kjartansson (M.
Kjartanssonar, tónlistarskóla-
stjóra) er hann sat afmælis-
veislu í myndinni „Allt gott“
eftir Davíð Oddsson. Þá sást
Viktori Kjartanssyni, bróður
Kjartans, bregða fyrir sem far-
þega á Umferðarmiðstöðinni í
Reykjavík í einni myndinni. I
annarri voru það brottfluttir
Keflvíkingar: Ami Bergmann
ásamt okkar landskunnu leik-
urum Gísla Alfreðssyni og
Helga Skúlasyni.
...ásamt Kristjáni
I mynd þeirri sem Arni, Gísli
og Helgi komu fram, „Kristni-
hald undir Jökli'1 lék einnig
bæjarstjórinn í Njarðvík, Krist-
ján Pálsson. Var hann í gervi
Jóns Sigurðarsonar, dóms-
málaráðherra.
Gylfi að hœtta
Staða verslunarstjóra við
stærsta stórmarkaðinn á Suð-
umesjum, Samkaup hefur verið
auglýst laus til umsóknar. Ger-
ist það í kjölfar uppsagnar Gylfa
Kristinssonar, sem lætur af
störfum l.júlínk.
Þörf Ijósa
Þrátt fyrir breið og góð
gatnamót Aðalgötu og Hring-
brautar í Keflavík, er tíðni á-
rekstra nokkur há þar. Verða á-
rekstramir yfirleitt mjög harðir
og orsakast með þeim hætti að
bifreiðum er ekið á miklum
hraða niður Aðalgötuna og yfir
Hringbrautina, þrátt fyrir að
Hringbrautin sé aðalbraut.
Virðist ekkert geta komið í veg
fyrir óhöpp sem þessi, nema
umferðarljós. A.m.k. ættu um-
ferðaryfirvöld að skoða málið
alvarlega áður en stórum slys-
um fjölgar þar.
Fimm tíma leit...
Þeir voru margir orðnir ó-
þreyjufullir á bryggjunni í
Sandgerði á skírdag eftir að
komast í tæri við skipverjana á
Olafi Jónssyni, sem lagstur var
að bryggjunni. Astæðan var sú
að logarinn var að koma úr
siglingu, en leit tollvarða að
smygli stóð yfir vel á fimmta
tíma.
...er þetta oröinn
fastur liöur um
páska
Annars hafa gárungamir haft
á orðið að það sé einkennilegt
með þetta skip, að smygltilraun
á léttvíni um páska, er alls ekki
einsdæmi þar um borð.
Garöar gaf sjálfum
sér ekki atkvœði
Vilhjálmur Ketilsson, bæjar-
fulltrúi minnihlutans í Keflavík,
gerði tilraun til að kljúfa meiri-
hlutann í nefndarkjöri á fundi
bæjarstjórnar Keflavíkur, síð-
asta þriðjudag. Verið var að
kjósa varamann í stjóm Bruna-
varna Suðumesja en Jónína
Guðmundsdóttir bæjarfulltrúi
hafði sagt af sér starfinu. Stakk
Ellert Eíríksson þá upp á Friðrik
Georgssyni, í stöðuna. Taldi
Vilhjálmur að bæjarfulltrúi
þyrfti að gegna stöðunni svo
sambandið við bæjarstjórn væri
betra og stakk því upp á Garðari
Oddgeirssyni úr meirihluta. Var
því komin upp nokkuð skondin
staða og eftir að Drífa hafði
horft á Jónínu og Ellert á vígsl
fór fram atkvæðagreiðsla sem
féll þannig að Friðrik var kjör-
inn með 5 atkvæðum, en Garðar
fékk aðeins 4. Virðist því nokk-
uð ljóst að Garðar fékk ekki
einu sinni sitt eigið atkvæði.
RϚur fram-
kvœmdastjórinn
ekki viö for-
manninn?
Nokkrar deilur hafa verið
meðal starfsmanna Sér-
leyfisbifreiða Keflavíkur í kjöl-
far þess að formaður Starfs-
mannafélagsins gaf útskýringar
á tímaútskrift, sem ekki var í
anda þess sem forráðamenn
fyrirtækisins hafa talið. Var
málið rætt á fundi bæjarstjómar
Keflavíkur síðasta þriðjudag og
þar upplýst að 11 af 14 starfs-
mönnum fyrirtækisins hafi ekki
farið eftir úrskýringum for-
mannsins, en hinir þrír sem það
gerðu fengu hærri laun fyrir en
þeim bar. Vegna þessa hafa
verið ntikil fundahöld, en bæj-
arfulltrúar voru flestir sammála
um að hér væri mál sem fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins ætti
að leysa án afskipta ut-
anaðkomandi aðila.
Hvaö á sam-
anburöurinn aö
heita?
„Oddur Einarsson var mættur
á fundinn til að skíra sam-
anburð." Þessa tilvitnun má
finna í fundargerð stjómar Sér-
leyfisbifreiða Keflavíkur frá 14.
apríl. Er málið kom til umræðu
á fundi bæjarstjómar Kefla-
víkur spurði Vilhjálmur Ket-
ilsson af því hvað sam-
anburðurinn héti? En Oddur er
eins og flestir vita prestlærður
maður og því hlýtur hann að
hafa verið að framkvæma
skímarathöfn á fundinum.
Höfðu bæjarfulltrúar hina
mestu skemmtan af málinu og
töldu vart að um frumburð hefði
verið að ræða.
Hreinsunarátak...
Einn af þeim málaflokkum
sem Víkurfréttir hafa haft á
stefnuskrá sinni allt frá því
blaðið hóf göngu sína, eru
hreinsunarmál á Suðurnesjunt.
Hafa þau mál oftast verið unnin
í samráði við heilbrigðiseftirlit,
eða þær nefndir sem fjalla um
viðkomandi málaflokk í sveit-
arfélögunum. Vegna þessa hef-
ur blaðið fengið hvað eftir ann-
að hrós frá heimamönnum og þá
aðallega opinberum aðilum.
Eins hafa aðilar utan af landi
lýst yfir því við blaðið hvort
ekki væri hægt að virkja blöð í
hinum ýmsu landshlutum til að
taka Víkurfréttir til fyrirmyndar
í þessum efnum.
... en hvaö er Jón-
ína aö hugsa?
Nú gerist það hins vegar að
Suðurnesjafréttir skrifa einni af
nefndum Keflavíkurbæjar sem
fjallar um þennan málaflokk og
býður samstarf um hreins-
unarátak sem þetta. Er það mál
kom inn á fund bæjarstjómar
Keflavíkur síðasta þriðjudag, sá
Jónína Guðmundsdóttir, bæj-
arfulltrúi, ástæðu til að hafa orð
á hvað þetta væri gott framtak
Suðumesjafrétta og væri gaman
ef hitt blaðið (þ.e. Víkurfréttir)
tæki einnig þátt í slíku. Því
spyrja MOLAR nú hvað Jónína
hafi verið að hugsa, er hún sagði
þetta? Getur það verið að hún
hafi ekki lesið blaðið und-
anfarin ár og því misst af
hreinsunaráróðri þess?
Fá Keflvíkingar ekki
ruslagáma?
Nokkuð var rætt um það
vandamál á Suðumesjum sem
Vikurfréttir
24. apríl 1992
annars staðar, hvað fólk virðist
eiga erfitt með að fara eftir
leiðbeiningum er það hendir frá
sér rusli í ruslagáma. Var upp-
lýst á fundi bæjarstjórnar
Keflavíkur síðasta þriðjudag að
þetta vandamál væri einnig fyr-
ir hendi t.d. í höfuðborginni og
því gæti farið svo að þar yrði
gripið til þess ráðs að loka
gámastöðum eins og raunar er
reyndin í Keflavík og vísa fólki
með ruslið til Sorp-
eyðingarstöðvarinnar. Því er
það spuming hvort trassamir
komi í veg fyrir að við hin get-
um fengið þessa sjálfsögðu
þjónustu?
EINA
REGLULEGA
VIKUBLAÐIÐ
Á SUÐURNESJUM
\4kurfréttir
VORFAGNAÐUR
í Festi í Grindavík, laugardaginn
25. apríl, kl. 15:00
Mætum vel
Nefndin
Black & Decker
rafmagns-hekkklippur
( 10.865,- stærri gerð )
Járn & Skip v/ Víkurbraut - Sími 15405