Víkurfréttir - 24.04.1992, Blaðsíða 9
9
\íkurfréttir
24. apríl 1992
Landhelgisbrot
á trillu
• Mikið eignatjón varð í hörðum árekstri á gatnamótum
Hringbrautar og Aðalgötu í Keflavík á páskadag. Ökumaður
bifreiðarinnar sem ók Hringbrautina var fluttur á sjúkrahús,
en slys voru þó ekki alvarleg. Ljósm.: epj.
Nokkuð um smúslys
um hútíðarnar
Varðskip stóð sjö tonna trillu,
Jenný KE 32, að meintum ó-
löglegum veiðum út af Reykja-
nesi í dymbilvikunni. Vartrillan
færð til hafnar í Sandgerði þar
sem aflinn var gerður upptækur,
en hann reyndist vera um 610
kíló.
Við yfirheyrslu hjá rann-
sóknarlögreglunni viðurkenndi
skipstjóri bátsins að hafa verið
Það var annríki hjá lög-
reglumönnum í Grindavík um
bænadagana. Margir tóku
páskafríið of hátíðlega og helltu
óhóflega í sig áfengum drykkj-
á veiðum á viðkomandi stað, en
sagðist ekki hafa vitað um að
veiðisvæðinu væri lokað. Frá
11. apríl til 21. apríl eru allar
veiðar aðrar en skel- og grá-
sleppuveiðar bannaðar frá
Stokksnesvita að Bjargtöngum
og í sérstöku hólfi suður af
Reykjanesi.
Hefur málið nú verið sent til
dóms.
um. Þurftu lögrelumenn að
sinna 32 útköllum vegna ölv-
unar og var einn tekinn ölvaður
við akstur.
Nokkuð var um sntávægileg
slys á Suðurnesjum um dymbil-
dagana og páskana. Annars
staðar í blaðinu er greint frá
tveimur bílveltum þar sem öku-
menn slösuðust lítilsháttar. Þá
slasaðist ökumaður lítilsháttar í
hörðum árekstri á gatnamótum
Aðalgötu og Hringbrautar í
Keflavík á páskadag. Þar varð
eignatjón mikið, en tildrög
slyssins voru þau að bifreið
kom niður Aðalgötu og virti
ökumaður hennar ekki aðal-
brautarréttinn á Hringbrautinni.
Að kvöldi laugardagsins fyrir
páska datt hestamaður af fáki
sínum og var hann fluttur undir
læknishendur, ekki var um al-
varlegt slys að ræða, þó mun
hann hafa meiðst nokkuð í and-
liti. Þá datt maður innan húss á
páskanótt og brotnaði illa á
fæti.
Trilla
rekin
í land
Landhelgisgæslan kom að
trillubátnum Kópi KE 8 að
veiðum úti af Kirkjuvogi, laug-
ardaginn fyrir pálmasunnudag.
Þar sem skipstjóri bátsins var
ekki með veiðileyfi sitt um borð
var bátnum vísað til hafnar.
Er málið nú í rannsókn hjá
Rannsóknarlögreglunni í Kefla-
vík.
Fannst
klesstur
við vegg
Bifreið var stolið frá Vík-
urbraut í Keflavík að kveldi
annars dags páska. Hafði eig-
andinn brugðið sér frá bílnurn
og skilið hann eftir í gangi. Var
lögreglan kölluð til og klukku-
stund síðar fannst ökutækið.
Hafði því verið ekið á húsvegg
við Básveg í Keflavík.
• Trillubáturinn Jenný KE 32 í höfn í Sandgerði um páskana.
Ljósm.: hbb.
Annríki vegna ölvunar
ERTU MEÐ HEILT HÚSFÉLAG Á HERÐUNUM?
Meö hjálp Húsfélagaþjónustu sparisjóöanna
geta gjaldkerar húsfélaga rétt úr bakinu og
horft fram á bjartari tíma. Eina talan sem þeir
þurfa nú aö leggja á minnið er símanúmeriö í
næsta sparisjóði.
Húsfélagaþjónusta sparisjóöanna býöur eftir-
farandi:
INNHEIMTUÞJÓNUSTA
Sparisjóðurinn sendir gíróseöil til þeirra sem eiga aö greiða
húsfélagsgjöld.
GREIÐSLUÞJÓNUSTA
Sparisjóöurinn sér um aö greiða reikninga fyrir húsfélagiö.
BÓKHALDSÞJÓNUSTA
Þær færslur sem myndast f Innheimtu- og Greiösluþjónustunni
eru grunnur að bókhaldi húsfélagsins. Um hver mánaöamót
fær gjaldkeri húsfélagsins sent yfirlít um allar færslur.
YFIRLIT YFIR ÓGREIDD GJÖLD
Sparisjóöurinn sendir gjaldkera húsfélagsins yfirlit um ógreidda
gíróseöla.
ÁRSUPPGJÖR
Um hver áramót sendir sparisjóöurinn gjaldkera húsfélagsins
rekstraryfirlit fyrra árs þar sem tekjurnar og gjöldin eru flokkuö
niöur.
VANSKILASKULDIR
Sparisjóöurinn sendir ítrekanir til þeirra sem ekki standa í
skilum. Ef þaö ber ekki árangur kemur sparisjóöurinn, f sam-
ráði viö húsfélagið, skuldinni til innheimtu hjá lögfræðingi.
BÓKHALDSMAPPA
Gjaldkeri húsfélagsins fær veglega möppu undir öll
bókhaldsgögn.
HÚSFÉIAGAÞJÓNUSTA
SPARISJÓÐANNA (5^
ít SPARISJÓDURIHH
í KEFLAVÍK