Víkurfréttir - 24.04.1992, Side 10
10
Nýtt gamanleikrit ó fjalirnar í Garðinum:
• Ólafur Sigurðsson og Bragi Einarsson við smíði barborðsins.
Ljósm.:hbb
FRUMSYNING
EFTIR NOKKRA
DAGA
Undanfarnar vikur hafa staðið yfir æfingar á nýju
gamanleikriti eftir Ómar Jóhannsson í hjá Litia leik-
félaginu í Garði. Er stefnt að frumsýningu um mán-
aðarmótin.
í þessu leikriti Ómars er mannlífið í týpísku ís-
lensku sjávarþorpi skoðað ofan í kjölinn og á-
horfendur fá að fylgjast með raunurn fólksins og öll-
um spaugilegustu hliðum mannlífsins. I gaman-
leiknum eru margir skemmtilegir söngvar og mikill
glens og gaman.
Um páskana hafa staðið yfir strangar æfingar og
unnið hefur verið við sviðsmyndina, sem er einföld en
skemmtileg. Meðfylgjandi mynd var tekin þegar tveir
leikfélagsmenn unnu við smíðar á barborði sem
verður á veitingahúsinu Bitanum, sem kemur fyrir í
leikritinu.
FLEIRILEO-KLUBBA
Á SUOURNESJUM
-segir Árni Árnason hjá LEO-klúbbnum Sigga í Garöi
klúbba á Suðumesjum og
hafa þau nú augastað á
Keflavík.
„Við höldum fundi tvisvar
í mánuði yfir vetrarmán-
uðina. Innan klúbbsins eru
starfræktar nefndir sem allar
hafa markmið. Líknar-
nefndin hjá Leoklúbbnum
Sigga hefur m.a. gefið lestr-
artæki til sérkennslu við
Gerðaskóla og fært gamla
fólkinu á Garðvangi blóm.
Fjáröflunarnefndin hefur
staðið fyrir sölu á eldhús-
rúllum og salernispappír og
selt marki Gerðahrepps á
nýju bílnúmerin.
Einnig er sérstök
skenrmtinefnd, sem hefur
séð um að skipuleggja á ferð
í keilu og í Bláfjöll. Þá er á
döfinni að halda skemmtun
á Vímuvarnardaginn, 2. maí
nk.,“ sagði Ami.
-Hvað fær unglinga til að
starfa í LEO-klúbbi?
„Þetta er mjög skemmti-
legt fyrir þá sem hafa áhuga
á félagsmálum. Starfið í
Leoklúbbnum Sigga er mjög
gefandi og því fyrgir mikil
ábyrgð að vera treyst fyrir
einhverju.
Starfsemi LEO-klúbbs
hefur gefist vel í Garðinum
og það er von mín að þessum
klúbbum eigi eftir að fjölga
enn frekar á Suðurnesjum,"
sagði Arni Arnason, for-
maður Leoklúbbsins Sigga í
Garði að endingu.
JGarðinunr hefur um
þriggja ára skeið verið
starfræktur svokallaður
LEO-klúbbur. Til að
kynnast nánar því starfi
sem fer þar fram, tókum við
tali formann klúbbsins, Arna
Árnason.
Félagsmál eru líf og yndi
Áma og hann hefur í mörgu
að snúast þessa dagana. Auk
þess að stýra LEO-klúbb
hefur hann starfað af krafti
með Litla leikfélaginu í
Garði sem á næstu dögum
mun frumsýna nýjan gam-
anleik eftir Ómar Jóhanns-
son. - En hvað er LEO-
klúbbur. Ámi kann svar við
því.
„LEO-klúbbar starfa á
svipaðan hátt og Lions-
I.lúbbar. LEO-klúbbar eru
fyrir unglinga og þeir geta
fengið inngöngu þegar þeir
hafa náð 14 ára aldri,“ sagði
Ámi.
I Garðinunr hefur LEO-
klúbburinn Siggi verið starf-
andi þrjú undandarin ár og
eru félagsmenn nú tuttugu og
fjórir. Það var fyrir tilstuðlan
Lionsklúbbsins Garðs að
LEO-klúbburinn var stofn-
aður og er hann jafnframt
fyrsti LEO-klúbburinn á ís-
landi.
I janúar á þessu ári var
stofnaður klúbbur í Reykja-
vík fyrir tilstuðlan unglinga
úr Garðinum og núna hafa
unglingamir í klúbbnum í
Garði áhuga á að stofna fleiri
• Árni Árnason. Hann er
formaður Leoklúbbsins Sigga
í Garði. Hann vill sjá fleiri
Leoklúbba verða til á Suð-
urnesjum. Ljósm.:hbb
Vikurfréttir
24. apríl 1992
TONLIST I BLOÐINU
_________ii
Vikurfréttir
24. apríl 1992
• KOLRASSA KRÓKRÍÐANDI. F.v. Ester Ásgeirsdóttir, bassaleikari, Elísa M. Geirsdóttir, söngkona og fiðluleikari, Sigrún Eiríksdóttir,
gítarleikari og Birgitta M. Vilbergsdóttir, trommulcikari.
Sími15222
Grindavíkurdeild
Rauða Kross
íslands
„Það hefur verið ríkjandi
andleysi í bænum svo við á-
kváðum að gera eitthvað í
málunum. Það var aðeins um
eitt að ræða, - slá í gegn.
Þetta yrði örugglega
skemmtilegur bransi. An
þess að kunna nokkuð að
spila voru fengin lánuð
hljóðfæri og þremur dögum
síðar spiluðum við á tón-
leikum í Félagsbíói og það
frumsamið efni“.
Þetta höfðu Kolrössurnar
krókríðandi að segja blaða-
manni þegar hann hitti þær
að máli á dögunum. Það var
ekki hlaupið að því að grípa
í 'rassinn’ á þeim, enda
orðnar landsfrægar eftir
frækinn sigur í Mús-
íktilraunum Tónabæjar.
Blaðamaður hafði á orði að
auðveldara væri að kalla
Bítlana saman, þó svo einn
sé kominn undir græna... þið
vitið. Þær hlógu og buðu
okkar manni súkkulaði, sem
hann AFÞAKKAÐI.
Kolrössu krókríðandi
skipa þær Elísa M. Geirs-
dóttir, Sigrún Eiríksdóttir,
Birgitta M. Vilbergsdóttir og
Ester Ásgeirsdóttir. Að-
spurðar sögðu þær tónlistina
vera í blóðinu og þær spil-
uðu það sem þeint þætti
garnan og fyndist gott.
ENGIN BALL-
GRÚPPA
„Við erum engin ball-
hljómsveit.... og þó, fólk
gæti örugglega dansað eftir
okkar tónlist ef það væri
orðið nógu drukkið,“ sögðu
þær og skelltu uppúr, en
bættu við: „Við höfum að-
allega verið að spila á tón-
leikum í Reykjavík og allir
okkar textar eru íslenskir“.
Kolrassa krókríðandi hef-
ur sannarlega í mörgu að
snúast þessa dagana. Á
föstudags- og laugardags-
kvöld munu þær spila með
Vinum Dóra á Púlsinunt og
á sunnudag koma þær fram
í útvarpsþættinum Perlu-
vinum Bylgjunnar. Þá má
geta þess að þær komu fram
í þættinum hjá Flemma
Gunn í fyrrakvöld.
ALGERLUKKA
-Hvernig kom það til að
þið spiluðuð í Mús-
íktilraunum?
„Það er nú algjör lukka að
við komumst þar inn. Við
innrituðum okkur alltof seint
og spiluðum á 2. und-
anúrslitakvöldinu af þremur.
Þar fengunt við góðan
stuðning áheyranda og með
þeirra stuðningi komst
sveitin í úrslit. Það kom
okkur á óvart, því þátttakan
í Músíktilraunum átti bara
að vera smá auglýsing fyrir
sveitina til að fá mynd af
henni í blöðin“.
Auk alls sem áður er talið
eru þær Kolrössur krókríð-
andi að semja fleiri lög því
hljómplata MUN koma út í
haust. Þær spila mest frum-
samið efni, en einnig leika
þær lög eftir aðra höfunda,
sem lítið hafa verið leikin.
„Svo fólk heldur að þessi
lög séu samin af okkur,“
sögðu þær og glottu.
LENGI AÐ
PLANA SVEIT-
INA
Kolrassa krókríðandi er
fyrsta kvennahljómsveitin á
Suðurnesjum sem nær ein-
hverjum vinsældum og
raunar fyrsta kvennasveitin
á Islandi sem kemur fram
eftir að Dúkkulísumar gerðu
allt vitlaust fyrir níu árunt
síðan.
„Við vorum búnar að vera
að plana þessa hljómsveit
lengi, en það var ekki fyrr en
í nóvember í fyrra sem
ákvörðun var tekin um að
láta til skarar skríða. Við
Aðalfundur
deildarinnar verður haldinn í grunnskólanum
mánudaginn 27. apríl kl. 20.30.
Félagar eru hvattir til að mæta.
Stjórnin
UNGFRU
FJORHEIMAR 1992
Hin árlega fegurðarsamkeppni félagsmiðstöðvarinnar Fjörheima
í Njarðvík fer fram í Stapa laugardagskvöldið 25. apríl kl. 20.30.
Aldur: 7.-10. bekkur.
Danssýning.
Diskótek til kl. 02.00.
Miðaverð 500 krónur.
Rúta í innra hverfíð að lokinni skemmtun.
höfum fengið góðar mót-
ttökur í Reykjavík og það er
upp á fólkið komið hvort við
náum auknum vinsældum.
Við ætlum okkur að endast í
þessu og stefnan er sett enn
hærra,“ sögðu Kolrössurnar
að endingu.
Spurt og myndað:
Hilmar Bragi