Morgunblaðið - 22.12.2015, Side 17

Morgunblaðið - 22.12.2015, Side 17
FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2015 Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri færðu stofnuninni í gær að gjöf 10 nýtísku sjúkrarúm á legudeild geðdeildar, tölvu á göngudeildina og nokkra hæg- indastóla sem komið verður fyrir hér og þar á spítalanum. Jóhannes Gunnar Bjarnason, for- maður samtakanna, sagði við þetta tækifæri að síðan samtökin voru stofnuð, fyrir tveimur árum, hefðu þau safnað á sjöunda tug milljóna fyrir sjúkrahúsið. Því yrði haldið áfram og samtökin myndu einnig berjast fyrir því að nýbygging við sjúkrahúsið yrði að veruleika. Frá vinstri: Bernard Gerritsma, forstöðuhjúkrunarfræðingur á geð- deild, Sigmundur Sigfússon, for- stöðulæknir geðdeildar, Alice Harpa Björgvinsdóttir, fram- kvæmdastjóri lyflækningasviðs, Bjarni Jónasson forstjóri, Jóhannes Gunnar Bjarnason formaður Holl- vinasamtaka Sjúkrahússins, Stefán Gunnlaugsson, stofnandi samtak- anna og Hermann Haraldsson, stjórnarmaður í samtökunum. Hollvinir hafa safnað á sjöunda tug milljóna Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Skautasvellið á Ingólfstorgi hefur slegið í gegn í jólamánuðinum. Þús- undir borgarbúa hafa skautað og tugir þúsunda hafa komið og barið það augum og notið veitinga í jóla- þorpinu á torginu, segir í frétt frá Nova. Vegna mikillar aðsóknar hef- ur verið ákveðið að hafa svellið op- ið á milli jóla og nýárs eða til og með 3. janúar. Svellið er 400 fer- metrar og var opnað í tilefni af 8 ára afmæli Nova. Samsung og Reykjavíkurborg eru samstarfs- aðilar Nova í þessu verkefni. Frítt er inn á svellið fyrir þá sem eiga skauta, en einnig er boðið uppá að leigja skauta og hjálm á 990 kr, ásamt barnagrindum. Heitt kakó, jólaglögg, samlokur og ristaðar möndlur ásamt útivist- arfatnaði eru til sölu í jólaþorpinu. Ingólfssvell verður opið til 3. janúar Morgunblaðið/Eggert Hleðsluborvél Átak 50Nm, 13mm patróna 2x2,5 Ah rafhlöður fylgja. RB 5133002214 1.990 Tilboð Vinnuljós ELP 55 IP54 Vandað vinnuljós með 55W peru til notkunar utandyra sem innan BR 1172720 13.990 Verð Kr. Topplyklasett USG USG GWB2045M 1/4" Inniheldur 45stk Kr. 4.990 USG GWB3029M 3/8" Inniheldur 29stk Kr. 7.990 USG GWB5094M 1/2"+1/4" Inniheldur 94stk Kr. 15.990 15.900 Verð kr. Skrúfvél fjölnota Borvél með skiptanlegri patrónu. Einnig fáanlegir: vinkil- og innréttipatróna. Átak: 32Nm. 2x2,0Ah rafhlöður MW 4933447136 Verkfærasett 4 stykki Borvél 50Nm, hjólsög, sverðsög og ljós. RB 5133001935 59.900 Tilboð M18CHIWP12-402C Kolalaus herslulykill 2 átaksstillingar: 474/813Nm 2 x 4,0 Ah rafhlöður MW 4933446253 89.900 Tilboð 9.990 Tilboð Loftpressa 24L Loftflæði 205 L/min, þrýstingur 8 bar TJ TRA024L TJ TRAE050VFL 50L, 412L/min Kr 49.900.- 24.900 Verð kr. Höfuðljós LED Vandað höfuðljós frá Ansmann í Þýskalandi. Styrkur ljóss er 40Lm AN 5819083 34.900 Tilboð 28.900 Tilboð 94.900 Verð kr. 119.900 Verð kr. Síðumúla 11・568 6899・www.vfs.is Verkfæraskápur 188 verkfæri 7 skúffur – 1/4", 3/8“ & 1/2" topplyklasett Splittatangir, skrúfjárn, fastirlyklar, tangir, skralllyklar, meitlar, sexkantar, rennimál, þjalir. USG FIRP7B Verkfæraskápur 172 verkfæri 7 skúffur með frauðbökkum. 1/4", 3/8“ & 1/2" topplyklasett. Splittatangir, skrúfjárn, fastirlyklar, tangir, skralllyklar, skiptilykill, meitlar, sexkantar, rennimál, þjalir. USG FIRP7B-FOAM Borvél Mótor 500W, patróna 13mm RB 5133001832 Hörðu pakkarnir fást í Verkfærasölunni Skaðabótamál slitastjórnar Glitnis gegn Lárusi Welding og átta öðrum stjórnarmönnum Glitnis hefur verið fellt niður, en slitastjórnin taldi að ákvörðun stjórnarinnar að veita Baugi 15 milljarða lán hefði verið ábótavant og valdið 6,5 milljarða tjóni. Baugur nýtti lánið til að taka þátt í hlutafjárútboði FL Group, en Baugur var þá stærsti eigandi fé- lagsins. Samkvæmt upplýsingum frá lög- mönnum bæði stefnanda og stefnda var gerð sátt sem felur í sér að allir málsaðilar muni greiða sinn máls- kostnað en að málið verði að öðru leyti fellt niður. Einn hinna stefndu sætti sig þó ekki við þá niðurstöðu og mun samkvæmt heimildum mbl.is láta á það reyna hver greiði máls- kostnaðinn. Samkvæmt upplýsingum lög- manna Glitnis var ákveðið að láta málið falla niður eftir ákvörðun emb- ættis sérstaks saksóknara um að falla frá ákæru í sama máli. Hafði slitastjórnin sent málið áfram til embættisins. Lánið sem um ræðir var veitt um áramótin 2007-2008 og var 15 milljarða víkjandi lán. Slitastjórn Glitnis höfðaði málið gegn Lárusi Welding, fyrrverandi forstjóra Glitnis, Jóni Ásgeiri Jó- hannessyni, fyrrverandi forstjóra Baugs, og fyrrverandi stjórn Glitnis, en í henni sátu Þorsteinn M. Jóns- son, Jón Sigurðsson, Skarphéðinn Berg Steinarsson, Pétur Guðmund- arson, Björn Ingi Sveinsson, Hauk- ur Guðjónsson og Katrín Péturs- dóttir. thorsteinn@mbl.is Fallið frá máli gegn Lárusi og stjórn Glitnis

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.