Morgunblaðið - 22.12.2015, Blaðsíða 30
30 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2015
✝ Hallfríður Ey-björg Rútsdótt-
ir fæddist á Sauð-
árkróki 8. nóvem-
ber 1927. Hún lést
á Heilbrigðisstofn-
uninni á Sauðár-
króki 30. nóvember
2015.
Hún var dóttir
Sigrúnar Sveinsínu
Sigurðardóttur, f.
1892, d. 1972, og
Rúts Þorsteinssonar, f. 1905, d.
1994.
Halla átti þrjú hálfsystkin.
Sammæðra var Aðalsteinn Stef-
ánsson, f. 1913, d. 1987. Sam-
feðra voru Gunnþórunn, f.
1940, d. 1989, og Þorsteinn, f.
1950.
17. maí árið 1953 giftist
Halla Guðbrandi Jóni Frí-
mannssyni frá Austara-Hóli í
Flókadal, f. 1922, d. 2000. Halla
Katrín, f. 1985, gift Hjörleifi
Björnssyni, f. 1981. 4) Guð-
brandur Jón, f. 1964, hans börn
eru a) Aníta, f. 1985, gift Snæ-
þóri Arnþórssyni, f. 1984. Sonur
þeirra er Hólmar Elí, f. 2011, b)
Andrea, f. 1990, í sambúð með
Benedikt Andrési Árnasyni, f.
1990. Synir þeirra eru Ágúst
Ingi, f. 2010, og Daníel Smári, f.
2012, c) Eysteinn Ívar, f. 2001,
og d) Emelíana Lillý, f. 2005.
Einnig dvaldi hjá þeim Baldvin
Kristjánsson á sínum yngri ár-
um. Hann er giftur Jónu B.
Heiðdals og eiga þau Kristján,
Róbert og Margréti.
Halla fór í Húsmæðraskólann
á Löngumýri og fór svo suður
til Reykjavíkur og starfaði þar
á barnaheimili. Síðan fluttist
hún norður og fór að vinna á
Hótel Varmahlíð þar sem hún
kynntist Brandi. Þau Halla og
Brandur bjuggu á Sauðárkróki
alla sína búskapartíð.
Halla spilaði bæði á píanó og
gítar. Einnig söng hún í kirkju-
kór Sauðárkróks, Samkórnum
og svo síðar í kór eldri borgara.
Útför Höllu fór fram í kyrr-
þey að ósk hinnar látnu.
og Brandur eign-
uðust fjögur börn,
þau eru: 1) And-
vana drengur f.
1950. 2) Frímann
Viktor, f. 1953, og
er hann giftur Auði
Valdimarsdóttur, f.
1954. Þeirra börn
eru a) Vala, f. 1980,
gift Sigurbirni
Gunnarssyni, f.
1977. Þau eiga
Laufeyju Elísabetu, f. 2008,
Auði Margréti, f. 2011, og Jónas
Valdimar, f. 2014. b) Ester, f.
1982, og c) Guðbrandur Viktor,
f. 1992. 3) Margrét, f. 1956, gift
Stefáni R. Gíslasyni. Þeirra
börn eru a) Halla Rut, f. 1977,
b) Guðrún, f. 1978, d. 1978, c)
Berglind, f. 1979, gift Sigur-
geiri Agnarssyni, f. 1976. Synir
þeirra eru Stefán Rafn, f. 2008,
og Árni Dagur, f. 2010, d) Sara
Flest okkar upplifa sorgina
einhvern tímann á lífsleiðinni. Í
þetta sinn bankaði hún upp á hjá
okkur fjölskyldunni þegar að-
ventan gekk í garð, það var þá
sem þú kvaddir þessa jarðvist,
elsku amma mín. Aðventan, tími
sem við tvær höfum ávallt haldið
svo mikið upp á, varð allt í einu
sveipuð sorg í allri þeirri tilhlökk-
un og eftirvæntingu sem fylgir
jólunum.
Þegar ég sat hjá þér nokkrum
dögum áður en þú lést náðum við
að tala mikið saman. Við töluðum
um gamla tíma en það var einmitt
það sem þér fannst svo gaman, að
rifja upp sögur og atvik frá gam-
alli tíð, alveg frá því þú varst lítil
stelpa á Stöðinni þangað til ég
var lítil stelpa í pössun hjá ykkur
afa á Fornósnum. Einnig færð-
umst við nær nútíðinni og töluð-
um m.a. um brúðkaupið okkar
Hjörleifs sl. sumar. Það sem ég
er þakklát fyrir að þú hafir séð
þér fært að koma og gleðjast með
okkur þennan dag.
Við systur vorum mikið hjá
ykkur afa hér áður og af því höfð-
um við sko unun. Það var svo dýr-
mætt að eiga ykkur afa, enda
með eindæmum barngott og
yndislegt fólk. Það stóð mikið til
þegar við vorum í pössun, þá var
spilað á píanó og gítar, sungið,
búin til leikrit og bakað, svo var
farið í sjoppuna á kvöldin og
keypt nammi. Alltaf var farið
með bænirnar fyrir svefninn, það
var lykilatriði hjá þér. Eina af
þeim bænum sem þú kenndir
mér fer ég alltaf með. Hún minn-
ir mig á þig.
Á síðustu vikum hafa minning-
arnar flætt um hugann. Margar
eru þær stundirnar sem við átt-
um saman, þær voru ljúfar og
góðar. Já, við vorum sko miklar
vinkonur, amma mín. Þú varst
svo skemmtileg týpa og mikill
húmoristi og hafðir mikinn húm-
or fyrir sjálfri þér. Svo hugsaðir
þú alltaf svo vel um útlitið og það
breytti engu hvert tilefnið var,
alltaf græjaðir þú þig alveg frá
toppi til táar, varst ávallt svo fal-
leg og vel til höfð. Tónlist var eitt-
hvað sem þú elskaðir og um ára-
tuga skeið varst þú í kór, það var
gaman að sjá hversu mikið það
gaf þér.
Það var fastur punktur að
heimsækja þig þegar ég kom
norður. Það var notalegt að koma
til þín í Grenihlíðina, þar voru
kræsingar og góður kaffibolli og
ekki skemmdi fyrir ef þú leist að-
eins í bolla fyrir mig. Þú varst al-
gjör meistarahúsmóðir, allt sem
þú gerðir var svo gott og voru
marmarakakan, eplakakan, vöffl-
urnar, pönnukökurnar, síldar-
salatið á aðventunni og marengs-
tertan þitt aðalsmerki. Að setja
Veru Lynn á fóninn, drekka kaffi,
spjalla og hlæja var nokkuð sem
við gerðum svo oft.
Partur af undirbúningi jólanna
var að pakka inn jólagjöfunum
fyrir þig og koma til þín á Þor-
láksmessu og fá heitt súkkulaði
og piparkökur með. Jólagardín-
urnar í eldhúsglugganum hjá þér
voru þær allra fallegustu. Síðan
var toppurinn að fá „guð gefi þér
gleðileg jól, Sara mín“ knúsið frá
þér. Það er sárt að hugsa til þess
að þetta tilheyri einungis fortíð-
inni, verði aldrei aftur. Það sem
ég sakna þín, amma mín.
Með hlýju í sinni ylja ég mér
við allar þessar yndislegu minn-
ingar, þær mun ég geyma í hjarta
mínu og minna þær mig á þann
tíma sem við áttum saman.
Guð gefi þér góða nótt, elsku
amma mín. Þín,
Sara.
„Guð blessi þig og styrki, elsku
Berglind mín,“ var kveðjan henn-
ar ömmu til mín þegar ég talaði
við hana í síma til að bjóða góða
nótt, nokkrum dögum áður en
hún kvaddi og fór upp til engl-
anna eins og strákarnir mínir
segja og trúa. Þannig kvaddi
amma mig alltaf þegar ég var að
fara suður til Reykjavíkur eða
þegar hún vissi að við ættum ekki
eftir að hittast í einhvern tíma.
Það er dýrmætt að eiga góð
tengsl við ömmu sína og afa. Frá
því að ég man eftir mér hafa
amma Halla og afi Brandur verið
stór partur af mínu lífi og okkar
systra. Við vorum mikið hjá þeim
á Fornósnum í gamla daga og
eigum ógrynni af góðum minn-
ingum þaðan. Við töluðum oft um
þessa góðu tíma, allan sönginn,
dansinn og leikinn sem þið afi
tókuð þátt í með okkur. Þetta er
dýrmætt og mun alltaf fylgja
mér.
Síðasti mánuður var „okkar“
mánuður, eins og þú sagðir alltaf,
með tilheyrandi skammdegi sem
fór ekkert alltof vel í okkur, en
þrátt fyrir það vorum við sporð-
drekarnir með gleði í hjarta, full-
ir tilhlökkunar yfir aðventunni
sem var að bresta á.
Það verður skrítið að geta ekki
heimsótt þig um jólin, en gott
verður að vita af ykkur afa saman
á jólunum á ný. Ég trúi því að þið
fylgist með og takið þátt í jólahá-
tíðinni með okkur.
Stefán Rafn og Árni Dagur
sakna löngu mikið og eftir mikið
spjall og vangaveltur um lífið eru
þeir sannfærðir um að þú sjáir þá
alltaf sem engill ofan af himnum.
Minningin um góða ömmu og
langömmu mun alltaf lifa með
okkur, elsku amma.
Ég kveð þig með bæn sem þú
kenndir mér. Hafðu þökk fyrir
allt og við sjáumst síðar.
Vertu, Guð faðir, faðir minn,
í frelsarans Jesú nafni.
Hönd þín leiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni.
(Hallgrímur Pétursson)
Guð blessi þig og gefi þér frið,
elsku amma mín. Þín
Berglind.
Hallfríður
Rútsdóttir
✝ Valtýr Guð-mundsson
fæddist á Króki í
Ásahreppi í
Rangárvallasýslu
25. júní 1928.
Hann lést 29.
nóvember 2015.
Hann var ellefti í
röð 14 barna
hjónanna Guð-
rúnar Gísladóttur,
f. 13.12. 1889, d.
6.9. 1935, frá Árbæjarhelli í
Holtum, og Guðmundar Ólafs-
sonar, f. 21.12. 1888, d. 2.5.
1989, frá Króki í Ásahreppi.
Systkini hans voru Guðrún
Lovísa, f. 1915, d. 2007, Viktoría
Guðrún, f. 1916, d. 2002, Guð-
bjartur Gísli, f. 1918, d. 1996,
Ólafur, f. 1920, d. 2009, Eyrún,
f. 1921, d. 2014, Hermann, f.
1922, d. 2014, Kristín, f. 1923,
Dagbjört, f. 1925, d. 2011,
Sigurbjörg, f. 1926, d. 2014,
maki Vernharður, f. 1971, dæt-
ur þeirra eru Hekla, f. 2012, og
Lilja, f. 2015. Ingvi Þór, f. 1987,
og Sif, f. 1995. Fyrir átti Valtýr
dótturina: 3) Önnu Maríu, f. 2.9.
1960, maki Jón Bjarni, f. 1957,
þeirra börn eru Erla, f. 1993,
maki Jóhannes Steinn, f. 1980,
synir þeirra Jón Frank, f. 2007,
og Óli Steinn, f. 2012. Hafdís, f.
1992. Sambýlismaður Arnar
Páll, f. 1991. Dóttir Sigmundu
og uppeldisdóttir Valtýs: 4)
Ingibjörg Jónsdóttir, f. 1956,
dætur hennar Þóra, f. 1981,
sambýlismaður Bjarne Henn-
ing, f. 1975, sonur þeirra Brage,
f. 2013, og Sara, f. 1986, sam-
býlismaður Garðar Árni, f.
1983.
Valtýr ólst upp á Króki í Ása-
hreppi við almenn sveitastörf.
Eftir að hann varð fullorðinn
sótti hann vertíð og var í vega-
vinnu. Eftir að hann flutti til
Reykjavíkur starfaði hann hjá
SVR og ók sendibíl á Sendibíla-
stöðinni Þresti. Hann sat í
stjórn Þrastar um árabil og
sinnti þar ýmsum störfum þar
til hann fór á eftirlaun.
Útför hans fór fram í kyrr-
þey.
Ingólfur, f. 1927, d.
2006, Ragnheiður,
f. 1929, d. 1999,
Gísli, f. 1930, d.
1977, Sigrún, f.
1931, d. 2015.
Valtýr kvæntist
1961 eftirlifandi
konu sinni, Sig-
mundu Hákonar-
dóttur, f. 7. des.
1934 frá Reykjavík.
Foreldrar hennar
voru Hákon Jón Jónsson, f.
1889, og Ingibjörg Bjarnadóttir,
f. 1901, bæði frá Dýrafirði. Börn
Valtýs og Sigmundu eru: 1) Há-
kon, f. 1963, d. 2005, ekkja hans
er Ágústa Rósa, f. 1962. Börn
þeirra eru Valtýr Már, f. 1994,
sonur Ágústu Rósu, og uppeld-
issonur Hákonar, Ingvar, f.
1985, hans kona er Guðrún
Agnes, f. 1987. 2) Guðrún, f.
1964, maki Þórir Karl, f. 1958.
Börn þeirra: Fríða, f. 1984,
Þann 29. nóvember sl. kvaddi
Valtýr Guðmundsson, tengdafað-
ir minn og vinur, þessa jarðvist.
Hann hefur nú fengið langþráða
hvíld, þreyttur á líkama og sál
eftir langa ævi. Þegar hann var
einungis sjö ára lést móðir hans
frá fjórtán börnum og faðir
þeirra hélt heimili fyrir hópinn
með aðstoð elstu systranna. Það
var því honum og systkinum hans
öllum eðlislægt að bjarga sér.
Aldrei var slegið slöku við hvort
sem um var að ræða launaða
vinnu eða að dytta að einhverju
bæði heima við og í Árbæjarhelli.
Hann Valli var sannkallaður
dugnaðarforkur.
Efst í huga mér er þakklæti
fyrir samfylgdina og vináttuna
við Valla og Sísí. Það var mikil
gæfa fyrir mig þegar ég varð
tengdadóttir þeirra fyrir tæpum
30 árum og hef oftar en ekki frek-
ar litið á þau sem mína aðra for-
eldra þótt ég ætti góða foreldra
fyrir. Fjölskyldan var þeim allt
og hjálpsemi þeirra var tak-
markalaus. Við Valtýr áttum það
m.a. sameiginlegt að vera bæði
haldin „austurveikinni“ svoköll-
uðu eins og margir aðrir í hans
stórfjölskyldu. Það er að segja að
líða hvergi betur en í sveitasæl-
unni fyrir austan og ég er þakklát
fyrir þann tíma sem við fengum
þar saman. Í hans huga var alltaf
gott veður í sveitinni og rok var
ekki til í hans orðabók þótt manni
þætti varla stætt úti fyrir roki,
svo mikill dýrðarstaður var Hell-
irinn í hans huga. Það var honum
því mikið gleðiefni á sínum tíma
þegar við Hákon ákváðum að
byggja okkur bústað í nálægð við
þau hjónin. Stuttu síðar varð
sorgin óbærileg þegar Hákon,
einkasonurinn og besti vinurinn,
féll frá langt um aldur fram fyrir
rúmum 10 árum. Það varð Valla
sérstaklega þungbært að Hákon
skyldi látast í Árbæjarhelli. Eftir
það varð ekkert eins og áður.
Þrátt fyrir að sagt sé að tíminn
lækni öll sár veit ég að Valli
komst aldrei yfir þessa miklu
sorg þrátt fyrir að gera sitt besta
og taka því sem að höndum bar.
Einstök vinátta og hjálpsemi
Valla og Sísíar við mig og strák-
ana mína á þeim erfiðu tímum
sem fóru í hönd verður aldrei full-
þökkuð.
Við Valli vorum auðvitað ekki
alltaf sammála í gegnum tíðina
enda bæði ákveðin. Alltaf stóð
hann með mér, það gera bara
sannir vinir. Ég er stolt af því að
eiga son sem ber hans fallega
nafn og ég gleymi aldrei gleðinni
sem ríkti þegar hann hélt á nafna
sínum undir skírn. Nú hvíla þeir
hlið við hlið feðgarnir Valtýr eldri
og Hákon, blessuð sé minning
þeirra beggja.
Hafðu þökk fyrir allt og allt.
Þín tengdadóttir,
Ágústa Rósa.
Valtýr
Guðmundsson
Okkar ástkæra móðir, systir, tengdamóðir,
amma og langamma,
HALLDÓRA SIGURÐARDÓTTIR,
lést á líknardeild Landspítalans
mánudaginn 14. desember. Útförin fer fram
frá Garðakirkju í Garðabæ þriðjudaginn
29. desember klukkan 16.
.
Auður Alfreðsdóttir Olsen, Guðni Tyrfingsson,
Ásdís Olsen, Þórður V. Friðgeirsson,
Sigurður Olsen, Kolbrún Jónsdóttir,
Bergþóra Sigurðardóttir, Kristján Ásbergsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar,
KRISTÍN SIGURJÓNSDÓTTIR
frá Fögrubrekku,
Vopnafirði,
lést á legudeild Sundabúðar 24. nóvember.
Útförin fór fram í kyrrþey. Sérstakar
þakkir til starfsfólks Sundabúðar svo og Baldurs Friðrikssonar
læknis fyrir góða umönnun og aðstoð síðastliðin ár.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug.
.
Börnin.
Ástkær eiginkona mín, móðir, dóttir og
systir,
BJÖRK ÞÓRARINSDÓTTIR,
Hólmaþingi 8, Kópavogi,
lést 17. desember. Útförin verður auglýst
síðar.
.
Kristinn Pétursson,
Alexander Kristinsson,
Þröstur Kristinsson,
Þórarinn Ingi Jónsson,
Smári Þórarinsson,
Rósa Þórarinsdóttir.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
STEINUNN ÓSK GÍSLADÓTTIR,
lést á hjartadeild Landspítalans við
Hringbraut þann 19. desember. Útför
verður auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
.
Tómas Sigurðsson,
Ingvi Tómasson, Rut Kjartansdóttir,
Trausti Tómasson, Hrafnhildur Hrafnsdóttir,
Judit Traustadóttir, Hjálmar Pétursson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku móðir okkar og tengdamóðir,
STEINUNN ARADÓTTIR
frá Tjörn á Mýrum,
andaðist þann 20. desember.
.
Bjarney P. Benediktsdóttir, Sævar Kr. Jónsson,
Sigurgeir Benediktsson, Guðrún Pétursdóttir,
Arnborg S. Benediktsdóttir, Þorgeir Sigurðarson,
Karl Benediktsson, Brita Berglund,
Eydís S. Benediktsdóttir
og fjölskyldur.
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
INGIBJÖRG TÖNSBERG,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund
19. desember. Útförin fer fram frá
Árbæjarkirkju mánudaginn 4. janúar
klukkan
15.
Fyrir hönd aðstandenda,
.
Hermann Tönsberg, Kristín Arnardóttir.