Morgunblaðið - 22.12.2015, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 22.12.2015, Qupperneq 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2015 Uppvakningar og stelsýki Randalín, Mundi og afturgöngurnar bbbbn Texti: Þórdís Gísladóttir. Myndir: Þórarinn M. Baldursson. Bjartur, 2015. 100 bls. Randalín, Mundi og afturgöng- urnar er þriðja bókin úr smiðju Þór- dísar Gísladóttur og Þórarins M. Baldurssonar um þetta skemmtilega vinapar. Þórdís hef- ur einstakt lag á að skrifa á áreynslu- lausan hátt um hversdagslega at- burði í lífi barnanna tveggja. Að þessu sinni gerist sagan í aðdraganda jóla, en Randalín og Mundi bíða eftirvænting- arfull eftir jólasnjónum til að geta bú- ið til snjókarl eða snjóhús. Þegar snjórinn loks kemur býr Randalín til snjóbolta og ætlar að geyma hann til sumarsins í frystihólfi ísskápsins, sem hljómar vafalítið kunnuglegt fyr- ir marga. Lesendur kynnast Önnu, mömmu Randalínar, sem kemur heim í jólafrí frá London þar sem hún er í námi að læra kvikmyndaförðun. Þegar henni býðst að fara norður til að farða fyrir kvikmynd um uppvakninga neitar Randalín að fara með nema Mundi fái að slást í hópinn. Höfundur notar blæbrigðaríkt tungumál og er lunkinn við að kynna fyrir lesendum og útskýra sjaldséð orð á borð við „hundslappadrífa“ (bls. 37) og „statisti“ (bls. 69). Einnig hef- ur Þórdís einstakt lag á að skrifa um ógnvekjandi hluti á afdramatískan hátt, s.s. um rottupítsur, dularfulla veruna í garðinum, uppvakninga og skyndilega stelsýki Randalínar. Teikningar Þórarins eru einstaklega skemmtilegar og bæta miklu við upp- lifun lesenda. Bók í hæsta gæðaflokki Brúnar bbbbb Texti: Håkon Øvreås. Myndir: Øyvind Torseter. Íslensk þýðing: Gerður Kristný. Mál og menning, 2015. 131 bls. Það er mikið fagnaðarefni að norska verðlaunabókin Brune eftir Håkon Øvreås með myndskreyt- ingum Øyvinds Torseter sé komin út á íslensku, en bókin hlaut í fyrra Barna- og unglingabók- menntaverðlaun Norðurlanda- ráðs. Það er sannarlega ánægjulegt að norrænar barnabækur í hæsta gæða- flokki komi út á íslensku. Hér er á ferð- inni hlý og sterk saga af vináttu, missi og hugrekki. Strákurinn Rúnar glímir við hrekki eldri stráka á sama tíma og fjölskyldan tekst á við andlát móðurafa hans. Dálæti Rúnars á of- urhetjum gefur honum þá hugmynd að dulbúast sjálfur á nóttunni sem of- urhetjan Brúnar, sem klæðist brún- um fötum og notar brúna málningu til að ná fram hefndum á hrekkju- svínunum. Fljótlega bætast vinir hans Atli og Ása í hópinn sem ofur- hetjurnar Svartli og Blása sem notast við svarta og bláa málningu. Samheldni vinanna þriggja er sterk og tekst þeim með snjöllum hætti að takast á við stóru strákana án aðstoðar hinna fullorðnu. Átak- anlegt er að sjá hvernig börn eru höfð utanveltu þegar fullorðna fólkið þarf að takast á við erfiðar aðstæður. Bók- in dansar með áhugaverðum hætti á mörkum raunsæis, því á ofur- hetjustundunum hittir Brune iðulega nýlátinn afa sinn og fær næði til að kveðja hann. Myndskreytingarnar eru sérdeilis vel unnar og undirstrika lágstemmdan húmorinn í textanum. Umhverfi og hlutum er lýst í teikn- ingunum af næmri tilfinningu fyrir smáatriðum. Myndirnar eru afar tjáningarríkar. Farið er sparlega með litina, en þeir notaðir á áhrifarík- an hátt. Þýðing Gerðar Kristnýjar er afskaplega vönduð sem hæfir vel verðlaunabók. Mínimalisminn allsráðandi Flata kanínan bbbmn Eftir Bárð Oskarsson. Íslensk þýðing: Heiðrún Hödd Guðmundsdóttir. Bókaormurinn, 2015. 35 bls. Flata kan- ínan eftir Bárð Osk- arsson var líkt og Brún- ar tilnefnd til Barna- og unglinga- bókmennta- verðlauna Norður- landaráðs í fyrra, en sem framlag Færeyinga. Í bókinni mætast hundur og rotta á gangstétt og sjá kanínu á götunni sem virðist hafa orðið fyrir bíl. Þau tvö velta fyrir sér hvað gera skuli við kanínuna og finna að lokum góða lausn til að senda hana til himna. Höfundur fjallar á næman og fallegan hátt um jafn erfitt viðfangs- efni og dauðinn er. Stíllinn er míni- malískur bæði hvað varðar texta og myndir sem vinna vel saman. Þýðingin er að stærstum hluta vel úr garði gerð, en á einstaka stöðum gætir nokkurrar ónákvæmni sem er miður. Á það t.d. við á bls. 10 þar sem þýðandinn bætir við lýsingarorði sem ekki er í frumtextanum og á bls. 26 þar sem heilli setningu er bætt við færeyska frumtextann. Að takast á við athygli Skínandi bbbbn Eftir Birtu Þrastardóttur. Crymogea, 2015. 35 bls. Skínandi eftir Birtu Þrastardóttur er önnur barnabókin sem Crymogea gefur út, en fyrir tveimur árum kom þar út verðlauna- bókin Stína stóra- sæng eftir Lani Yamamoto. Birta skrifar ekki aðeins textann og vinnur myndirnar heldur sér hún einnig um hönnun bókarinnar og umbrot. Allt er þetta afskaplega vel gert sem skilar sér í einstaklega fallegu listaverki. Strax á annarri opnu Skínandi er raunveruleikinn kvaddur og ævintýr- ið tekur við. Sagan fjallar um stúlk- una Áróru sem kvöld eitt finnur gló- andi stjörnu er fallið hefur af himni ofan. Þegar Áróra tekur bita af stjörnunni byrjar hún samstundis að skína. Í fyrstu er hún ánægð með breytinguna, en þegar fólk á förnum vegi flykkist að henni til að skoða hana verður hún feimin og hrædd. Henni er í framhaldinu rænt af sirk- usstýru sem vill fá hana sem aðalsýn- ingaratriði sitt. Þegar öll sund virðast lokuð berst hjálp úr óvæntri átt. Bókin veitir gott tækifæri fyrir fullorðna til að ræða við börn um hug- rekki, ótta og athygli. Er t.d. öll at- hygli af hinu góða og hvernig tök- umst við á við athyglina? Myndir Birtu eru fullar af skemmtilegum smáatriðum. Gaman er að sjá hversu kröftuga liti höfundur notar til að miðla sögunni og stemningunni. Vinátta og hugrekki Yfirlit yfir nýútkomnar íslenskar og þýddar barnabækur Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Brúnar Myndskreytingar Øyvinds Torseter eru sérdeilis vel unnar. Star Wars: The Force Awakens Ný Ný Good Dinosaur 1 4 Hunger Games Mockingjay part 2 2 5 The Night Before 6 4 Spectre 7 7 Love the Coopers 3 2 In The Heart Of The Sea 4 3 Krampus 5 3 The Bridge of Spies 8 4 Suffragette Ný Ný Bíólistinn 18.–20. desember 2015 Nr. Var síðast Vikur á listaKvikmynd 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Það kemur eflaust engum á óvart að nýja Stjörnustríðsmyndin, Star Wars: The Force Awakens, sé sú tekju- hæsta á liðinni helgi hér á landi og um heim allan. Myndin skilaði um 23,5 milljónum króna í miðasölu yfir helgina og frá for- og frumsýningum í liðinni viku nema miðasölutekjur um 37,6 millj.kr. Á heimsvísu hefur hún skilað um 517 milljónum dollara í miðasölu, um 67,6 milljörðum króna og í Bandaríkjunum námu miðasölu- tekjur helgarinnar um 238 milljónum dollara. Til samanburðar skilaði Avatar, sú mynd sem mestum miða- sölutekjum hefur skilað í kvikmynda- sögunni, 85 milljónum dollara fyrstu helgina. Það bendir því allt til þess að nýja Stjörnustríðsmyndin slái met Avatar. Bíóaðsókn helgarinnar Stjörnustríð slær met Hetja Daisy Riley er aðalhetja sjö- undu Stjörnustríðsmyndarinnar. Kvikmynd leik- stjórans Rúnars Rúnarssonar, Þrestir, hlaut fyrir helgi að- alverðlaun kvik- myndahátíð- arinnar Les Arcs í Frakk- landi. Myndin hlaut þrenn verðlaun að auki, sem besta kvikmyndin að mati blaðamanna, fyrir bestu kvikmyndatöku og besta leikara í aðalhlutverki, Atla Fjalarsson. Þrestir er önnur kvikmynd Rún- ars í fullri lengd. Þrestir hlutu fern verðlaun á hátíð- inni Les Arcs Atli Fjalarsson í Þröstum • Konica Minolta fjölnotatækin (MFP) eru margverðlaunuð fyrir hönnun, myndgæði, notagildi, umhverfisvernd og áreiðanleika. • Bjóðum þjónustusamninga, rekstrarleigusamninga og alhliða prentumsjón. • Viðskiptavinir Kjaran eru lítil og stór fyrirtæki, stofnanir og prentsmiðjur sem eiga það sameiginlegt að gera kröfur um gæði og góða þjónustu. • Kjaran er viðurkenndur söluaðili á prentlausnum af Ríkiskaupum. Síðumúla 12 - 510 5520 - kjaran.is BLI A3 MFP Line of the Year: 2011, 2012, 2013, 2014 bizhub margverðlaunuð fjölnotatæki BLI Pro Award: 2013, 2014 STAR WARS 3D 2, 5, 10:45 STAR WARS 2D 3, 6, 9 THE 33 10:45 HUNGER GAMES 4 8 GÓÐA RISAEÐLAN 2, 5 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Miðasala og nánari upplýsingar -K.Ó. VÍSIR.IS -USATODAY -TOTAL FILM -THE GUARDIAN TILBOÐ KL 2 ÞÖKKUM FRÁBÆRAR VIÐTÖKUR STÆRSTI OPNUNARDAGUR ALLRA TÍMA.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.