Morgunblaðið - 12.02.2016, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ
Ég fjárfesti um daginn í maskara frá Dior sem heitir Diorshow Iconic
Overcurl sem ég er nokkuð ánægð með. Ég hef nú alls ekki alltaf átt
maskara en á síðastliðnum árum hef ég lagt mig fram um að fjár-
festa í snyrtivörum sem mér finnst að konur á mínum aldri ættu að
eiga þó að ég hafi aldrei tíma til að líta í spegil á morgnana.
Þrátt fyrir þetta átak hafa maskararnir mínir verið að hverfa (og
annað úr snyrtibuddunni) og er ástæðan sú að dóttir mín á ung-
lingsaldri (sem eyðir núna um 40 mínútum fyrir framan spegilinn á
morgnana) hefur verið að stelast í snyrtibudduna. Ég hef því þurft
að kaupa oftar snyrtivörur en áður, þ. á m. maskara.
Þegar kemur að því að kaupa maskara þá vil ég helst kaupa
þekkt og rótgróin merki sem hafa áunnið sér traust og er lítið fyrir
nýjungar í þeim efnum. Nýlega reyndi starfsmaður í snyrti-
vöruverslun til dæmis að selja mér maskara sem snýst átómatískt
og rúllar þannig upp augnhárunum. Það leist mér ekkert á og sá
fyrir mér bilanir í mótornum og alls konar óþarfa flækjur. Ég vel því
alltaf einhverja gamla maskara, klassík eða því sem næst!
martamaria@mbl.is
Maskarinn
Morgunblaðið/Kristinn
Linda Björg Árnadóttir,
hönnuður Scintilla
Hvað gerir þú til að verðlauna þig? Fæ mér kampavín.
Hvað er það seinasta sem þú keyptir þér og elskaðir? Hnakkur.
Hlutur sem er þér ómissandi? Mmmm, klósett
kannski?
Uppáhaldsborg til að versla í? Ég á ekki uppá-
haldsborg til að versla í, en ég fór til Tókýó um
daginn og hún er tvímælalaust komin í algjört
uppáhald.
Seinasti veitingastaður sem
vakti hrifningu þína? Robata-
ya í Tókýó.
Hver er besti minjagripur sem
þú hefur tekið með þér heim
úr ferðalagi? Hauskúpa af vel
hyrndu nauti sem ég
dröslaði heim frá Santa
Fe. Hangir nú á vel völd-
um stað í hesthúsinu
mínu.
Uppáhaldsskart eða
-aukahlutur? Perlufesti
sem ég erfði frá mömmu.
Snyrtivara sem þú gætir
ekki verið án? Chanel
CC-kremið mitt.
Uppáhaldssmáforrit?
Ég er tæknileg risaeðla
og veit varla hvað smá-
forrit er.
Hvað er á óskalistanum
þessa stundina? Ást og
friður.
Fagurkerinn
Lilja Pálmadóttir
Athafnakonan Lilja Pálmadóttir heillaðist upp úr
skónum þegar hún heimsótti Tókýó í haust ásamt
eiginmanni sínum, Baltasar Kormáki.
Ég lagði fyrir hana nokkrar vel valdar spurningar.
Marta María | martamaria@mbl.is
Lilja Pálmadóttir
ásamt eig-
inmanni sínum,
Baltasar Kor-
máki, í Feneyjum
á síðasta ári.
Hún er hér í kjól
frá Alexander
McQueen.
AFP
Lilja heillaðsit af
Tókýó þegar hún
heimsótti borgina.
Útgefandi Árvakur Umsjón Marta María Jónasdóttir Blaðamenn Marta María Jónasdóttir martamaria@mbl.is,
Guðný Hrönn gudnyhronn@mbl.is Auglýsingar Katrín Theodórsdóttir kata@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Forsíðumyndina tók
Ragneiður Arngrímsdóttir