Morgunblaðið - 12.02.2016, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 12.02.2016, Blaðsíða 38
S taðreyndinn er sú að ég vissi ekkert af þessum hring fyrr en við Orri vorum komin upp á topp Machu Picchu-fjalls í Perú og hann var skyndilega kominn niður á hnén að biðja mín,“ segir Helga Guðrún Friðriksdóttir þegar ég spyr hana út í trúlofunarhringinn sem Orri unnusti hennar færði henni. Orri er gullsmiður og reka þau saman fyrirtækið Orrifinn á Skólavörðustíg. Parið var á ferðalagi um Mexíkó og Perú síðasta sumar og án hennar vitundar hafði Orri smíðað þennan fallega grip áður en þau lögðu í hann. „Það er eiginlega óskiljanlegt hvernig hann fór að því að smíða hann án minnar vitundar þar sem við vinnum saman en það hafðist og hann náði sannarlega að koma mér á óvart,“ segir Helga Guðrún. Hvers vegna valdi Orri svartan demant? „Við Orri vinnum saman við skartgripagerð undir Orrifinn-nafninu en ég hafði í raun aldrei leitt hugann sérstaklega að demöntum. Orri sér- hæfði sig hins vegar í demantaísetningu áður fyrr og vann við það í New York á sínum tíma. Hann kynnti mig fyrir heimi demantsins og kom í ljós að það er margt heillandi við þá. Demantar eru harðasta efnið sem til er, þeir verða til djúpt ofan í iðrum jarðar eða við möndulinn og koma ekki upp á yfirborðið nema við eldgos. Algengur misskilningur er að nátt- úrulegur demantur geti bara verið hvítur en þeir geta verið litaðir og geta verið svartir. Ég heillast sérstaklega af svörtum demöntum, það er bara eitthvað mjög heillandi við þá; ef einhver demantur er töffari þá er Kom á óvart með svörtum demanti Það datt af Helgu Guðrúnu Friðriksdóttur andlitið þegar unnusti hennar bað hennar og færði henni demantshring með 0,7 karata svörtum demanti. Marta María Jónasdóttir | martamaria@mbl.is Helga Guðrún Friðriks- dóttir með trúlof- unarhringinn sem er með 0,7 karata svörtum dem- anti og sjö litlum demönt- um sitthvoru megin. 38 MORGUNBLAÐIÐ „Förðunarfræðingurinn By Terry er meistari lita og áferða. Hún veit að áhöldin sem notuð eru við förðun eru ekki síður mikilvæg við að framkalla þá áferð sem sóst er eftir,“ segir Margrét Valdimarsdóttir, förð- unarfræðingur hjá Madison ilmhúsi. Margrét segir burstana frá By Terry tryggja að hver sem er geti skap- að fallega förðun með fljótlegum hætti. „Stencil“-farðaburstinn „Keilulaga „kabukki“-bursti með dæld í miðjunni sem tekur á móti farðanum og skammtar honum jafnt yfir andlitið. Hann hentar bæði fyrir fljótandi farða og púðurf- arða og mjúk en stinn hárin skapa jafna og eðlilega áferð.“ Svampburstinn „Lítill svampur á skafti. Hann jafnar yfirborð farðans og kemur í veg fyrir að skil verði á milli farða og hyljara. Lagið á honum hentar fullkomlega til að ná til svæðisins í kringum nef og undir augum. Það má nota hann bæði blautan og þurran en blautur svampur mýkir farðaáferðina enn meira og festir farðann bet- ur. Skaftið kemur í veg fyrir kámuga fingur. Þess má geta að svampurinn er latex-frír.“ „Soft-buffer“-burstinn „Bursti sem pússar og blandar yfirborð farðans. Hann virkar mjög vel með púðurf- arða og má líka nota fyrir fjótandi farða. Hárin í burstanum eru mjög þétt en lungamjúk og frábær til að nota við skyggingar, fyrir sól- arpúður og ljómapúður,“ útskýrir Margrét. Hún segir burstann gefa sérstaklega létta og eðlilega áferð. „Útkoman verður létt og eðli- leg áferð og mjúkar skyggingar. Svo er skaft- ið með léttri sveigju svo burstinn leggst vel að andlitinu.“ gudnyhronn@mbl.is Nýjasta nýtt Með réttu tólunum get- urðu verið þinn eigin förð- unarfræðingur „Soft- buffer“- burstinn „Stencil“ -farða- burstinn Svamp- burstinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.