Morgunblaðið - 12.02.2016, Qupperneq 6
Constantine Paraskevopoulos, eiginmanni Anítu Briem leik-
konu. „Ég var að vinna með Anítu í myndatöku og minntist á
það við þau að mig vantaði nafn yfir allt það sem ég starfaði
við. Þá kom hann með þessa hugmynd. Þetta var eins og skrif-
að í skýin, þetta passaði svo vel,“ segir Kalli.
Í dag rekur Ásta Bjartmarz Beautybar og er stofan og
verslunin til húsa á þriðju hæð í Kringlunni. Undir Beautybar-
nafnið heyra nú Studio hársnyrtistofa og Hárlengingar.is en
Ásta hefur sérhæft sig í þeim síðastliðin 13 ár. Auk þess er rekin á
staðnum netverslunin www.beautybar.is með hár- og snyrtivörur. Í
lok síðasta árs bárust fréttir af því að Ásta og Kalli væru ósátt vegna
notkunarinnar á Beautybar-nafninu en þau eru búin að grafa stríðs-
öxina og ætla að vinna saman. „Ég hef alltaf fílað þetta nafn, Beauty-
bar, og það passar vel fyrir okkur og það sem við erum að gera. Þetta
er alþjóðlegt og gott nafn. Hárgreiðslusveinarnir á stofunni lærðu all-
ir undir handleiðslu Kalla og eru toppfagmenn í sínu fagi, enda ekki
við öðru að búast með þá reynslu og þekkingu sem þau fengu undir
hans leiðsögn,“ segir Ásta.
„Við bjóðum upp á allt sem tengist útliti. Við erum með nagladömu, förð-
unarfræðinga, alla almenna hárgreiðslu, hárlengingar og eitt
mesta vöruúrval landsins af hár- og snyrtivörum.
Það eru spennandi tímar fram-
undan hjá okkur, 2016 verður
skemmtilegt ár,“ segir hún.
Grófu stríðsöxina
K
arl Berndsen kom eins og stormsveipur inn á íslenska tískumark-
aðinn 2008 eftir að hafa starfað um allan heim með aðalbækistöð í
Bretlandi í um 15 ár. Hann segist hafa flutt til Íslands eftir öll
þessi ár í útlöndum til að geta verið nær sínum nánustu og svo
grínast hann með það að allir hafi verið orðnir svo ósköp ríkir á Ís-
landi að hann vildi svo sannarlega taka þátt í gleðinni og góð-
ærinu. Við hittumst á hárgreiðslustofunni Beautybar í Kringlunni sem nú er
rekin af Ástu Bjartmarz. Upp kom ósætti á milli þeirra varðandi notkun á nafn-
inu Beautybar en þau hafa nú grafið stríðsöxina.
„Þegar ég kom heim vann ég „freelance“ og opnaði vinnustofu undir nafninu
Beautybar í Hæðarsmára í Kópavogi. Það varð strax mjög mikið að gera svo ég
réð mér aðstoðarmann, Ísak Frey förðunarmeistara. Beautybar átti í raun
aldrei að verða hárgreiðslustofa heldur fyrst og fremst vinnustofa fyrir mig,“
segir Karl. Stuttu síðar var Karl, eða Kalli eins og hann er alltaf kallaður, beð-
inn að vera með sjónvarpsþættina Nýtt útlit á Skjá Einum. Þættirnir hófu
göngu sína 2009 og urðu strax mjög vinsælir. „Í kjölfar sjónvarpsþáttanna varð
allt vitlaust og ég fór að klippa og snyrta meira og var kominn með „fullswing“
hárgreiðslustofu áður en ég vissi af,“ segir hann.
Þegar hann er spurður hvort hann hafi fundið mikinn mun á hárgreiðslu ís-
lenskra og breskra kvenna segir hann svo ekki vera. „Íslenskar konur eru
kannski opnari fyrir nýjungum, en annars er þetta svipað,“ segir hann.
Í kjölfar alvarlegra veikinda Kalla árið 2013 var Beautybarnum lokað 2014.
Hann vill ekki ræða veikindi sín á þessu stigi málsins en það fer ekki framhjá
neinum að nafnið Beautybar er honum kært. Hugmyndin að því kviknaði hjá
Karl Berndsen kom eins og stormsveipur inn á íslenska tískumarkaðinn 2008 eftir að
hafa starfað um allan heim með aðalbækistöð í Bretlandi í um 15 ár. Hann segist hafa
flutt til Íslands eftir öll þessi ár í útlöndum til að geta verið nær sínum nánustu.
Marta María Jónasdóttir | martamaria@mbl.is
6 MORGUNBLAÐIÐ
„Þetta er fyrir fólk sem á erfitt með að finna réttan
litartón þegar kemur að farða. Droparnir fást bæði í
dökku og ljósu þannig að hver sem er getur búið til
sinn fullkomna litartón,“ segir Sólrún Björg Bjarna-
dóttir, förðunarfræðingur hjá Body Shop, um nýj-
ung sem kallast Shade Adjusting Drops. Sól-
rún segir dropana einfalda í notkun. „Ég
set um það bil tvo dropa á handarbakið
ásamt einni pumpu af farða og blanda
saman til að lýsa meikið mitt um hálf-
an litartón. Það er einfalt að stýra
því hversu mikið maður vill lýsa
farðann og droparnir breyta ekki
áferð farðans sem maður er að
nota.“
Þess má geta að dropunum má
blanda við hvaða fljótandi farða eða lit-
aða dagkrem sem er.
Nýjasta nýtt
Fullkominn
litartónn
Getty Images
Það getur verið vanda-
samt að finna hinn ful-
komna litartón á farða.
Balmain-
hárvörurnar eru
seldar á Beauty-
barnum.
Ásta Bjartmarz
Nærandi sjampó frá
Nounou sem gefur góða
fyllingu og mýkt í hárið.
Heitustu krullujárnin
koma frá HH Simonsen.
SKÓLAVÖR‹USTÍG 6B - SÍMI 562 6999
ÍSLENSK
HÖNNUN
www.marialovisa.com