Morgunblaðið - 12.02.2016, Síða 34
Anastasia Soare kunni ekk-
ert í ensku þegar hún fluttist
til Bandaríkjanna. Þrátt
fyrir það náði hún að
stofna fyrirtæki sem
kom henni fljótt á
kortið.
Anastasia Beverly Hills-snyrtivörurnar
hafa slegið rækilega í gegn undanfarið.
En hver er Anastasia, konan á bak við
merkið, eiginlega?
Anastasia er fædd og uppalin í Rúmen-
íu, þar stundaði hún nám í myndlist og
arkitektúr. Hún fluttist til
Bandaríkjanna fyrir
um 26 árum en þá
talaði hún ekki stakt
orð í ensku. Hún var
þó fljót að aðlagast
og finna sér vinnu. Í
byrjun vann hún á snyrti-
stofu og sinnti hin-
um ýmsu verk-
efnum en
fljótlega opnði
hún sitt eigið
fyrirtæki og fór
að sérhæfa sig
í snyrtingu auga-
brúna. Þjónusta
hennar sló í gegn og
í dag er hún einmitt
einna þekktust fyrir
augabrúnavörurnar
sem hún framleiðir
undir merkinu Anas-
tasia Beverly Hills.
Anastasia greindi ný-
verið frá því í viðtali á vefnum Into The
Gloss að hún hefði ávallt áttað sig á mik-
ilvægi augabrúna og að listnámið hefði
hjálpað henni þegar kom að því að
framkvæma hugmyndir sínar.
Anastasia er sannkölluð stjarna í
förðunarheiminum og henni
fylgja rúmlega átta milljónir
manna á Instagram. Þar deilir
hún yfirleitt fallegum mynd-
um af förðun þar sem snyrti-
vörur hennar eru í aðalhlutverki.
Hollywood hittari
Hver er konan á bak við eitt eftir-
sóttasta snyrtivörumerki heims?
AFP
Anastasia Beverly
Hills sérhæfir sig
meðal annars í
„highlighterum“
sem gefa húðinni
dásamlegan ljóma.
Auga-
brúnavör-
urnar henn-
ar Anastasiu
hafa slegið í
gegn. Þær
fást á
beauty-
bar.is.
34 MORGUNBLAÐIÐ
Bankastræti 3 | l0l Reykjavík |Sími 551 3635
Rosa
flottar
sokka-
buxur
Hvernig hugsar þú um húðina?
Fæ plús í kladdann þar því mér er mjög annt um
eigið skinn og hlúi vel að því. Þurrburstun, hollt
mataræði, kókosolíuát, vatnsdrykkja, förðunarlaus
og góður svefn, gufurnar í baðstofunni í Laugum
og hreinar húðvörur eru vopnin mín. Ég hlýt að
vera að gera eitthvað rétt því húðin er öll á sínum
stað, teygist í takt við tilefnið og er með mátulega
mörgum hrukkum fyrir konu á mínum aldri.
Hvað notar þú á hana og hvers vegna?
Undanfarna mánuði hef ég verið að nota íslensku
húðvörurnar frá Taramar á andlitið. Á morgnana
er það serumið og dagkremið og fyrir svefninn
þvæ ég af mér málninguna með hreinsiolíunni og
Clarisonic-húðburstanum mínum. Svo er andlitið
mitt svo ljómandi lukkulegt þar sem ég hef verið
að prófa næturkremið frá Taramar sem kemur víst
á markað í næsta mánuði. Kremið er að gera virki-
lega gott mót og ég er allavega sjö númerum fersk-
ari í framan þegar ég lít í spegilinn á morgnana.
Mér finnst þessar vörur æðislegar og það góða er
að þær eru afbragðs hreinar og innihalda engin
skaðleg aukaefni.
Á kroppinn nota ég svo vörur í Sugar-línunni frá
Fresh eða Brown Sugar Body Polish, Brown Sug-
ar-sturtusápuna og Sugar Body Oil. Ég á það líka
til að bera á mig ilmlausa kókosolíu en þar sem ég
er með lyktarskyn á við þrjá er ég mjög vanaföst
þegar kemur að þessum málum. Tar-
amar-vörurnar og Sugar-línan gleðja bless-
unarlega bæði húðina og nefið.
Hefur þú alltaf spáð mikið í húðvörur
eða er þetta nýtilkomið?
Ég var alveg voðalega lítið að velta þessum málum
fyrir mér sem barn því þá var ég svo upptekin af
því að reyna að pissa standandi og spila fótbolta.
Áhuginn kviknaði á unglingsárunum og lýsti sér
þannig að ég varð að prófa það sem ég sá auglýst í
blöðunum. Ég viðurkenni fúslega að ég misskildi
sumt og notaði vörur sem hentuðu ungri húð alls
ekki. Ég ruglaði til dæmis saman gæsahúð og
appelsínuhúð í kremkaupum og í eitt skipti
kom pabbi að mér þar sem ég var að maka rak-
sápunni hans í þykkan makkann. Mér til varn-
ar stóð Shaving Gel á umbúðunum og að sjálf-
sögðu ákvað ég að um hárgel væri að ræða.
Síðan þá hefur mér farið fram í enskunni og vit-
und mín um hvað hentar minni húð (og hári) stór-
aukist.
Hvert er besta bjútítrix allra tíma
að þínu mati?
Sofa vel, hlæja mikið, borða
gott, elska og koma vel fram
við sig og sína. Ég held að
fegurðin geti ekki klikkað ef
maður fylgir þessum trix-
um. Það er líka alveg bráð-
nauðsynlegt að þvo sér
mjög reglulega því ekki vill
maður skyggja á alla feg-
urðina með miður góðri lykt.
Það væri synd.
Þetta ætti
ekki að klikka
Hödd Vilhjálmsdóttir almannatengill leggur mikið upp úr því að
lifa heilsusamlegu lífi og gerir sitthvað til að líta sem best út.
Marta María Jónasdóttir | martamaria@mbl.is
Sugar-línan frá
Fresh er í uppá-
haldi hjá Hödd.
Hödd notar
Clarisonic-
húðburstann
vinsæla.
Hödd segir
húðvörurnar
frá Taramar
gera frá-
bæra hluti
fyrir húðina.
„Undanfarna
mánuði hef ég
verið að nota
íslensku húðvör-
urnar frá Taramar
á andlitið. “