Morgunblaðið - 12.02.2016, Blaðsíða 46
Flestir sem eru með sítt hár kannast við erfiðleik-
ana sem fylgja því gjarnan að greiða í gegnum
blautt hárið eftir sturtuna eða baðið. Venjulegir
burstar toga í hárið og jafnvel slíta það en Ikoo-
burstinn greiðir mjúklega í gegnum hárið án þess
að slíta það og valda skemmdum.
Ikoo-burstinn er handgerður úr bestu efnum
sem völ er á. Hann er hannaður til að fara vel með
hárið og nudda hársvörðinn samtímis. Hann er
ekki bara þægilegur í notkun heldur einnig sérlega
fallegur og til í nokkrum litum. Ikoo-burstinn hentar
bæði konum og körlum.
Nýjasta nýtt
Hönnunun á
Ikoo burstanum
er einstök.
Flækjuburstinn
sem verndar hárið
M
ér sýnist fíngert skart vera að koma sterkt inn núna. Stóra
skartið er svolítið að detta út og þetta látlausa og mínímal-
íska að koma inn. Gullið er að koma aftur sterkt inn sem
er mjög skemmtilegt, en rósagullið er sérlega vinsælt, þá
bæði í úrum og skarti,“ segir Ísa-
bella. „Ég held að „bangle“-
armbönd og spangararmbönd verði vinsæl í ár og
þá er flott að blanda nokkrum saman. Ég vona
líka að stærri hringir í eyrun fari að koma aftur,
mér þykir svoleiðis lokkar alltaf svo klassískir
og gera svo mikið.“
Reglur um hvernig á að blanda
skarti saman úreltar
Ísabella segir að allir ættu að finna eitthvað við
sitt hæfi þegar kemur að fallegu skarti. „Unga
fólkið er að jafnaði meira fyrir tískuskart eins og
til dæmis frá Kenzo eða Michael Kors. Slíkt skart
er oft djarfara og ekki eins klassískt. Eldra fólk er
þá frekar í klassísku skarti. En svo eru merki eins og
Sif Jakobs og Sign sem eru vinsæl hjá fólki á öllum aldri.“
Að sögn Ísabellu er smart að blanda saman gulli, rósagulli og silfri. „Úr
sem eru tvítóna, þá silfur og rósgull, eða silfur og gull, hafa til dæmis
verið mjög vinsæl, það sama má segja um skart. Tvítóna
úr eða skart geta auðveldað fólki að blanda sam-
an öðru skarti sem það á í mismunandi lit-
um,“ útskýrir Ísabella sem telur að regl-
ur um að ekki megi blanda silfri og gulli
saman séu úreltar. „Það gilda engar
reglur. Fólk ætti bara að ganga með skart
sem því líður vel með og þykir fallegt.“
Morgunblaðið/Eggert
Leyfilegt að blanda
silfri og gulli saman
Þessi hringur
kemur frá
Kenzo, hann
kostar 15.500
krónur.
Skartgripatískan er síbreytileg en Ísabella Erna Sævarsdóttir, starfsmaður
Leonard í Kringlunni, segir látlaust og fíngert skart vera að koma sterkt inn
um þessar mundir. Þá þykir skart í rósgulli einnig smart um þessar mundir og
fólk má vera óhrætt að blanda því saman við silfur eða gull, að mati Ísabellu.
Guðný Hrönn | gudnyhronn@mbl.is
Gyllt armband
frá Sign, 18.700
krónur.
Micheal Kors úr-
in eru alltaf jafn
vinsæl, þetta
kostar 31.500
krónur.
Armband úr smiðju
Sif Jakobs, það er
til í nokkrum út-
gáfum og kostar frá
27.900.
Ísabella Erna
starfar í Leonard í
Kringlunni.
Látlausir Siena
eyrnalokkar frá Sif
Jakobs, þeir eru til
í nokkrum útgáfum
og kosta frá
10.900 krónum.
46 MORGUNBLAÐIÐ
Frú Sigurlaug
Fylgstu með á facebookMjódd, s. 774 7377
Ný sending
Bikini - Tankini - Sundbolir - Sundkjólar
Náttföt - Undirföt - Sloppar - Inniskór
Undirkjólar - Aðhaldsföt