Morgunblaðið - 12.02.2016, Síða 4

Morgunblaðið - 12.02.2016, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FULL BÚÐ Föndra | Dalvegi 18 | Kópavogi | s. 5686500 | fondra.is af nýjum efnum, sniðum og sníðablöðum Verið velkomin, við aðstoðum H ugmyndin um lífrænu húðvörulínuna kviknaði hjá Hafdísi fyrir nokkrum árum. Hún vildi að línan væri með virkum innihaldsefnum og að hún státaði af góðri lykt. „Ég vildi að áferðin og upplifunin væri eins og að vera staddur í heilsulind. Mér hefur fund- ist það æ mikilvægara að nota ekki vörur sem innihalda efni sem við vitum ekki hver eru né hvað þau gera okkur. Ég hugsa líka alltaf um það, þegar ég sé ungbörn kúra upp við okkur, að allt sem við setjum á okkur snertir þau. Það sama má segja um gæludýrin okkar, hundana og kettina, sem kúra sig upp við okkur og sleikja. Við vitum ekkert hvaða áhrif þessi efni hafa á þau. Svo þurfum við að hugsa um hvað við setjum út í um- hverfið. Þess vegna vildi ég koma með Lauga Spa-línuna því hún er hrein, líf- ræn og ekki próf- uð á dýrum.“ Hafdís segir vörulínuna ekki hugsaða eingöngu fyrir konur heldur sé hún „unisex“. „Strákarnir elska serumið, body & hár-olíuna og leir- maskann. Þetta sparar líka heilmikið hillupláss í baðherberginu að við notum sömu vörurnar,“ segir hún. Þegar Hafdís er spurð út í sína uppáhaldsvöru úr línunni nefnir hún ser- umið. „Það gefur „in- stant“ ljóma og maður finnur og sér ljómann birtast.“ Serumið gefur „instant“ ljóma „Ég hef alltaf passað vel upp á að þrífa húðina bæði kvölds og morgna, nota góð krem, hreinsi- og rakamaska. Á þessum árstíma finn ég hvað loftið er þurrt og húðin þarf extra mikinn raka. Þá er ég dugleg að bera rakamaskann á mig og jafnvel sofa með hann. Einnig þarf húðin aukna næringu svo augn- og dagkremið okkar er æðislegt þar sem það er með extra miklu E- og C-vítamíni. Serumið er líka nauðsynlegt þar sem það er svo góð og mikil næring, það má segja að serum geri það sama fyrir húðina og djúpnæring gerir fyrir hárið,“ segir Hafdís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Lauga Spa, en fyrir einu og hálfu ári kom hún með sína húðvörulínu á markað undir merkjum Lauga Spa. Línan kallast FACE – BODY – HOME. Marta María Jónasdóttir | martamaria@mbl.is Morgunblaðið/Golli Hafdís Jónsdóttir fékk hugmyndina um að gera lífræna húðvörulínu fyrir nokkrum árum. Hafdís vill að fólk upplifi sig eins og það sé í heilsulind þegar það notar FACE-BODY-HOME húðvörulínuna. Söngkonan Beyoncé bar glæsilegt skart í myndbandinu við nýjasta lagið sitt, Formation. Skartið hef- ur vakið mikla athygli enda er það afar áberandi og flott. Um er að ræða tvö stærð- arinnar hálsmen, eyrna- lokka og armbönd frá merkinu Dylanex. Á bak við merkið er ung kona að nafni Drew Ginsburg. Skartið er handgert í New York og hef- ur Ginsburg fengið færa handverks- menn með sér í lið til að tryggja mestu gæði er fram kemur á vef henn- ar. Eins og áður sagði bar Beyoncé nokkra mis- munandi skartgripi frá Dylanex í myndbandinu, samtals kosta þeir um hálfa milljón króna. Skjáskot af YouTube.com. Skartið frá Dylanex er vægast sagt eftirtektarvert. Skartið sem allir eru að tala um Falkor II- hálsmen, 138.000 krónur. IVY-eyrnalokk- arnir kosta um 40.000 krónur. Stíliseringin í myndbandinu við lagið Form- ation er afar vel heppnuð. Hadley-choker- hálsmenið kostar 119.000 krónur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.