Morgunblaðið - 12.02.2016, Síða 16
„Það má því segja að sérstaðan okkar sé sú að við munum
kenna allt sem tengist airbrush, nemendur læra að fullkomna
förðun með airbrush-tækninni og þetta er ekki verið að kenna í
neinum öðrum skóla hérna á Íslandi,“ segir Ásgeir.
Læra að vinna í stúdíói með öðru fagfólki
Ásgeir og Bergþóra ætla einnig að leggja áherslu á að und-
irbúa nemendur fyrir vinnu við ýmsar mismunandi aðstæður.
„Förðunarfræðingar þurfa að geta brugðist við aðstæðum. Við
höfum tekið eftir því að fólk titlar sig gjarnan sem „makeup art-
ista“ en svo kemur í ljós að fólk kann í rauninni ekki neitt, þannig
að það vantar greinilega dýpri og víðtækari kennslu á Íslandi.“
Mask Makeup & Airbrush Academy verður í nánu samstarfi
við Ljósmyndaskóla Sissu til að undirbúa nemendur undir vinnu í
stúdíói. „Við viljum að nemendur okkar læri að vinna í stúdíói,
kunni að haga sér inni í stúdíó og geti unnið með
stílistum og hárgreiðslufólki. Það er ofboðslega
algengt að manneskja kemur inn í verkefni,
farðar módelið og svo er hún bara í símanum.
Þetta gerist allt of oft.“
Í Mask Makeup & Airbrush Academy
verður meðal annars unnið með vörur frá
merkinu Make-Up Studio en Ásgeir og Berg-
þóra ætla að kynna merkið á Íslandi samhliða því að opna
skólann. „Bergþóra hefur verið að prófa þessar vörur
undanfarið og þær eru virkilega skemmtilegar, við erum
afar spennt,“ segir Ásgeir að lokum. Áhugasamir geta
kynnt sér skólann og námið nánar á heimasíðu Mask Ma-
keup & Airbrush Academy, www.maskmakeup.is.
S
kólinn sjálfur verður hrikalega flottur, engum líkur,
og við leggjum áherslu á flotta aðstöðu. Smá „ind-
ustrial grunge“-fílingur. Mér finnst skipta miklu
máli að skólinn sé flottur, hann verður að gefa nem-
endum innblástur á meðan þeir eru að læra. Svo er-
um við með hóp flottra gestakennara sem allir eru
með stórkostlega ferilskrá,“ útskýrir Ásgeir sem mun svo sjálfur
sinna hárkennslu í skólanum.
Skólinn ber heitið Mask Makeup & Airbrush Academy og
gestakennarar eru meðal annars Haffi Haff, Sigga Rósa, Filippía
Elísdóttir og Stefán Jörgen.
Með „drulluherbergi“ undir „special effects“-kennslu
„Haffi Haff ætlar bæði að kenna dragförðun ásamt því að fara
yfir hvernig maður kallar það besta fram í fyrirsætunum, hann fer
yfir ákveðin mannleg samskipti. Svo er það hún Sigga Rósa sem
býr yfir um 30 ára reynslu, hún fer yfir leikhús- og kvikmyndaförð-
un. Stefán Jörgen verður þá með „special effects“-kennslu. Við
verðum með sérstakt herbergi undir „special effects“ sem við köll-
um drulluherbergi, þar fá nemendur að blanda latex og vinna með
gerviblóð svo dæmi séu tekin. Stefán er snillingur og sannkallaður
listamaður og við erum stolt af því að hafa hann í okkar liði. Það er
einmitt lítið um „special effects“-kennslu hér heima þannig að við
ætlum að reyna að sinna því. Nemendur geta svo einnig farið á
framhaldsnámskeið hjá honum Stefáni og Siggu Rósu.
Bergþóra er listförðunarfræðingur og airbrush-meistari með
alþjóðleg kennararéttindi í þeirri list. Við höfum boðið upp á air-
brush-námskeið síðastliðin ár en við höfum orðið vör við aukna
eftirspurn eftir slíkum námskeiðum,“ segir Ásgeir.
Nýr förðunar-
skóli á Íslandi
sem er
„engum líkur“
„Við erum að leggja lokahönd á skólann sjálfan og áætlum
að byrja kennslu 22. febrúar,“ segir Ásgeir Hjartarson hár-
greiðslumeistari, en hann er að opna nýjan förðunarskóla
ásamt eiginkonu sinni, Bergþóru Þórsdóttur. Ásgeir segir
skólann vera einstakan og á heimsmælikvarða.
Guðný Hrönn | gudnyhronn@mbl.is
Nemendur læra að
vinna með vörur frá
Make-Up Studio.
Nemendur skól-
ans verða kynntir
fyrir merkinu
Face Lace sem
hefur verið að
gera allt vitlaust
erlendis.
Ljósmynd/Kristján Maack.
Ásgeir Hjartarson og
Bergþóra Þórsdóttir.
Marilyn Monroe er meðal annars
þekkt fyrir ljósu lokkana, löngu
augnhárin og eldrauðu varirnar.
Rauðar varir eru fyrir löngu orðnar
klassískar og margar konur
dreymir um að skarta eldrauðum
vörum í anda Monroe. Sumar telja þó slíkan vara-
lit ekki klæða sig. En rauður varalitur á að geta
farið öllum vel að sögn Caroline Barnes, förð-
unarfræðings Max Factor, galdurinn liggur ein-
faldlega í litartóninum.
Nýverið kom á markað varalitalína frá Max Fac-
tor, línan samanstendur af fjórum rauðum varalit-
um og er hver og einn litur hannaður með sér-
stakt litaraft í huga. Stjarna línunnar er þó litur
sem kallast Ruby Red en það er liturinn sem sjálf
Marilyn Monroe notaði, sá litur á að fara öllum vel.
Liturinn er eldrauður og bjartur en það var sjálfur
Max Factor sem hannaði þann lit fyrir Monroe
þegar frægðarsól hennar stóð hvað hæst.
Nýjasta nýtt
Núna geta allir
notað rauðan varalit
Marilyn Cabernet Red
hentar þeim sem hafa
dökka húð sérstaklega
vel.
Marilyn Berry Red
hentar þeim sem
hafa kaldan undirtón í
húðinni.
Marilyn Sunset Red
er sérstaklega hann-
aður fyrir þá sem hafa
hlýtt litarhaft.
Marilyn Ruby Red
var varaliturinn sem
Marilyn Monroe not-
aði. Sá klassíski litur á
að henta öllum, óháð
litarhafti og háralit.
16 MORGUNBLAÐIÐ
ALLT AÐ
RAKA AUKNING EFTIR
EINA NOTKUN.
Varðveitir rakann og
gefur aukinn ljóma
dag eftir dag.
Stöðug rakagjöf í 8 tíma.
Útsölustaðir: Hagkaup Kringlunni, Lyfju Smáratorgi, Neskaupsstað og Keflavík, Árbæjarapotek, Garðsapótek,
Apotek Siglufjarðar, Stjörnusól, Snyrtistofan Hilma, Snyrtistofan Arona, Snyrtistofan Abaco, Snyrtistofan Fagra,
Snyrtistofan Wanita, Snyrtistofan Dekurdís og Hárgreiðslustofan Flikk.