Morgunblaðið - 12.02.2016, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 12.02.2016, Blaðsíða 28
Förðunarsnillingurinn Bobbi Brown, sem hefur fyrir löngu sannað sig í förðunarheiminum með samnefndu snyrtivörumerki, kynnir nú á mark- að dramatískasta maskarann sinn til þessa. Maskarinn heitir Eye Opening Mascara og er kolsvartur. Formúlan er hönnuð til að auka um- fang hvers og eins augnhárs svo um munar og burstinn sér til þess að augnhárin fái lyftingu þannig að augun virka stærri en áður. Og það besta mun vera endingin en Bobbi Brown segir maskarann haldast á augnhárunum allan daginn án þess að flagna eða smita frá sér. Nýjasta nýtt Nýjasti maskarinn frá Bobbi Brown, lengir, þykkir og lyftir. Kolsvartur og dramatískur Hver vill ekki Kolsvört og þykk augnhár? Rósroði er kvilli sem veldur roða í húðinni, einkum á nefi, höku og kinnum. Rósroða er ekki hægt að lækna en þennan kvilla má meðhöndla með ýmsum húðmeð- ferðum og lyfjum. Lífsstíll viðkomandi hefur einnig áhrif á rósroðann því stress og slæmt mataræði ýtir undir ein- kennin. Húðumhirða hefur vissulega mikil áhrif líka og þeir sem eru með rósroða þurfa að vanda valið á snyrtivörum. Til eru ótal vörur sem draga úr eða hylja roða og græni farðagrunnurinn frá Smashbox er dæmi um slíka vöru. Hann gefur grænan blæ sem kemur á móti roðanum í húðinni og vinnur gegn honum. Í Prep & Prime Color Correcting-línunni frá MAC er svo að finna gult CC-krem sem hefur reynst fólki með rósroða vel. Kremið jafnar húðlitinn og ver húðina fyrir öllu því sem ertir hana og veldur roða, svo sem sól og kulda. Og ekki má gleyma snyrtivörumerkinu Clinique sem er þróað af húð- læknum. Innan merkisins má finna línu sem heitir Redness Solution en í línunni eru mildar vörur, sér- hannaðar fyrir fólk með roða í húðinni. Lausnir Snyrti- og húð- vörur sem vinna gegn rósroða Guli liturinn í CC-kreminu frá MAC dregur úr roða í húð og hentar því fólki með rósroða vel. Smashbox-farðagrunn- arnir hafa farið sigurför um heiminn en þeir eru til í nokkrum útgáfum. Clinique rakakrem sem veitir vörn. Getty 28 MORGUNBLAÐIÐ Snyrtistofanros.is | Engihjalla 8 | 200 Kóp | S.5540744 Frábært tilboð!! 20% afsláttur! HÚÐSLÍPUN gegn framvísun miðans. Gildir til 1. apríl 2016 M ér þykir best að nota Touche Éclat- gullpennann til að móta og birta yfir augnsvæðinu. Ég nota hann bæði undir og yfir augabrúnir til að lyfta og skerpa. Þennan þurfa allar konur að eiga í veskinu sínu. Til að móta og gefa lit er gott að nota Dessin Des Sourcils-augabrúnablýant sem ég dreg eftir neðri og efri línu auga- brúna og fylli aðeins inn í þar sem þarf. Til að mýkja og fullkomna lín- una nota ég burstann á blýantinum til að greiða í gegn. Til að toppa augabrúnalúkkið er nauðsynlegt að nota Couture Brow- augabrúnagelið til að gefa aukna fyllingu og festa brúnirnar. Svo áferðin verði náttúruleg dreg ég gel- ið með hárvextinum og fyrir þéttari og meira „edgy“ brúnir, eins og hjá Cara Delevingne, er gott að draga burstann á móti hárunum og renna burstanum svo til baka,“ segir Björg. Björg Alfreðsdóttir, National Makeup Artist Yves Saint Laurent á Íslandi, byrjar alltaf á því að næra og styrkja augnsvæðið með Forver Youth Liberator Eye Zone Serum því það er létt og gefur raka. Marta María Jónasdóttir | martamaria@mbl.is Cara Delevingne er þekkt fyrir sínar þykku og þéttu augabrúnir. Björg AlfreðsdóttirFullkomnar augabrúnir á tveimur mínútum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.