Morgunblaðið - 12.02.2016, Side 39

Morgunblaðið - 12.02.2016, Side 39
það sá svarti. Þar sem við Orri vinnum mjög náið saman við að smíða og hanna skartgripi vitum við orðið ansi vel hvort um sig hvað hinu finnst fallegt og Orri nýtti sér þá visku augljóslega við smíði trúlofunarhrings- ins. Hann vissi alveg að ég elskaði svarta demanta. Hann valdi hins vegar ekki bara svartan demant heldur svartan demant með því sem er oftast kallað galli í þessum demantabransa. Þessir „gallar“ eru venjulega agnir úr öðrum steinefnum, sem er tilfellið í demantinum í hringnum mínum. Sannleik- urinn er samt sá að þessir svokölluðu gallar eru í raun besta sönnun þess að steinninn er í raun og veru nátt- úrulegur og gerir hann að okkar mati mun fallegri og einstakari. Sér- staklega í ljósi þess að manngerðir demantar eru orðnir svo fullkomnir í dag að það er nánast ómögulegt að greina þá frá þeim náttúrulegu en það hefur enn ekki náðst að herma eftir þessum „göllum“.“ Útfærslan á hringnum er að mörgu leyti hefðbundin og dálítið gamaldags og mjög ólík skartgripalínum þeirra Orra. Helga Guð- rún segir að hringurinn hafi verið útpældur hjá hennar heittelskaða. „Orra langaði að hafa útfærsluna á hringnum einfalda og tímalausa og leyfa svarta demantinum að njóta sín en hann ákvað samt líka að hafa bauginn frekar massífan og klærnar sem halda demant- inum eru jafnvel svolítið „goth“, dálítið oddhvassar. Hann var ákveðinn í því frá byrjun að setja líka demanta á bauginn sjálfan en geymdi það þangað til eftir að ég fékk hann því hann vildi hafa mig með í ráðum um það. Niðurstaðan varð sú að hann setti sjö litla hvíta demanta sithvorumegin við stóra svarta demantinn. Við Orri erum ansi upptekin af táknum og höfum unnið mikið út frá þeim í skartgripunum sem við gerum undir Orrifinn-merkinu og trúlofunarhringurinn var engin undantekning á því. Svartur með hvítu sitthvorumegin minnir á yin og yang eða jafnvægið. Við höfðum litlu hvítu demantana sjö sitthvorumegin við stóra svarta demantinn sem er einmitt 0,7 karöt. Sjö er heilög tala í mörgum trúarbrögðum og samkvæmt talnaspekinni tengist hún því að leita sannleikans. Hringurinn er úr 14 karata gulu gulli og litlu hvítu demantarnir eru 0,01 karat hver.“Morgunblaðið/Eggert „Orra langaði að hafa útfærsluna á hringnum einfalda og tímalausa og leyfa svarta demantinum að njóta sín“ MORGUNBLAÐIÐ 39 Verslun og verkstæði Snorrabraut 56 | s. 588 0488 | www.feldur.is TILBOÐSDAGAR 20-50% afsláttur af völdum vörum. 10% af annarri vöru út febrúar. Í nýjustu línunni frá Bobbi Brown er lögð áhersla á ljómandi húð. Línan, sem kemur í takmörkuðu upplagi, heitir Glow Collection og í henni má finna dásamlegt ljómapúður í tveimur litum, annars vegar í bleikum tón (Pink Glow) sem hentar ljósri húð vel og hins vegar í bronslit (Bronze Glow) sem er hugsað fyrir dekkri húð. Púðrið er létt og endurkastar ljósi sem gefur húðinni frísklegan ljóma. Mælt er með að setja púðrið ofan á kinnbeinin með mjúkum bursta og jafnvel á axlir og bringu. Þá er einnig fallegt að setja það í innri augn- krókinn og á augabrúnabeinið með augnskuggabursta. Nýjasta nýtt Nú snýst allt um ljómandi húð Highlight- púðrin koma í tveimur litum. Nýju highlight- púðrin frá Bobbi Brown gefa húðinni frísklegt yfirbragð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.