Fréttablaðið - 06.01.2017, Síða 14

Fréttablaðið - 06.01.2017, Síða 14
Frá degi til dags Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Halldór Fríða Rut Heimisdóttir Hárgreiðslumeistari Úr einu fræi varð bylting. Moroccanoil hárvörumerkið er innblásið af ferskum vindum, bláma sjávarins og landslagsins í kringum Miðjarðarhafið. Upphafið er sjálf Moroccanoil Treatment olían sem er góður grunnur fyrir hvaða hárgerð sem er. Einnig góð í krakka og skegg. Til að fá sem bestu næringarefnin er gott að setja hana alltaf í blautt hárið og blása það eða leyfa því að þorna eðlilega. Olíurnar eru þrjár og nýjust er Blow Dry Concentrate sem hönnuð er fyrir gróft og erfitt hár. Moroccanoil Treatment hentar öllum hárgerðum og LIGHT fyrir fíngert og mikið ljóst hár. Regalo ehf Iceland Á Íslandi eru lagðir háir tollar á landbúnaðarvörur. Eina leiðin til að flytja inn t.d. kjöt og osta á sam­keppnishæfu verði er að nýta tollkvóta. Það eru heimildir til innflutnings á takmörkuðu magni á lægri eða engum tollum, samkvæmt samningum við Alþjóða­ viðskiptastofnunina (WTO) annars vegar og Evrópusam­ bandið (ESB) hins vegar. Íslenzk stjórnvöld þrjózkast hins vegar við að úthluta tollkvótunum með því að bjóða þá upp. Uppboðin hækka verð vörunnar, þannig að í sumum tilvikum er hagur neytenda af tollfrelsinu orðinn lítill sem enginn. Eftir að samið var við ESB um að lækka tolla á ýmsum búvörum og stækka tollkvóta fyrir aðrar setti landbún­ aðarráðherra á fót starfshóp sem fékk það hlutverk að gera tillögur um „viðbrögð“ við samningnum. Í honum sátu eingöngu fulltrúar ríkisins, landbúnaðarins og ann­ arra innlendra framleiðenda, enda gerði hópurinn tillögur sem eru flestar til þess fallnar að hafa aftur af neytendum þann ávinning, sem fólst í tollasamningnum. Ein tillagan á uppruna sinn hjá Bændasamtökum Íslands, að tollkvótarnir verði boðnir upp oft á ári en ekki einu sinni eins og tíðkazt hefur. Landbúnaðarráðherrann hefur nú hrint þeirri tillögu í framkvæmd, þrátt fyrir mót­ mæli Félags atvinnurekenda. FA hefur bent á að þetta skerði hag bæði innflutnings­ fyrirtækja og neytenda. Erfiðara verði fyrir innflytj­ endur að skipuleggja innflutning og birgðahald. Styttra kvótatímabil auki hættu á að kvótar fullnýtist ekki þótt greitt hafi verið fyrir þá. Tíð uppboð þýði meira umstang og kostnað fyrir innflytjendur. Allt stuðli þetta að hærra verði til neytenda. Þessi rök skipta ráðuneytið engu. Það sendi FA bréf, þar sem því er haldið fram að fyrirkomulagið sem Bændasam­ tökin lögðu til sé bara víst í þágu innflutningsfyrirtækja. Þetta verður óneitanlega að teljast sérkennilegt sam­ ráð við hagsmunaaðila; að gera fyrst breytingu á starfs­ umhverfi þeirra án þess að spyrja álits og halda því svo fram að breytingin sé gerð í þeirra þágu. Þetta er hins vegar mjög í anda allrar stjórnsýslu atvinnuvegaráðu­ neytisins hvað varðar innflutning á búvörum; þar er taumur innlendra framleiðenda ævinlega dreginn og minna skeytt um innflytjendur eða neytendur. Ráðuneytið sér um sína Ólafur Stephensen framkvæmda- stjóri Félags atvinnurekenda Íslenzk stjórnvöld þrjózkast hins vegar við að úthluta tollkvót- unum með því að bjóða þá upp. Reynsluboltarnir Það er nærri öruggt að Benedikt Jóhannesson, Þorsteinn Víglunds- son og Þorgerður Katrín Gunnars- dóttir verði ráðherrar Viðreisnar í næstu ríkisstjórn. Hanna Katrín Friðriksson kemur einnig til greina. Í flokknum er lögð áhersla á reynslu en heimildir Frétta- blaðsins herma að það hafi nánast ekkert verið minnst á að Jóna Sólveig Elínardóttir, varaformaður flokksins, gæti orðið ráðherra. Þorgerður hefur mikla reynslu af stjórnmálum og Þorsteinn úr atvinnulífinu en ekki verður horft fram hjá því að þau eru líklega umdeildustu stjórnmálamenn flokksins. Samstarfsflokkarnir eru sagðir kíma yfir því að þrátt fyrir loforð um kerfisbreytingar ríði ferskt blóð í flokknum ekki feitum hesti frá stólaleiknum. Nýliðinn Líklegt verður að teljast að einhver láti í minni pokann innan odd- vitahóps Sjálfstæðisflokksins fari svo að flokkurinn fái aðeins fimm ráðherrastóla. Bjarni Benediktsson er sagður leggja á það áherslu að hafa sem jöfnust kynjahlutföll og það þýðir að tvær konur verði hið minnsta í hópnum. Tveir karl- kyns oddvitar koma þá til með að missa af ráðherrastólum. Haraldur Benediktsson er nú formaður fjár- laganefndar sem er áhrifamikið embætti og gæti vel haldið því áfram. Öðru máli gegnir um Pál Magnússon, oddvita í Suðurkjör- dæmi. En busar geta ekki farið fram á að fá allt upp í hendurnar strax. snaeros@frettabladid.is Stærsta efnahagsfréttin 2016 er sú staðreynd að erlend staða þjóðarbúsins er jákvæð í fyrsta sinn frá því að mælingar hófust eftir lok síðari heimsstyrjaldar. Ísland er nú í hópi fárra Evrópuríkja sem eru lánveitendur við útlönd. Stöðugleikaframlög gömlu bankanna og gríðarlegt innstreymi gjaldeyris vegna fjölgunar ferðamanna, sem gaf Seðlabankanum færi á að kaupa gjaldeyri fyrir um 390 milljarða í fyrra, skipta þar mestu og hafa gjörbreytt grunngerð hagkerfisins. Útlit er fyrir að Ísland verði nettó útflytjandi á fjár­ magni í náinni framtíð. Þetta eru ótrúleg umskipti á skömmum tíma. Fyrir örfáum árum var gjaldeyris­ staðan neikvæð um 100 prósent og Ísland glímdi við fordæmalausan greiðslujafnaðarvanda. Nú horfir staðan hins vegar öðruvísi við. Í stað þess að óttast skarpt fjármagnsútflæði og í kjölfarið meiriháttar gengisfall krónunnar við losun hafta er helsta áskorunin á komandi árum að fást við linnu­ lausa gengisstyrkingu. Á nýliðnu ári hækkaði gengi krónunnar um átján prósent og ef fram heldur sem horfir þá kann það að valda verulegu ójafnvægi í þjóðarbúskapnum og grafa undan samkeppnis­ hæfni útflutningsgreina landsins. Stjórnvöld geta að óbreyttu ekki lengur setið aðgerðarlaus hjá. Til að sporna við þessari þróun er ekki síst nauð­ synlegt að endurskoða peningastefnu Seðlabankans. Fram til þessa hefur hann reynt að vega á móti mikilli gengishækkun með því að kaupa meira en helming­ inn af öllu því gjaldeyrisinnflæði sem hefur komið á markaðinn. Slík gjaldeyrisinngrip eru hins vegar kostnaðarsöm og ljóst að ekki verður lengra haldið á þeirri braut. Árlegur vaxtakostnaður bankans af því að viðhalda forða sem nemur nærri 40 prósentum af landsframleiðslu hleypur á tugum milljarða. Sá kostnaður kemur til vegna þess að vaxtamunur við útlönd hefur sjaldan verið meiri. Mikilvægt er að sá vaxtamunur lækki á komandi misserum og þannig verði um leið skapaðar aðstæður í hagkerfinu sem eru til þess fallnar að hvetja lífeyrissjóði og aðra inn­ lenda aðila til að fjárfesta í auknum mæli erlendis. Slíkt fjármagnsútflæði telst ekki lengur áhættuþáttur við haftalosun heldur er það afar eftirsóknarvert markmið til að tryggja jafnvægi í efnahagslífinu. Þrátt fyrir að ekki sé ástæða til að gera lítið úr þeim skrefum sem þegar hafa verið tekin til að opna Ísland gagnvart umheiminum þá má öllum vera ljóst að hægt er að ganga mun lengra. Í stað þess að veita lífeyrissjóðum sérstaka undanþágu frá höftum til að flytja fjármuni úr landi þá ættu stjórnvöld að opna alfarið fyrir fjárfestingar þeirra erlendis – og íslenskra fyrirtækja og heimila – án nokkurra takmarkana. Seðlabankastjóri hefur sagt að hann vonist til að hægt verði að afnema höftin að fullu síðar á þessu ári. Það er ekki eftir neinu að bíða. Ágætis fyrsta skref nýrrar ríkisstjórnar í þá veru væri að leggja niður starfsemi gjaldeyriseftirlits Seðlabankans, sem þjónar engum tilgangi við núverandi aðstæður, og spara skattgreiðendum þannig hundruð milljóna á ári í óþarfa ríkisútgjöld. Skrúfum frá Ágætis fyrsta skref nýrrar ríkisstjórnar í þá veru væri að leggja niður starf- semi gjald- eyriseftirlits Seðlabankans Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is 6 . j a n ú a r 2 0 1 7 F Ö S T U D a G U r14 S k o ð U n ∙ F r É T T a B L a ð i ð SKOÐUN 0 6 -0 1 -2 0 1 7 0 4 :2 3 F B 0 5 6 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B D E -F A 1 0 1 B D E -F 8 D 4 1 B D E -F 7 9 8 1 B D E -F 6 5 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 5 6 s _ 5 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.