Fréttablaðið - 06.01.2017, Qupperneq 18
Fótbolti Björn Einarsson, formaður
Víkings í Reykjavík, tilkynnti í gær
um framboð sitt til embættis for-
manns KSÍ. Þar með er ljóst að
Guðni Bergsson hefur fengið mót-
framboð en núverandi formaður,
Geir Þorsteinsson, tilkynnti í fyrra-
dag að hann muni ekki sækjast eftir
endurkjöri.
„Ég held að ég hafi mikla reynslu,
bæði úr knattspyrnu- og atvinnu-
lífinu, til að takast á við spennandi
aðstæður sem hafa skapast hjá KSÍ,“
sagði Björn sem var áður formaður
knattspyrnudeildar Víkings. Hann
hefur samfleytt gegnt stjórnunar-
stöðu innan félagsins í tíu ár.
Björn segir að tilkynning Geirs
hafi komið sér á óvart. „Þetta var
mjög óvænt en það hefur verið hvati
minn allan tímann að bjóða mig
fram. Þessi tíðindi búa til allt annað
landslag en höfðu ekki úrslitaáhrif
á ákvörðun mína.“
Hann á von á hörðum formanns-
slag en á erfitt með að meta hvort
fleiri eigi eftir að blanda sér í þá bar-
áttu fyrir ársþing KSÍ sem fer fram í
Vestmannaeyjum 11. febrúar.
Björn hefur áður lýst því yfir að
hann muni vinna launalaust fyrir
sambandið verði hann kosinn.
Hann stendur við þá yfirlýsingu.
„Ég held að það sé eina eðlilega
fyrirkomulagið. Ég kem úr slíku
umhverfi sjálfur og í atvinnulífinu
er þetta fyrirkomulag sterkara. Þetta
fyrirkomulag, sem hefur verið í KSÍ,
er á undanhaldi. Það hefur verið
umdeilt innan hreyfingarinnar að
stjórnarformaðurinn hefur verið
launaður og hátt launaður. Ég held
að félögin myndu taka þessari
breytingu fagnandi.“ – esá
Ákvörðun Geirs ekki ástæðan
Björn Einarsson ætlar að sækjast eftir
formannsembætti KSÍ. FréttaBlaðið/
StEFán
Það hefur verið
hvati minn allan
tímann að bjóða mig fram.
Björn Einarsson.
6 . j a n ú a r 2 0 1 7 F Ö S t U D a G U r18 S p o r t ∙ F r É t t a b l a ð i ð
Urðarhvarfi 4 / 203 Kópavogi
Sími 557 4848 / www.nitro.is
Allar gerðir af Arctic Cat vélsleðum, sport, touring
og fjallasleðar. Kíktu við og skoðaðu úrvalið.
Styrkir Rétt ríflega 150 milljónum
var úthlutað úr Afrekssjóði ÍSÍ í gær
fyrir árið 2017 en um 100 milljónum
á eftir að úthluta þegar nýr tíma-
mótasamningur ríkis og Íþrótta- og
Ólympíusambandsins tekur gildi í
vor. Afrekssjóðurinn mun hækka
um 100 milljónir króna á ári næstu
þrjú árin og verður 400 milljónir
þegar úthlutað verður fyrir 2019.
Öll 26 sérsamböndin sem sóttu
um styrk fengu úthlutun en þó mis-
mikla eins og gefur að skilja. Sér-
samböndin sjálf fá peningana en
ekki einstakir íþróttamenn. Hæstu
styrki hljóta þau sambönd sem eru
með lið í lokamótum stórmóta. HSÍ
fékk langmest eða 28 milljónir og
körfuboltinn 18 milljónir.
Karfan vill tvöfalt meira
„Við erum bjartsýn á að fá stóran
hlut af nýju 100 milljónunum sem
verður úthlutað eftir íþróttaþingið.
Við gerum ráð fyrir því að fá ekki
undir 30-35 milljónum króna á
þessu ári. Það eru 100 milljónir eftir
og ég reikna með því að við fáum
allavega 15-20 milljónir í viðbót,“
segir Hannes S. Jónsson, formaður
Körfuknattleikssambands Íslands,
en KKÍ er á leið á lokamót með
A-landslið karla líkt og HSÍ í næstu
viku. Verkefni sambandanna á árinu
eru svipuð og skilur körfuboltafor-
maðurinn því ekki alveg þennan tíu
milljóna króna mun.
„Þessar 35 milljónir eru það sem
við þurfum og því gerum við ráð
fyrir því að fá þær. Starfið okkar
hefur verið öflugt á síðustu árum og
vaxtarverkirnir vegna góðs árangurs
á skömmum tíma. Þetta er því allt
mjög kostnaðarsamt,“ segir Hannes.
nærri því sem þarf til
Lárus Blöndal, forseti ÍSÍ, segir
vinnu vegna nýs regluverks, er
varðar úthlutun fjármagns þegar
nýr samningur tekur gildi, standa
yfir og vonast til að hún verði kláruð
í kringum íþróttaþingið í maí.
Hann fagnar því, eins og gefur að
skilja, að geta sett meiri peninga í
íslenskt afreksstarf og að tölurnar
hækki á komandi árum. ÍSÍ færist
nær því að geta úthlutað því sem
til þarf miðað við útreikninga sem
gerðir voru.
„Við erum minni þjóð og getum
aldrei jafnað framlag þjóðanna í
kringum okkur. Við erum að kom-
ast eins nálægt því og við getum á
þessari stundu. Við létum reikna út
fjárþörfina sem er talin 650 millj-
ónir króna að teknu tilliti til stærð-
ar okkar. Það er mjög stórt skref
að komast í 400 milljónir á næstu
tveimur árum,“ segir Lárus.
Fimleikafólkið ósátt
Sólveig Jónsdóttir, framkvæmda-
stjóri Fimleikasambands Íslands,
rauk út af fundinum þegar dagskrá
var lokið en hún var verulega ósátt
við úthlutunina. Fimleikarnir fengu
sjöundu hæstu upphæðina.
„Við erum að fá minna en sam-
band [KSÍ] sem greiðir sínum
keppendum bónusa. Þá fer maður
að velta fyrir sér hvort afrekssjóður
ÍSÍ sé hugsaður þannig að hægt sé að
greiða bónusa með honum. Við vilj-
um fá meira gagnsæi á hvernig þessu
er úthlutað en þá yrðu allir sáttari,“
segir Sólveg við íþróttadeild.
Hún vonast eftir skýrara reglu-
verki þegar kemur að úthlutun eftir
að nýr samningur tekur gildi.
„Þegar kemur að þessu myndi ég
kalla eftir skýrum reglum sem væru
mjög gegnsæjar. Nú er sjóðurinn
að stækka og það er ótrúlega mikið
fagnaðarefni að það sé að gerast.
Það má hrósa Íþrótta- og Ólympíu-
sambandinu og forseta þess vel
fyrir góð störf þar, en þegar maður
sér þessa úthlutun núna hræðist
maður svolítið hvað gerist. Gegnsæi
númer eitt, tvö og þrjú mun breyta
ótrúlega miklu,“ segir Sólveig Jóns-
dóttir. tomas@365.is
Góð viðbót
en mikill vill
alltaf meira
Ríflega 150 milljónum var úthlutað úr afrekssjóði
Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands í gær en enn
þá er eftir að úthluta 100 milljónum þegar nýr tíma-
mótasamningur tekur gildi. Handboltinn fékk mest
en þrátt fyrir hækkun eru ekki allir sáttir.
lárus Blöndal, forseti ÍSÍ, og líney rut Halldórsdóttir framkvæmdastjóri ÍSÍ, á fundinum í gær. FréttaBlaðið/VilHElm
Fyrri úthlutun Afrekssjóðs 2017
Blaksamband Íslands (BlÍ)
4.400.000 kr.
Badmintonsamband Íslands (BSÍ)
2.200.000 kr.
Borðtennissamband Íslands (BtÍ)
600.000 kr.
Dansíþróttasamband Íslands (DSÍ)
2.100.000 kr.
Frjálsíþróttasamband Íslands (FrÍ)
12.000.000 kr.
Fimleikasamband Íslands (FSÍ)
7.950.000 kr.
Golfsamband Íslands (GSÍ)
8.850.000 kr.
Hjólreiðasamband Íslands (HrÍ)
1.100.000 kr.
Handknattleikssamband Íslands
(HSÍ) 28.500.000 kr.
Íþróttasamband fatlaðra (ÍF)
7.750.000 kr.
Íshokkísamband Íslands (ÍHÍ)
3.200.000 kr.
Skautasamband Íslands (ÍSS)
600.000 kr.
Júdósamband Íslands (JSÍ)
1.600.000 kr.
Karatesamband Íslands (KaÍ)
1.600.000 kr.
Körfuknattleikssamband Íslands
(KKÍ) 18.500.000 kr.
Keilusamband Íslands (KlÍ)
1.100.000 kr.
Kraftlyftingasamband Íslands
(Kra) 6.600.000 kr.
Knattspyrnusamband Íslands (KSÍ)
8.400.000 kr.
landssamband hestamannafélaga
(lH) 2.200.000 kr.
lyftingasamband Íslands (lSÍ)
1.100.000 kr.
Skíðasamband Íslands (SKÍ)
9.800.000 kr.
Skylmingasamband Íslands (SKY)
1.700.000 kr.
Sundsamband Íslands (SSÍ)
13.550.000 kr.
Skotíþróttasamband Íslands (StÍ)
3.850.000 kr.
tennissamband Íslands (tSÍ)
600.000 kr.
Þríþrautarsamband Íslands (ÞrÍ)
600.000 kr.
Heildarúthlutun til sérsambanda
ÍSÍ 150.450.000 kr.
Við erum að fá
minna en samband
sem greiðir sínum kepp-
endum bónusa.
Sólveg Jónsdóttir, framkv.stjóri FSÍ
0
6
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:2
3
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
D
F
-0
8
E
0
1
B
D
F
-0
7
A
4
1
B
D
F
-0
6
6
8
1
B
D
F
-0
5
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
5
6
s
_
5
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K