Fréttablaðið - 06.01.2017, Page 20

Fréttablaðið - 06.01.2017, Page 20
Ásdís ásamt eiginmanni sínum, Stefáni Guðjónssyni, og börnunum Agli Erni, níu ára, Kamillu Birtu, sautján ára, og Guðjóni Pétri, þrettán ára. Sumarið sem Ásdís Ragna Ein­ arsdóttir var fimmtán ára fór hún í sveit austur í Vallanes þar sem fyrirtækið Móðir Jörð er starf­ rækt. Þar kynntist hún lífrænni matjurtaræktun og lærði að elda grænmetisfæði ofan í heimilis­ fólkið. „Mig langaði ung að verða grasalæknir. Vistin ýtti enn frek­ ar undir áhuga minn á heilbrigð­ um lífsstíl og lækningamætti nátt­ úrunnar,“ segir Ásdís. Hún nam síðan grasalækningar við Univers­ ity of East London og útskrifaðist 2005. Hún hefur starfað við fagið síðan. Ásdís er uppalin í Reykja­ nesbæ þar sem hún býr ásamt eigin manni sínum og þremur börn­ um og rekur eigin stofu í Keflavík. Ætlar að gera meira af því sem nÆrir Í upphafi árs fara margir að huga að heilsunni og strengja ýmis heit. Sjálf strengir Ásdís ekki eiginleg áramótaheit en setur sér þó alltaf einhver markmið fyrir komandi ár og leggur þannig línurnar fyrir það sem fram undan er. Markmið hennar að þessu sinni er að hækka hamingjustuðulinn með því að gera meira af því sem nærir and­ lega og líkamlega. „Svo er ég al­ gjörlega háð göngutúrum og geng úti flesta daga vikunnar í hvaða veðri sem er. Ég mun að sjálf­ sögðu halda því áfram en máttur göngutúra er að mínu mati mikill og nærir bæði líkama og sál. Þar fæ ég mína hugleiðslu.“ Starf grasalæknis felst að sögn Ásdísar í því að meðhöndla ein­ staklinginn á heildrænan hátt og stuðla að bættri líðan með því að koma jafnvægi á starfsemi líkam­ ans með áherslu á heilsusamlegt mataræði, heilbrigðar lífsvenjur og lækningajurtir. Hún mælir því með að þeir sem vilja bæta heils­ una á nýju ári hugi vel að öllum helstu grunnþáttum heilsunn­ ar eins og svefni, hreyfingu, and­ legri líðan og nærandi mataræði. „Þetta á samt ekki að snúast um „allt eða ekkert“ heldur ætti frek­ ar að reyna að tileinka sér góðar heilsusamlegar lífsvenjur á sem flestum sviðum sem bæta líðan og auka lífsgæði. Yfirleitt er besta leiðin hinn gullni meðalvegur laus við allar öfgar. „Health happ­ ens in the middle,“ sagði einhver spekingurinn og ég tek heilshug­ ar undið það.“ matur er besta forvörnin Ásdís segist hafa mikla ástríðu fyrir því að kenna fólki að nota lækningajurtir og heilsusamlegt mataræði til heilsueflingar og heldur reglulega námskeið sem því tengjast fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Þó að hún sé sérfræðingur í jurtum er það henni líka hjart­ ans mál að fá fólk til þess að huga betur að mataræðinu. „Matur er að mínu mati besta forvörnin gegn sjúkdómum og heilsuleysi en mér finnst allt of algengt að fólk átti sig ekki á samhenginu á milli þess sem það borðar eða gerir daglega og því hvernig því líður í líkam­ anum. Góð heilsa snýst ekki ein­ göngu um að vera laus við sjúk­ dóma heldur að upplifa vellíðan, orku og hreysti í daglegu lífi.“ burnirót í uppáhaldi Ásdís segir lækningajurtir síðan góða leið til að flýta fyrir bata og fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. ÚtGEfAndi: 365 miðlAr | ÁByrGðArmAður: Svanur Valgeirsson umSjónArmEnn EfniS: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Lilja Björk Hauksdóttir, liljabjork@365.is, s. 512 5372 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357 SölumEnn: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.is, s. 512 5433 bæta almenna líðan þegar það á við. „Engu að síður er mikilvægt að fara gætilega í inntöku á jurt­ um og á það sérstaklega við ef fólk er að taka margar tegundir af lyfj­ um og glíma við flókna kvilla því sumar jurtir geta haft milliverk­ anir við lyfseðilskyld lyf. Það er því nauðsynlegt að ráðfæra sig við fagaðila áður en farið er að blanda þessu tvennu saman,“ árétt­ ar Ásdís sem leggur mikið upp úr því að nota jurtir með skynsam­ legum og öruggum hætti því þær innihalda að hennar sögn fjölmörg virk efni sem hafa líffræðilega virkni þótt þær séu í flestum til­ fellum líkamanum til góðs. Ásdís segir hægt að fá hin góðu og heilsueflandi áhrif jurta með því að drekka ýmiss konar jurtate. „Það er svo sniðugt að reyna að draga úr kaffidrykkjunni á móti. Þá er ráð að bæta jurtum við matar æðið og lauma kryddjurtum og öðrum lækningajurtum í hvers kyns mat.“ Aðspurð segist Ásdís halda sér­ staklega upp á nokkrar jurtir og að hver og ein hafi sína sérstöku virkni og eiginleika. „Burnirótin er þar fremst í flokki en rannsókn­ ir hafa leitt í ljós að hún er gagnleg við þreytu og eykur mótstöðu gegn streitu og álagi.“ Ásdís hefur enn sama áhuga á matjurtaræktun og á unglingsár­ um og hefur ræktað ýmsar tegund­ ir af salati og grænmeti í gegnum árin. Hún deilir áhugamálinu með tengdaföður sínum og eru þau með gróðurhús og matjurtagarð rétt fyrir utan bæjarmörkin í Keflavík. „Þar hjálpumst við að og nostrum við grænmetisgarðinn okkar.“ unga fólkinu þarf frÆðslu Að mati Ásdísar verða æ fleiri meðvitaðri um heilsuna og um hvað umhverfi, mataræði og dag­ legar venjur geta haft mikil áhrif. Hún segist jafnframt hafa orðið vör við að viðhorf fólks til óhefð­ bundinna lækninga hafi breyst á síðustu árum. „Fólk er almennt opnara fyrir að skoða þær í fyrir­ byggjandi tilgangi og til að ná bata. Mér finnst unga fólkið þó þurfa meiri fræðslu um mikil­ vægi hollrar næringar og svefns á heilsuna og myndi vilja að meiri áhersla yrði lögð á forvarnir hjá þessum hópi enda getur tekið lang­ an tíma að vinda ofan af slæmum venjum framan af ævinni.“ Ásdís deilir hér uppskrift að morgunþeytingi með lækninga­ jurtum sem er tilvalinn til að koma sér í gang í upphafi árs. túrmerik & engifer morgunboost 1 tsk. túrmerikduft ½ tsk. engiferduft ½ appelsína í bitum ½ tsk. kanilduft ½ tsk. maca-duft 100-200 ml möndlumjólk 1-2 dropar vanillustevía 1 msk. chia-fræ Frosið mangó Öllu skellt í blandara. Hægt er að bæta við lúku af kasjúhnetum eða matskeið af hnetusmjöri ef vilji er til að auka próteininnihaldið. Vera Einarsdóttir vera@365.is Hér er Ásdís að týna vallhumal sem er mikið notaður í lækningaskyni. Ásdís gengur nær daglega. Hér er hún á Helgafelli. Það er auðvelt að bæta lækningajurtum út í morgunþeytinginn. Þessi ætti að rífa þig í gang. 6 . j a n ú a r 2 0 1 7 F Ö S T U D a G U r2 F ó l k ∙ k y n n i n G a r b l a ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ i ∙ l í F S S T í l l 0 6 -0 1 -2 0 1 7 0 4 :2 3 F B 0 5 6 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B D F -1 C A 0 1 B D F -1 B 6 4 1 B D F -1 A 2 8 1 B D F -1 8 E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 5 6 s _ 5 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.