Fréttablaðið - 06.01.2017, Page 23

Fréttablaðið - 06.01.2017, Page 23
Ég þjáðist af miklu þunglyndi og vanda- málum í stoðkerfi. Ég hafði ekki verið virk á vinnumarkaði í tíu ár. Einn daginn var ég að hjálpa syni mínum með stærðfræði og uppgötv- aði að ég kunni ekki það sem hann var að gera. Það varð kveikjan að því að ég leitaði til Hringsjár. Helga Sigurðardóttir Skólar & námskeið 6. janúar 2017 Kynningarblað Hringsjá | IKEA | Tækniskólinn | Flugleiðahótel | Fjölbrautaskólinn við Ármúla | Advania Helga Sigurðardóttir öðlaðist nýtt líf eftir að hafa verið óvirk á vinnumarkaði í tíu ár. Hún leitaði til Hringsjár og segir að það hafi verið sinn lottóvinningur. MynD/gVa Starfið hjá Hringsjá snýst um að hjálpa fólki til sjálfshjálpar og byggir helst á námi, kennslu, ráðgjöf og stuðningi. Námið er einstaklingsmiðað og hentar vel þeim sem hafa litla grunnmennt­ un eða eiga erfitt með nám. Helga segir að Hringsjá hafi gjörbreytt lífi sínu. „Þetta var eins og að fá lottóvinning,“ segir hún. Helga var búin að glíma við stoðkerfisvandamál og fæðingar­ þunglyndi í langan tíma þegar hún ákvað að taka líf sitt í gegn. Mikið þunglyndi „Ég þjáðist af miklu þunglyndi og vandamálum í stoðkerfi. Ég hafði ekki verið virk á vinnu­ markaði í tíu ár. Einn daginn var ég að hjálpa syni mínum með stærðfræði og uppgötvaði að ég kunni ekki það sem hann var að gera. Það varð kveikjan að því að ég leitaði til Hringsjár en ég hafði heyrt um starfsemina frá vini mínum. Hann talaði fallega um starfsemina, vel væri hugsað um hvern og einn með frábærum árangri,“ segir Helga en fyrsta skrefið var að fara á Reykjalund í endurhæfingu. „Meðal ann­ ars var lögð áhersla á hugræna atferlismeðferð sem gerði mér mjög gott,“ segir hún. góð endurhæfing „Eftir að hafa verið í endurhæf­ ingu um tíma sóttu iðjuþjálfar­ ar á Reykjalundi um fyrir mig hjá Hringsjá. Til að komast að þurfti maður að sýna virkilega mikinn áhuga á bata. Ég fór á tvö námskeið, annað í bókhaldi og hitt í tölvum. Mjög áríðandi var að stunda námið af heilum hug og mæta í alla tíma,“ útskýrir Helga. „Þegar ég sóttist eftir að komast að hjá Hringsjá voru um eitt hundrað umsóknir. Rúmlega tuttugu komust inn svo þetta var algjör lóttóvinningur fyrir mig,“ segir hún. lesblinda uppgötvaðist Helga fór í nám hjá Hringsjá sem gaf einingar til áframhaldandi náms. „Námið byggir á hraða sem hentar hverjum og einum. Þarna uppgötvaðist að ég væri lesblind sem ég hafði enga hug­ mynd um. Allt í einu var ég ekki heimsk eins og ég hafði alltaf talið mig vera. Ég átti mjög erf­ itt með að læra á sínum tíma. Það var mér um megn að þurfa að fara upp að töflu og lesa upp­ hátt, eins og tíðkaðist þá. Það var mikil niðurlæging þegar kenn­ arinn kallaði mig upp enda er þetta eitthvað það versta sem hendir þá sem eru lesblindir,“ segir Helga. „Það var hrikalegt að lesa upp fyrir bekkinn og sjá bara annað hvert orð. Ég féll í stærðfræði og íslensku og flosn­ aði síðan upp úr skóla. Ég fékk þau skilaboð frá kennurum að ég væri tossi,“ segir Helga. Það var því mikil blessun fyrir hana að fá greiningu og breytti öllu fyrir hana í náminu. Vildi ekki vera föst í örorku „Eftir að ég byrjaði í Hringsjá fékk ég níu og tíu í stærðfræði og átta í íslensku. Í dag get ég hjálpað börnum mínum með heimalærdóminn. Það er góð til­ finning,“ rifjar hún upp. Námið var þrjár annir og Helga lauk því með glans. Hjá Hringsjá fékk hún einnig aðstoð við hreyfingu í líkamsræktarstöð Sjálfsbjarg­ ar. „Ég var mjög kvíðin þegar ég byrjaði hjá Hringsjá en það breyttist fljótt. Ég hefði aldr­ ei getað staðið upp fyrir framan fólk áður. Núna er ég í stjórn Fé­ lags flogaveikra en ég greindist með flogaveiki um það leyti sem ég byrjaði í Hringsjá,“ segir hún. lyfjatæknir í dag Eftir að Helga lauk námi hjá Hringsjá fór hún í lyfjatækni­ nám í Fjölbrautaskólanum við Ármúla. Núna starfar hún sem lyfjatæknir á Landspítalanum. „Mig langaði aldrei að sitja föst í örorku,“ segir hún. „Fór strax að vinna eftir námið og líkar það mjög vel. Ég kalla Hringsjá lífs­ björgina mína. Eftir að ég byrj­ aði hjá Hringsjá varð einhvers konar nýtt upphaf í lífi mínu. Bara að fara út á meðal fólks og eiga við það samskipti hefur ótrúlega góð áhrif á mann. Ég get því mælt með Hringsjá fyrir alla þá sem þrá að komast aftur út í lífið og uppgötva að mennt er máttur.“ Hægt er að kynna sér starfsemi Hringsjár á heimsíðunni www. hringsja.is eða í síma 510 9350, Hringsjá hefur verið lífsbjörgin mín Hringsjá er náms- og starfsendurhæfing fyrir fólk sem vill komast aftur út á vinnumarkaðinn eftir hlé vegna veikinda, slysa eða annarra áfalla. Helga Sigurðardóttir var búin að vera öryrki í tíu ár þegar líf hennar gjörbreyttist með hjálp frá Hringsjá. 0 6 -0 1 -2 0 1 7 0 4 :2 3 F B 0 5 6 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B D F -3 0 6 0 1 B D F -2 F 2 4 1 B D F -2 D E 8 1 B D F -2 C A C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 5 6 s _ 5 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.