Fréttablaðið - 06.01.2017, Síða 23
Ég þjáðist af miklu
þunglyndi og vanda-
málum í stoðkerfi. Ég
hafði ekki verið virk á
vinnumarkaði í tíu ár.
Einn daginn var ég að
hjálpa syni mínum með
stærðfræði og uppgötv-
aði að ég kunni ekki það
sem hann var að gera.
Það varð kveikjan að
því að ég leitaði til
Hringsjár.
Helga Sigurðardóttir
Skólar & námskeið
6. janúar 2017
Kynningarblað Hringsjá | IKEA | Tækniskólinn | Flugleiðahótel | Fjölbrautaskólinn við Ármúla | Advania
Helga Sigurðardóttir öðlaðist nýtt líf eftir að hafa verið óvirk á vinnumarkaði í tíu ár. Hún leitaði til Hringsjár og segir að það
hafi verið sinn lottóvinningur. MynD/gVa
Starfið hjá Hringsjá snýst um
að hjálpa fólki til sjálfshjálpar
og byggir helst á námi, kennslu,
ráðgjöf og stuðningi. Námið er
einstaklingsmiðað og hentar vel
þeim sem hafa litla grunnmennt
un eða eiga erfitt með nám.
Helga segir að Hringsjá hafi
gjörbreytt lífi sínu. „Þetta var
eins og að fá lottóvinning,“ segir
hún. Helga var búin að glíma við
stoðkerfisvandamál og fæðingar
þunglyndi í langan tíma þegar
hún ákvað að taka líf sitt í gegn.
Mikið þunglyndi
„Ég þjáðist af miklu þunglyndi
og vandamálum í stoðkerfi. Ég
hafði ekki verið virk á vinnu
markaði í tíu ár. Einn daginn
var ég að hjálpa syni mínum með
stærðfræði og uppgötvaði að ég
kunni ekki það sem hann var að
gera. Það varð kveikjan að því
að ég leitaði til Hringsjár en ég
hafði heyrt um starfsemina frá
vini mínum. Hann talaði fallega
um starfsemina, vel væri hugsað
um hvern og einn með frábærum
árangri,“ segir Helga en fyrsta
skrefið var að fara á Reykjalund
í endurhæfingu. „Meðal ann
ars var lögð áhersla á hugræna
atferlismeðferð sem gerði mér
mjög gott,“ segir hún.
góð endurhæfing
„Eftir að hafa verið í endurhæf
ingu um tíma sóttu iðjuþjálfar
ar á Reykjalundi um fyrir mig
hjá Hringsjá. Til að komast að
þurfti maður að sýna virkilega
mikinn áhuga á bata. Ég fór á tvö
námskeið, annað í bókhaldi og
hitt í tölvum. Mjög áríðandi var
að stunda námið af heilum hug
og mæta í alla tíma,“ útskýrir
Helga. „Þegar ég sóttist eftir að
komast að hjá Hringsjá voru um
eitt hundrað umsóknir. Rúmlega
tuttugu komust inn svo þetta var
algjör lóttóvinningur fyrir mig,“
segir hún.
lesblinda uppgötvaðist
Helga fór í nám hjá Hringsjá sem
gaf einingar til áframhaldandi
náms. „Námið byggir á hraða
sem hentar hverjum og einum.
Þarna uppgötvaðist að ég væri
lesblind sem ég hafði enga hug
mynd um. Allt í einu var ég ekki
heimsk eins og ég hafði alltaf
talið mig vera. Ég átti mjög erf
itt með að læra á sínum tíma.
Það var mér um megn að þurfa
að fara upp að töflu og lesa upp
hátt, eins og tíðkaðist þá. Það var
mikil niðurlæging þegar kenn
arinn kallaði mig upp enda er
þetta eitthvað það versta sem
hendir þá sem eru lesblindir,“
segir Helga. „Það var hrikalegt
að lesa upp fyrir bekkinn og sjá
bara annað hvert orð. Ég féll í
stærðfræði og íslensku og flosn
aði síðan upp úr skóla. Ég fékk
þau skilaboð frá kennurum að ég
væri tossi,“ segir Helga. Það var
því mikil blessun fyrir hana að
fá greiningu og breytti öllu fyrir
hana í náminu.
Vildi ekki vera föst í örorku
„Eftir að ég byrjaði í Hringsjá
fékk ég níu og tíu í stærðfræði
og átta í íslensku. Í dag get ég
hjálpað börnum mínum með
heimalærdóminn. Það er góð til
finning,“ rifjar hún upp. Námið
var þrjár annir og Helga lauk
því með glans. Hjá Hringsjá fékk
hún einnig aðstoð við hreyfingu
í líkamsræktarstöð Sjálfsbjarg
ar. „Ég var mjög kvíðin þegar
ég byrjaði hjá Hringsjá en það
breyttist fljótt. Ég hefði aldr
ei getað staðið upp fyrir framan
fólk áður. Núna er ég í stjórn Fé
lags flogaveikra en ég greindist
með flogaveiki um það leyti sem
ég byrjaði í Hringsjá,“ segir hún.
lyfjatæknir í dag
Eftir að Helga lauk námi hjá
Hringsjá fór hún í lyfjatækni
nám í Fjölbrautaskólanum við
Ármúla. Núna starfar hún sem
lyfjatæknir á Landspítalanum.
„Mig langaði aldrei að sitja föst
í örorku,“ segir hún. „Fór strax
að vinna eftir námið og líkar það
mjög vel. Ég kalla Hringsjá lífs
björgina mína. Eftir að ég byrj
aði hjá Hringsjá varð einhvers
konar nýtt upphaf í lífi mínu.
Bara að fara út á meðal fólks
og eiga við það samskipti hefur
ótrúlega góð áhrif á mann. Ég
get því mælt með Hringsjá fyrir
alla þá sem þrá að komast aftur
út í lífið og uppgötva að mennt
er máttur.“
Hægt er að kynna sér starfsemi
Hringsjár á heimsíðunni www.
hringsja.is eða í síma 510 9350,
Hringsjá hefur verið lífsbjörgin mín
Hringsjá er náms- og starfsendurhæfing fyrir fólk sem vill komast aftur út á vinnumarkaðinn eftir hlé vegna veikinda, slysa eða annarra
áfalla. Helga Sigurðardóttir var búin að vera öryrki í tíu ár þegar líf hennar gjörbreyttist með hjálp frá Hringsjá.
0
6
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:2
3
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
D
F
-3
0
6
0
1
B
D
F
-2
F
2
4
1
B
D
F
-2
D
E
8
1
B
D
F
-2
C
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
5
6
s
_
5
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K