Fréttablaðið - 06.01.2017, Page 25

Fréttablaðið - 06.01.2017, Page 25
Það skiptir máli að sitja rétt en fólk er kannski ekki nógu dug­ legt að nýta sér still­ ingarnar á stólnum. Það er um að gera að prófa sig áfram og finna hent­ uga stillingu. Birna Magnea Bogadóttir Það er jafnvel hægt að hafa vinnu­ aðstöðuna við sófann ef fartölvan er allt sem þarf. MICKE skrifborðin eru vinsæl, enda falleg og á sérstaklega góðu verði. Þau fást í nokkrum stærðum og hægt er að bæta við hillu til að nýta plássið betur. PÅHL skrifborðin fást í nokkrum stærðum og litum og vaxa með barninu. LISABO borðið hefur unnið til hönnunarverðlauna, enda fallegt og líka einstaklega einfalt í samsetningu. Með rafknúnu BEKANT skrifborði ætti að vera lítið mál að finna réttu stöðuna. VOLMAR stóllinn er sterkur og vottaður til notkunar á vinnustöðum, eins og BEKANT. KOLON gólfhlífin sér svo um að hlífa parketinu. Hirslur, bæði stórar og smáar, skipta öllu máli þegar vinnuaðstaðan er skipulögð. Þótt stórt skrifborð sem hægt er að hækka og lækka, stóll með örmum sem styður vel við bakið og hirsl­ ur sem halda öllu í röð og reglu sé auðvitað ákjósanleg aðstaða fyrir námsmanninn, er plássið oft af skornum skammti. Í IKEA fást skrifstofuhúsgögn sem henta hvaða aðstæðum sem er, allt frá fartölvu­ borði til að sitja með í sófanum til hágæðaskrifstofuhúsgagna sem vottuð eru til notkunar í atvinnu­ starfsemi. Birna Magnea Bogadótt­ ir sölustjóri segir að í vöruúrvalinu megi finna allt sem þarf í námsað­ stöðuna fyrir nema á öllum aldri, hvort sem þeir eru að stíga fyrstu skrefin á námsferlinum eða setjast á skólabekk eftir langt hlé. „Þarf­ irnar eru í grunninn þær sömu. Það þarf aðstöðu sem sinnir hag­ nýtum þörfum, eins og hvar eigi að geyma bækur og fylgihluti, það þarf pláss til að vinna og svo þarf að sinna líkamanum og gæta að lík­ amsstöðunni.“ Góð líkamsstaða mikilvæg Birna segir stólinn til dæmis afar mikilvægan. „Það skiptir máli að sitja rétt, eins og flestir vita, en fólk er kannski ekki nógu duglegt að nýta sér stillingarnar á stóln­ um. Það er um að gera að prófa sig áfram og finna hentuga stillingu. Vinnuplássið sjálft, eða borðið, er auðvitað líka mikilvægt því þar þarf að vera pláss fyrir það sem fylgir náminu.“ Birna segir úrvalið af borðum það mikið að öruggt ætti að vera að allir geti fundið borð við hæfi. „Ég mæli auðvitað með raf­ knúnu BEKANT borðunum sem hægt er að hækka og lækka eftir þörfum. Það er æskilegt að skipta reglulega um stöðu þegar unnið er allan daginn við skrifborð og svo eru þau líka sérstaklega stílhrein og falleg. Ef aftur á móti plássið eða fjárhagurinn leyfa ekki slíkt, er úrvalið mikið, og borðin á borða­ barnum svokallaða eru mjög vin­ sæl,“ segir Birna. Þar geti við­ skiptavinir raðað saman fótum og borðplötum að vild og möguleik­ arnir því nánast endalausir. „Þar er til dæmis hægt að velja borð­ plötu með fótum öðrum megin og hirslu hinum megin og fá þannig rúmgóða hirslu með borðinu.“ Hún nefnir einnig PÅHL barnahúsgögn­ in sem góðan kost fyrir yngri nem­ endurna. „Borðin eru með þrem­ ur mismunandi hæðarstillingum og stækka því með barninu, sem er mjög jákvætt því börnin virðast jú alltaf stækka hraðar en gert er ráð fyrir.“ Hentugar hirslur eru lykillinn Fyrir smærri rými þar sem ef til vill er ekki pláss fyrir meira en nett borð og stól segir Birna vel hægt að koma sér upp snyrtilegri aðstöðu. „Þar skipta hirslurnar höfuðmáli. Að nýta veggpláss­ ið fyrir hillur og jafnvel skápa, og koma mögulega skúffueiningu fyrir undir borðinu. Þá er hægt að halda vinnuborðinu snyrtilegu, en hafa þó allt við höndina.“ Birna segir úrvalið af aukahlutum mjög mikið, og nefnir þar allt frá stíla­ bókum til þráðlausrar hleðslu í vinnulampanum. „Það ætti því að vera lítið mál fyrir námsmanninn að koma sér upp aðstöðu sem stuðl­ ar að góðri einbeitingu og árangri,“ segir Birna að lokum. Góð aðstaða einfaldar námið Það er stórt skref að hefja nám, hvort sem það er margra ára háskólanám fram undan eða styttra námskeið til að halda við þekkingu eða sækja sér nýja. Í öllu námi er mikilvægt að hafa aðstöðu til að sinna því; góðan stað til að lesa og skrifa og helst að geta hugsað í næði. Kynningarblað SKóLAR & NáMSKEIð 6. janúar 2017 3 0 6 -0 1 -2 0 1 7 0 4 :2 3 F B 0 5 6 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B D F -1 C A 0 1 B D F -1 B 6 4 1 B D F -1 A 2 8 1 B D F -1 8 E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 5 6 s _ 5 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.