Fréttablaðið - 06.01.2017, Side 28
Fjarnám í Fjölbrautaskólanum við
Ármúla hófst á sumarönn 2002 og
á því fimmtán ára starfsafmæli á
árinu 2017. Steinunn H. Hafstað,
fjarnámsstjóri Fjölbrautaskólans
við Ármúla, segir að frá upphafi
hafi nemendur getað tekið allt
frá einum áfanga á önn upp í fullt
nám í fjarnámi. „Nemendahópur-
inn er afar fjölmennur, nemend-
ur búa víða um land og jafnvel er-
lendis.“
Steinunn nefnir að grunnskóla-
nemendur í efstu bekkjum grunn-
skóla séu alltaf nokkuð fjölmenn-
ir í fjarnáminu sem og nemend-
ur í dagskóla FÁ. „Auk þeirra
eru nemendur annarra fram-
haldsskóla sem taka einn og einn
áfanga samhliða námi sínu ann-
ars staðar og síðast en ekki síst
nemendur sem hafa lokið starfs-
námi og vilja bæta stúdentsprófi
við það.“
Grunnskólanemendurnir fá þá
áfanga sem þeir ljúka í fjarnámi
metna í þann skóla sem þeir innrit-
ast í eftir grunnskólapróf. Að sögn
Steinunnar skapar það möguleika
fyrir nemendur að flýta fyrir sér í
námi en um leið fái þeir krefjandi
verkefni í námsgreinum þar sem
þeir skara fram úr.
„Við kappkostum að bjóða upp á
fjölbreytt nám á stúdentsbrautum
og í heilbrigðisskólanum. Námið
og námsmat er sambærilegt við
það sem er dagskólanum. Fjöldi
áfanga í boði á önn er um níutíu.
Einnig er í boði nám á sumarönn
og þá eru um þrjátíu áfangar í
boði. Nemendur sem ná framúr-
skarandi námsárangri í fjarnámi
eru verðlaunaðir með niðurfell-
ingu einingagjalds á næstu önn.
Til þess þurfa þeir að ljúka að
minnsta kosti tíu einingum og vera
með yfir 9,0 í meðaleinkunn. Á síð-
ustu önn voru tíu nemendur verð-
launaðir,“ lýsir Steinunn.
Í desember síðastliðnum braut-
skráðust 24 fjarnámsnemend-
ur með stúdentspróf frá skólan-
um og fimm af heilbrigðisbraut-
um. Allir fjarnemar hafa aðgang
að bókasafni skólans, náms- og
starfsráðgjöfum og heimanáms-
aðstoð í Setrinu sem er opið alla
virka daga. „Fjölmargir fjarnáms-
nemar koma í skólann og nýta sér
þjónustuna og jafnvel hitta kenn-
arana sína en þótt þeir hitti ekki
kennara fyrr en þeir mæta í loka-
prófin hafa þeir góðan aðgang að
þeim í kennslukerfinu Moodle sem
er einskonar skólastofa á netinu.
Þar hafa nemendur líka aðgang að
verkefnum og prófum yfir önnina,“
segir Steinunn en hún vill einnig
vekja athygli á því að fjarnám er
ekki auðveld leið heldur krefst það
bæði sjálfsaga og skipulagshæfni
þar sem nemandinn þarf í raun að
búa til sína eigin stundatöflu með
hliðsjón af uppsetningu námsins og
kröfum.
Steinunn H. Hafstað fjarnámsstjóri Fjölbrautaskólans við Ármúla, segir að kappkostað sé að bjóða upp á fjölbreytt nám bæði
á stúdentsbrautum og í heilbrigðisskólanum. MYND/GVA
Fjöldi áfanga í boði í fjarnámi
Fjarnám í Fjölbrautaskólanum við Ármúla er afar fjölbreytt og er fjöldi áfanga í boði á hverri önn um níutíu. Allir fjarnemar hafa góðan
aðgang að bókasafni, náms- og starfsráðgjöfum og annarri þjónustu skólans. Fjarnám krefst bæði sjálfsaga og skipulagshæfni.
60 PLÚS
Skráning og nánari upplýsingar á spa@hiltonreykjavikspa.is og í síma 444 5090.
Þjálfarar: Patrick Chiarolanzio, Agnes Þóra Árnadóttir og Guðbjartur Ólafsson
Styrkur, þol, jafnvægi og samhæfing
4 vikna námskeið fyrir 60 ára og eldri hefst mánudaginn 9. janúar.
Skemmtilegir tímar sniðnir fyrir fullorðið fólk. Áhersla á persónulega aðstoð,
styrk, þol, jafnvægi og samhæfingu til þess að auka lífsgæði.
Verð: 26.900 kr.
Innifalið: Aðgangur að Spa, handklæði við komu, herðanudd í heitum pottum.
Tímar kl. 13.00 alla dagana
Mánudaga, miðvikudaga og föstudaga: Hóptími
Þriðjudaga og fimmtudaga: Prógramm hjá þjálfara í sal - frjáls mæting
Mánudaginn 16. janúar verður fyrirlestur um næringu fyrir fólk 60 ára og eldri.
SkólAr & NÁMSkeið kynningarblað
6. janúar 20176
0
6
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:2
3
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
D
F
-0
3
F
0
1
B
D
F
-0
2
B
4
1
B
D
F
-0
1
7
8
1
B
D
F
-0
0
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
5
6
s
_
5
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K