Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.01.2017, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 06.01.2017, Qupperneq 30
Sólveig Gísladóttir solveig@365.is „Á hverju ári prófa ég líklega vel á annað hundrað öpp, aðal­ lega vegna vinnu minnar en einnig vegna áhuga á því að læra meira, vinna betur og nýta tæknina til að bæta líf mitt og annarra,“ segir Ingvi Hrannar sem er menntaður grunnskóla­ kennari og með meistaragráðu í frumkvöðlafræðum frá Há­ skólanum í Lundi. Hann starfar í dag á mörkum skólaþróunar og tækniþróunar í grunnskólunum í Skagafirði. Ingvi Hrannar heldur úti vef­ síðunni www.ingvihrannar.com. „Síðan heldur utan um bloggið mitt, samantektir á #mennta­ spjall á Twitter sem ég stýri ásamt Tryggva Thayer, og alla hlaðvarpsþættina (Menntavarp) sem ég og Ragn­ ar Þór Péturs­ son höldum úti.“ T æ k n i o g notkun henn­ ar í skólastarfi er Ingva Hrann­ ari hugleikin, þar á meðal notkun spjald­ tölva í kennslu. „Okkur er það ljóst að við erum ekki að undir­ búa börnin fyrir fortíðina okkar, heldur framtíðina þeirra. Til þess að mæta kröfum framtíðar þurfum við að leggja áherslu á breiða námskrá, samskipti, sam­ vinnu, sköpun, gagnrýna hugsun og læsi í víðum skilningi í gegn­ um allt skólastarfið, þar á meðal tæknilæsi,“ segir Ingvi Hrannar. Öpp ársins Ingvi Hrannar hefur frá árinu 2013 tekið saman í lok árs lista yfir öpp ársins. „Ég byrjaði á þessu því ég var svo oft spurður um hvaða öpp ég nota og hverju ég mæli með, bæði í vinnu og einkalífi,“ segir hann en þrjú af þeim tólf öppum sem hann valdi falla í flokkinn skólastarf. „Ég valdi þessi þrjú öpp því ég hef hvað mest notað þau undan­ farið í skólastarfi en að sjálfsögðu nota ég einnig BookCreator og Paper by 53 auk iMovie, Garage­ Band, Nearpod og fleiri og fleiri auk allra Google­ appanna.“ Within Ingvi Hrannar segir appið bjóða upp á ótrúlegar sögur í 360 gráðu sýndarveruleika. Appið hét áður VRSE en er nú Within með sömu myndböndunum. Hann segir With in ásamt Google Expedi­ tions vera öpp ársins í vinnu sinni þar sem keyptir voru 22 Samsung S6 símar og GearVR sýndarveruleikagleraugu. Google Expeditions Google Expeditions er ætlað skólum, kennurum og nemend­ um þar sem horft er á kyrr­ mynd í 360 gráðum. Með app­ inu er hægt að nota sýndarveru­ leika til að sýna nemendum staði um allan heim. Nemandinn er með sýndar veruleikagleraugun og kennarinn velur og stjórnar myndunum sem birtast. Nem­ endur geta hreyft höfuðið og skoðað sig um. Stjórnandinn fær einnig upplýsingar um staðinn, sem verið er að skoða, á skjáinn sinn til þess að leiða þátttakend­ ur í gegnum „leiðangurinn“. Slack Slack er app sem Ingvi Hrann­ ar er afar hrifinn af. Hann telur líklegt að það komist í fulla notk­ un í vinnu hans á árinu 2017 þar sem allir kennarar verða komnir með iPad. Í Slack eru einkaskila­ boð, hópar og rásir sem vinnu­ staðir geta notað sem sitt eigið „innra samskiptanet“. Það er meira að segja hægt að hringja myndsímtöl og venjuleg símtöl á milli notenda innan vinnustað­ arins. Það sem Ingva Hrafni finnst best við Slack samanborið við forrit á borð við Messenger eða tölvupóst sem vinnutæki er að ef hann fær skilaboð á Slack veit hann að þau eru vinnu­ tengd. Einnig er hægt að slökkva á öllum tilkynningum í Slack á ákveðnum tímum, til dæmis frá því eftir vinnu og til morguns. Bestu skólaöpp síðasta árs Ingvi Hrannar Ómarsson hefur síðustu fjögur ár tekið saman lista yfir þau öpp sem hann telur standa upp úr á árinu. Í ár valdi hann tólf öpp í fjórum flokkum en þrjú þeirra falla undir flokkinn skólastarf. Veraldarvefurinn gefur hverj­ um sem er kost á að nálgast upp­ lýsingar um nánast hvað sem er. Gæði upplýsinganna eru þó æði misjöfn og er ekki allt­ af hægt að treysta því að þær byggist á vísindalegum grunni. Hins vegar eru æ fleiri háskól­ ar farnir að bjóða upp á lengri og skemmri námskeið sem al­ menningur getur sótt á netinu bæði gegn greiðslu og án endur­ gjalds. Þetta eru virtir háskólar um allan heim og kennarar nám­ skeiðanna með þeim allra fær­ ustu á sínu sviði. Á vefsíðunni edx.org er hægt að nálgast netnámskeið skóla á borð við MIT, Harvard og Berke­ ley. Markmiðið er að auka að­ gengi allrar heimsbyggðarinn­ ar að gæðamenntun. Edx var stofnað af Harvard­háskóla og Tækniháskólanum í Massachus­ etts (MIT) árið 2012 en þar er nú að finna netnámskeið frá öllum fremstu háskólum heims. Þau fjalla um tölvunarfræði, við­ skiptafræði, loftslagsbreyting­ ar, menningu og gervigreind svo fátt eitt sé nefnt. Námskeiðin eru í hundraðatali. Hér eru nefnd þrjú ókeypis námskeið sem hægt er að sækja á nýju ári. The Science of Happiness – Berkeley Á námskeiðinu verður gefin inn­ sýn í vísindin að baki því að lifa hamingjusömu og innihaldsríku lífi. Kennd verða grunnatriði í já­ kvæðri sálfræði og nemendum hjálpað að heimfæra þau á eigið líf. Introduction to Computer Science and Programming Using Python og Introduction to Computatonal Thinking and Data Science – MIT Um er að ræða tvö aðskilin nám­ skeið sem tekin eru saman. Þau eru hugsuð fyrir fólk sem hefur engan grunn í tölvunarfræði og forritun og er farið yfir öll helstu grunnatriði. Námskeiðin gefa breiða mynd af faginu en fara síður á dýptina. Hægt er að nýta þau sem upptakt að frekara námi. The Art of Poetry – Boston University Námskeiðið fjallar um ánægjuna sem má hafa af ljóðum og byggir á vísindalegum grunni. Grunnstefið er: Því meira sem þú veist um list­ ir því betur nýtur þú þeirra. Nem­ endum er kennt að lesa, hlusta á og meðtaka ljóð af ólíkum gerðum og frá ólíkum tímabilum. Ókeypis netnámskeið hjá virtum háskólum Keypt voru GearVR sýndarveruleikagleraugu í grunnskólana í Skagafirði. 100% Black 60% Magenta 100% Yello Ritunarnámskeið Stílvopnins á vorönn Stílvopnið býður ráðgjöf vegna ritunar og útgáfu • Að skrifa endurminningar • Skapandi skrif • Greinaskrif • Creative writing workshops • Sérsniðið fyrir hópa: Skrifað og skrafað í Hannesarholti „Það kom mér mest á óvart að hægt væri að ná þessum árangri og sjá þær framfarir sem við blöstu í lok námskeiðsins.” Sigríður Ásdís Snævarr Björg Árnadóttir, rithöfundur og fullorðinsfræðari, kennir námskeið Stílvopnsins Nánari upplýsingar um námskeiðin og skránin u www.stilvopnid.is Nánari upplýsingar um námskeiðin og skráningu eru á: www.stilvopnid.is SKÓlaR & námSKeIð Kynningarblað 6. janúar 20178 0 6 -0 1 -2 0 1 7 0 4 :2 3 F B 0 5 6 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B D F -0 8 E 0 1 B D F -0 7 A 4 1 B D F -0 6 6 8 1 B D F -0 5 2 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 5 6 s _ 5 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.