Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.01.2017, Qupperneq 36

Fréttablaðið - 06.01.2017, Qupperneq 36
Mörgum finnst gott að slökkva þorsta með köldum bjór. Ef vatnskanna og bjór eru á borðum virðist fólk frek- ar taka bjórinn. Er eitthvað verra að væta kverkarn- ar með einum ísköldum? Samkvæmt dönskum prófess- or í læknisfræði, Sören Nielsen, hindrar alkóhól fram- leiðslu á ákveðnu þvagtemprandi hormóni sem stjórnar vökvajafnvægi í nýrum. Þess vegna þarf fólk oft að pissa þegar það drekkur bjór og missir þar af leiðandi mikinn vökva. Betra er þess vegna að grípa vatnskönnuna. Samkvæmt nýlegri breskri könnun er þetta ekki svona einfalt. Bretar segja að bjórinn virki jafn vel við þorsta og vatn, kaffi, te eða gosdrykkir. Rannsókn Bretanna fólst í því að mæla magn þvags frá 72 einstaklingum sem fengu mismunandi drykki. Allir losuðu jafnmikið þvag eftir drykkjuna. Danski prófessorinn var undrandi á niðurstöðunni þar sem etanól í bjór er þvagræsandi og þurrkar því upp líkamann. Niðurstaða bresku rannsóknarinnar þykir þó trúverðug og var birt í hinu virta tímariti Americ- an Journal of Clin ical Nutrition. Nielsen telur að stutt- ur tími hafi verið frá því drykkjan hófst og vökvamæl- ingar hófust. Áhrif frá bjórnum eru lengur að koma fram en frá vatni. Þá var aðeins 4% alkóhól í bjórn- um sem drukkinn var en áfengisprósenta hefur áhrif á nýrun. Það gæti verið góð hugmynd að drekka pilsner við þorsta. Bjór inniheldur góð efni eins og B-vítamín og kalíum sem er fínt fyrir líkamann. Mikið alkóhól hefur hins vegar slæm áhrif á marga þætti líkamans. Er bjór góður við þorsta? Er bjór góður við þorsta? Næringarríkur og hollur morgun­ matur kemur manni langt inn í daginn. saðsöm Eggjakaka 1 bolli brokkólí skorið í bita 2 stór egg þeytt saman 2 msk. fetaostur, mulinn niður ¼ tsk. þurrkað dill 2 sneiðar gróft brauð, ristað Hitið pönnu yfir meðalhita. Spreyið steikingarfeiti á pönnuna eða notið olíu. Hellið brokkólíinu á pönnuna og steikið í þrjár mínútur. Þeytið eggin saman og bland- ið fetaosti og dilli saman við eggin í skál. Hellið blöndunni á pönn- una og steikið í þrjár til fjórar mín- útur. Snúið eggjakökunni og steik- ið í gegn. Berið fram með ristuðu brauði. Hummus á morgunvErðarborðið ¼ bolli hvítar baunir, skolað af 1 msk. saxaður graslaukur 1 msk. sítrónusafi 2 tsk. ólífuolía Grænmeti eftir smekk, til dæmis saxað brokkólí, paprikur og gul- rætur Blandið baunum, graslauk, sítr- ónusafa og olíu í skál. Stappið saman eða maukið í matvinnsluvél Berið fram með ½ bolla af fersku grænmeti, eins og gúrkum, gulrót- um, paprikum og tómötum og góðu grófu brauði. www.health .com Hollt í morgunmat 6 . j a n ú a r 2 0 1 7 F Ö S T U D a G U r6 F ó l k ∙ k y n n i n G a r b l a ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ i ∙ l í F S S T í l l 0 6 -0 1 -2 0 1 7 0 4 :2 3 F B 0 5 6 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B D F -2 B 7 0 1 B D F -2 A 3 4 1 B D F -2 8 F 8 1 B D F -2 7 B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 5 6 s _ 5 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.