Víkurfréttir - 21.01.1993, Qupperneq 6
6
21. JANÚAR 1993
Víkurfráttir
%lnnlánsstofnanir á Suöurnesjum 1992
Innlánsaukning í bönkum og
sparisjóðum á Suðurnesjum var
1,5% fyrir ofan landsmeðaltal á
árinu 1992. Aukningin nam 5,5%
á Suðurnesjum en 4.0% yfir
landið allt.
Tæpir níu milljarðar voru
geymdir í innlánsstofnunum á
Suðurnesjum á árinu 1992. Rétt
tæp 60% voru í Sparisjóðnum
sem jók markaðshlutdeild sína
um 0,69%.
St
Sparnaður rétt fyrir
ofan landsmeðaltal
Sparisjóðurinn var með
hæstu innlánsaukninguna
6,78%, Landsbankinn var með
6,24% aukningu en innlán
drógust saman um 0,46% hjá ís-
landsbanka. I einstökum úti-
búum á Suðurnesjum var inn-
lánsaukningin mest í Lands-
bankanum í Leifsstöð 15,25%, en
næstur kom Sparisjóðurinn í
Garði meðl4,44%.
Útlánaaukningin hjá einstök-
um útibúum er lang mest hjá
Landsbankanum í Keflavík eða
24,90% og útlánahlutfall er
einnig hæst hjá Landsbank-
anum í heild eða 1,41%. Lands-
bankinn lánar því tæplega
helmingi meira en hann fær inn
og þannig hefur það verið hjá
bankanum undanfarin ár. Þó er
útlánaaukningin Landsbankans
á milli ára minnst meðal út-
Iánastofnana á Suðurnesjum og
hefur dregið saman um tæp 6%.
Islandsbanki lánar um þriðjungi
meira en hann fær inn, er með
útlánahlutfall 1.33% en Spari-
sjóðurinn lánar minnst miðað
við innlán eða 0.87%, þ.e. fyrir
hverja krónu sem kemur inn fara
87 aurar út.
-Sparisjóðurinn með mesta innlánsaukningu en
Landsbankinn með hæsta útlánahlutfall
iÚtláu í einstökum afgreiðslum á Suðuntesjum 31.12.1992
Millj. kr. Aukning
SPARISJOÐURINN
Keflavík 4.097 6,30%
Njarövík 288 15,50%
Garöur 99 4,40%
Grindavík 147 4,60%
4.631 6,78%
LANDSBANKINN
Keflavík 382 24,90%
Grindavfk 1.724 1,60%
Sandgeröi 1.216 -7,50%
Leifsstöö 436 -3,30%
3.758 -5,90%
ÍSLANDSBANKI
Keflavík 1.688 -3,60%
Samtals á Suöurnesjum 1.0076,5 (-0,03%)
%lnnlán í einstökum afgreiðslum á Suðurnesjum 31.12.1992
Millj. kr. Aukning
SPARISJOÐURINN
Keflavík 2.732 11,74%
Njarðvík 1.208 6,24%
Garöur 205 14.44%
Grindavík 135 9,76%
Veödeild 960 -6,16%
5.241 6,78%
LANDSBANKINN
Keflavík 533 8,11%
Grindavík 658 3,30%
Sandgeröi 403 -3,36%
Leifsstöö 635 15,25%
2.229 6,24%
ÍSLANDSBANKI
Keflavik 1.311 -0,46%
Samtais á Suöurnesjum 8781 5,5%
stjórar
Það hefur ekki aðeins orðið breyting í sam-
einingarmálum, húsnæðis- og ýmsum fram-
faramálum bankanna á undanförnum árum. Að
sjálfsögðu hafa stjórar komið og farið. A síðasta ári
urðu sviftingar bæði hjá Landsbanka og Sparisjóö.
I Landsbankanum tók við nýr bankastjóri, Hjörvar
Jensson en hann er yfir öllum útibúunum, svo-
kallaður umdæmisstjóri. í Leifsstöðvarútibúinu var
Jóhanna Oskarsdóttir, Keflavíkurmær ráðinn í
„stjórastólinn" og fyrrum útibússtjóri Lands-
bankans og Samvinnubankans í Keflavík, Hjálmar
Stefánsson tók við starfi Jónasar Gestssonar í útibúi
Landsbankans í Sandgerði. í Sparisjóðnum urðu
mannabreytingar um áramótin. Geirmundur Krist-
insson tók þá sæti Tómasar Tómassonar í stöðu
annars Sparisjóðsstjóra og Magnús Ægir Magnússon
tók við aðstoðarsparisjóðsstjórastööunni.
lóliaima Maginís Hjálmar
Ávöxtun ii SPARISJÓÐURINN Tromp 3% 67 ára og eldri 3.24% nnlúnsreikni ÍSLANDSBANKI Sparileið 2 2,65% 3.16% inga 1992 LANDSBANKI Kjörbók 3.00%
Öryggisbók 1. þrep 4,97% 2. þrep 5,22% 3. þrep 5,47% Sparileið 3 5,32% Kjörbók 5,01%
Besti kosturinn 6,80% Sparileið 4 6,26% Landsbók 6,67%
Húsnæðissp. reikn. 7,01% Sparileið 5 6,30% Grunnur 7,00%
Mesto oukningin hjó
konunum
Mesta innlánsaukning i ein-
stökum útibúum féll í skaut
kvennanna sem stjórna í Lands-
bankanum í Leifsstöð, Jóhönnu
Oskarsdóttur en hún skilaði
hæstu ávöxtun á svæðinu,
15,25%. Margrét Lilja Valdi-
marsdóttir í Sparisjóðnum í
Garði, skilaði 14,44% innláns-
aukningu.
• Markaðshlutdeild
Skipting innlóno
25,39%
59,68%
C] Sparisjóðurinn
Landsbankinn
S íslandsbanki
FYRIR 20 ÁRUM...
Bankamál hafa breyst mikið
á undanförnum árum og ára-
tugum, bæði í tæknimálum og
öðrum málum, s.s. sam-
einingarmálum. En hvernig
var vægi þessara stofnana
fyrir 20 árum síðan eða árið
1973 og svo 1983:
Markaðshlutdeild: 1973 1983
Sparisjóðurinn 43% 55,1%
Landsbankinn 15,1% 20,4%
Útvegsbankinn 15,4% 12,5%
Verslunarbankinn 6,8% 6,1%
Samvinnubankinn 19,47o 5,9%
Síðasta ár, 1992 var fyrsta
heila árið eftir sameiningar
stofnana á Suðurnesjum.
Verslunarbankinn og Útvegs-
bankinn sameinuðust 1990 og
Landsbankinn yfirtók Sam-
vinnubankann 1991. Athygli
vekur hér til hliðar hvað Sam-
vinnubankinn hrapaði en Iang
stærstur hluti viðskipta hans
sem töpuðust færðust yfir til
Sparisjóðsins.