Víkurfréttir - 21.01.1993, Qupperneq 8
8
21. JANÚAR 1993
Vikurfréttir
grín - gagnrýnl m
■ vangaveltur ■
umsjón: emil páll*
Fiskar hann...
Það hefur oft verið sagt að
opinberar skrár séu ekki alltaf
réttar, því kerfiskarlarnir eigi
erfitt með að fylgjast með. Eitt
dæmi þar um kemur frarn í
skipaskrá íslenska sjómanna-
almanaksins fyrir árið 1993 sem
nýlega er komin út. Þar er greint
frá því að í fiskiskipaflota Kefl-
víkinga sé m.a. 10 tonna fiski-
bátur Guðborg KE 88 sem á að
vera í eigu Studeos sf., Keflav'ík.
Annars staðar í sömu bók kemur
fram að báturinn hafi ekki verið
á veiðurn undanfarin 2 ár.
...ó brennunni?
Það er að vísu ekki furða, því
eftir að leki kom að bátnum í
Keflavíkurhöfn í janúar 1991 var
hann tekinn upp í Njarð-
víkurslipp og síðan brenndur á
áramótabrennu ofan við Innri-
Njarðvík á gamlárskvöld sama
ár. Samkvæmt skránni hefur
hann þó ekki enn verið tekinn af
skrá og með öllu óvíst hvenær
það verður, nemat kerfiskar-
larnir eigi von á að hann veiði
mikið orðinn að ösku.
Sandgerðisdraugur...
I óveðrinu á dögunum virðist
eitt sveitarfélag á Suðurnesjum
hafa farið ver út úr veðurhæð og
ófærð en önnur. Sveitarfélag
þetta er Sandgerði. Sem dæmi
um sérstöðu sveitarfélagsins, þá
var ófærðin í nágrenni Leifs-
stöðvar nánast eingöngu á því
svæði er tilheyrði landsvæði
Sandgerðis og þar var veð-
urhæðin einnig mest.
...í veðrinu?
Ef þéttbýliskjarnarnir á Suð-
urnesjum eru skoðaðir sér-
staklega, gerist það sama og
með nágrenni Leifsstöðvar. I
Sandgerði var ófærðin mest og
þar snjóaði mest. Svo mikið að
grafa þurfti sig út úr sumum
húsum og fjallháir ruðningar
urðu meðfram götum. Kefl-
víkingar munu hinsvegar hafa
sloppið best hvað ófærð varðar,
því þar skóf minnst og einnig
hélst í hendur að þar er best
mokað meðal sveitarfélaganna
á Suðurnesjum.
Af hverju til
Reykjavíkur?
I óveðrinu á dögunum, er
flugið stöðvaðist var flug-
farþegum svo hundruðum
skiptir ekið á hótel í Reykjavík.
Virðist sem Flugleiðir viti ekki
að á Suðurnesjum eru hótel sem
vel hefði mátt setja fólkið á,
a.m.k. hluta þess. Það skiptir
kannski engu máli fyrir Flug-
leiði þó það kosti meira að aka
fólkinu til Reykjavíkur, það
bætist bara smá vegis við það tap
sem fyrir er.
Kristbergssynir
í Höfnum
Stuttmyndin „Oskir Skara"
sem Ríkissjónvarpið sýndi á
sunnudagskvöld var að hluta til
tekin í Höfnum. A.m.k. voru
útiatriðin við bryggjuna teknar
þar. Þá komu tveir Suður-
nesjamenn þar við sögu, bræð-
urnir ]ens og Jóhannes Krist-
björnssynir úr Njarðvík.
Stjórnin baðst
afsökunar...
Starfsmenn Sparisjóðsins í
Keflavík urðu niargir hverjir
mjög ósáttir við það þegar skip-
að var í stöðu aðstoðar-
sparisjóðsstjóra án þess að aug-
lýsa stöðuna áður a.m.k. innan
Sparisjóðsins. Skrifaöi Starfs-
mannafélagið stjórn sjóðsins
bréf þar sem kvartað var yfir
þessu og baðst stjórnin af-
sökunar á að hafa ekki auglýst
stöðuna með þessum hætti.
... en notuðu ekki
tœkifœrið...
Margir starfsmanna urðu auk
þess sárir og reiðir yfir að
stjórnin skyldi ekki nota tæki-
færið og framfylgja þeirri stefnu
sem rekin hefur verið í sjóðnum,
að spara á öllum sviðum og ráða
ekki í stöður sem losna og spara
þannig á toppnum. Hefðu þeir
heldur viljað að staða að-
stoðarsparisjóðsstjóra hefði ver-
ið lögð niður og þar með yfir-
byggingin minnkuð.
... eða var það pólitíkin
sem réði?
Þá finnst mörgum starfs-
mönnum það skrítað að sá sem
ráðinn var í stöðuna, skuli vera
sá sami og virtist fyrr á árinu
vera í fýlu a.m.k. tvisvar er hann
sótti um lausar stöður bæði hjá
Hitaveitunni og Sjúkrahúsinu.
Það er því spurning hvort þessi
stöðuveiting hafi verið verðlaun
fyrir það, eða var hún pólitísk
ráðning?
Þrifalegur rússi?
Nú í vikunni kom enn einn
rússinn með fisk til löndunar á
Suðurnesjum. Að þessu sinni
kom skip til Keflavíkur og nú
bar svo við að skipið er þrifalegt
að sjá, a.m.k. við fyrstu sýn.
Höfðu menn á orðið er skipið
kom að landi að ótrúlegt væri að
þetta væri frá sömu þjóð og
rottuskipin sem komið hafa
hingað til.
Biskup
vísiterar
Njarðvík
Biskup Islands herra
Olafur Skúlason, vísiterar í
næstu viku Njarðvíkur-
prestakall. Mun hann heim-
sækja fleiri sóknir á Suður-
nesjum næstu vikurnar, en
yfirreiðina hóf hann í
Grindavík í síðustu viku.
Heimsækir hann Njarð-
vík á miðvikudag. Mun
hann koma við í Grunn-
skólanum, hitta ferm-
ingarbörnin, leikskólabörn
og þá öldruöu. Að lokum
fundar hann síðan með
sóknarnefndum. Nánar er
fjallað um tímasetningu á
heimsóknum þessurn undir
messutilkynningum.
I------. _ _-----I
Þorrinn byrjar
22. jan. 1993 kl. 15:00
HJÁOKKUR
Frábærir þorrabakkar kr. 1.050,-
Þorraveislur:
1-10 manns.......kr. 1.750 pr. mann
10-25 manns......kr. 1.650 pr. mann
25-100 manns.....kr. 1.580 pr. mann
100-1000 manns...kr. 1.490 pr. mann
Gerum föst tilboö í veislur af öllum
geröum og stæröum, meö mat og
þjónustu.
GETUM ENN BÆTT VIÐ OKKUR
FERMINGARVEISLUM.
Pantið tímanlega í síma eða á
staðnum.
Ykkar einlægur,
Axel Jónsson
hja -Aw
Iðavöllum 7 Sími 14797
Viðskiptavinir
Sparisjóðsins
fá aftur
vinninginn
HUSNÆÐIS
sparnaðarreikningur
gaf 7.01% raunávöxtun
BESTI
KOSTURINN
24 MAN. SPARIREIKNINGUR
gaf 6.8% raunávöxtun
HÆSTA AVOXTUN Á
INNLÁNSREIKNINGI
Hæsta ávöxtun á innlánsreikningi hjá bönkum
og sparisjóðum árið 1992 hefur enn og aftur
komið í hlut þeirra sem skipta við sparisjóðina.
Enn einu sinni hefur reynslan sýnt að þeir sem vilja
ávaxta sparifé á innlánsreikningum geta borið mest úr
býtum hjá Sparisjóðnum. Hafðu þetta í huga á næstu
vikum og mánuðum.
5Pf\RI5JÓÐURIflM
gér utft' situ&’