Víkurfréttir - 21.01.1993, Blaðsíða 11
Yíkurfréttir
21. JANUAR 1993
11
kipstjóri og útgerðarmaður á Happasæl
Mynci: hbb
„Nii em mörg skip orðin ijfir-
byggð og starfaðstaða sjó-
mannsins ergóð. Skipstjórinn
hefur hins vegar einangrast og
horfir út um bniargluggann á
bert stálið. Einu skiptin sem
skipstjórinn sér mannveru er
þegar kokkurinn kemur og
færir honum kaffið"
breyst síðan kvótakerfið tók
við?
„I dag reynum við að gera
sem mestan pening úr þeim
afla sem við fáum. I dag er
stífara róið. Við erum alltaf á
sjó og höfum verið undanfarin
ár. Það er þá bara aftaka veður
sem verður til þess að stöðva
okkur".
Sem dæmi um stífa sjósókn
nefnir Guðmundur Rúnar
febrúarmánuð í fyrra. Þá var
mjög mikil ótíð, en í þeim
mánuði fengu strákarnir á
Happasæl KE um 250 tonn.
„Við vorum ekki einn einasta
virkan dag í landi".
-Fiskmarkaðir?
„Eg landa mestu af mínum
afla á fiskmarkaði og þar eru
það gæði sem ráða verðinu".
Fari Rússafiskur
til helv...
-Þú talar um gæði. Hvað
gerist þá þegar menn eru farnir
að leyfa allan þennan inn-
flutning á Rússafiski?
„Uss, fari það í helvíti. Það
er hlutur sem á eftir að klóra
okkur illa, ég er sannfærður
um það að þetta á eftir að
koma okkur illa á erlendum
mörkuðum og þetta verður til
þess að útgerð leggst end-
anlega niður á Suðurnesjum
með tilkomu þessa Rússafisks.
Það minnkar áhuginn fyrir því
að byggja þetta upp aftur. Það
skal enginn segja mér það að
ekki sé hægt að gera út bát
héðan frá Suðurnesjum ef
hann er á þokkalegu verði.
Það gerir enginn eitt eða neitt
ef það er svo dýrt að ekki er
hægt að ráða við það.
Við tökum eftir því þegar
við siglum í erlendar hafnir að
við erum á mjög snyrtilegum
skipum. Við fáum heil-
brigðiseftirlitið um borð til að
fá vottorð um það að ekki séu
rottur um borð. Ef það fyndust
svona rottur um borð hjá
okkur eins og í þessum Rúss-
nesku togurum, fengjum við
ekki einu sinni að vera við
bryggju. Það er ég alveg
sannfærður um. Það er alveg
furðulegt að þessi Rússnesku
skip fái að vera við bryggju
þegar þessir vankantar hafa
fundist á þeim".
Síminn orðinn
þarfasti þjónninn
-Svo við snúum okkur að
öðrum málum. Hvernig er að
vera bæði útgerðarmaður og
skipstjóri í senn?
„Ég myndi halda að það
væri mjög gott. Það fer á-
gætlega á því að út-
gerðarmaðurinn sé um borð í
skipinu og svona einingu eins
og hjá mér, þar sem bara er um
að ræða eitt skip og litla fisk-
verkun í landi. Eg læt strákana
mína um hana en skipti mér að
sjálfsögðu af í gegnum sím-
ann. Það var mikil bylting
þegar farsímarnir komu í bát-
ana. Það er allt gert orðið í
gegnum símann. Ég fer ekki
orðið í Reykjavík. Systir mín
fékk hjartaáfall í byrjun des-
ember. Ég er ekki farinn að
heimsækja hana ennþá. Hún
er sem betur fer komin á fætur
og búin að heimsækja mig. En
ég fer aldrei í Reykjavík, aldrei.
Ég er mikill Suðurnesja-
maður".
Guðmundur Rúnar Hall-
grímsson átti Happasæl KE
með bróður sínum Sigurði þar
til fyrir rúmum þremur árum
að Guðmundur Rúnar keypti
bróðir sinn út. Síðan þá hefur
mest allur aflinn af Happasæl
verið seldur á markaði, utan
lítils hluta sem er unninn í
eigin verkun".
Borga mína skatta
- Nú hefur þú verið skatta-
kóngur undanfarin ár. Hvernig
er að vera á þeirn toppi?
„Ég hef nú ekki fundið fyrir
því að ég hafi þurft að bera
einhverja kórónu. Sem betur
fer hef ég haft ráð á að borga
mína skatta. Að sjálfsögðu eru
þetta mjög villandi upp-
lýsingar um skatta ein-
staklings, þar sem útgerðin er
öll á mínu nafni".
-Að endingu. Er eitthvað
minnisstætt frá áralangri sjó-
sókn þinni?
„Það er ekkert eitt minn-
isstæðara en annað. Ég hef
aldrei lent í neinum vand-
ræðum á sjó. Ég verð að segja
það að ég er öruggari með mig
og nu'na á sjó, heldur en í bif-
reið á fasta landi. Ég hef aldrei
verið hræddur við að halda á
sjó," sagði Guðmundur Rúnar
Hallgrímsson, útgerðarmaður
og skipstjóri að endingu.
happasæll
♦ Áhöfn Happasæls KE sl. sunnudag ásamt skipstjóranum lengst
til vinstri.
Mynd: hbb
Þetta er auglýsing fyrir ykkur
Munið nú eftir körlunum ykkar á
morgun. Þetta er þeirra dagur,
Bóndadagurinn.
Opið alla daga til kl. 21:00,
nema sunnudag
kl. 13:00-18:00
BLÓMABÚÐIN
KOSY i
Hafnargötu 6 - Sími 14722
ialii:
Til
örorkubótaþega
Samkvæmt samþykkt bæjarstjórnar Kefla-
víkur hefur veriö ákveöið aö veita tekjulitlum
örorkubótaþegum meö 65% örorkumat eöa
minna afslátt af fasteignaskatti fyrir áriö
1993.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á bæjar-
skrifstofunni. Upplýsingar í síma 16700.
Bæjarstjórinn í Keflavík,
Ellert Eiríksson.