Víkurfréttir - 21.01.1993, Blaðsíða 16
16
21. JANÚAR 1993
Víkurfréttir
BÚRFELL
♦ Búrfellið í Njarðvíkurhöfn á mánudag. Þar hefur Bergþór búið að
undanförnu og undirbúið ferð bátsins til Svíþjóðar, þar sem gera átti
úr honum skútu. Þau mál virðast nú óljós. Ljósm.: epj.
Hið versta
All undarlegt mál er komið
upp varðandi bát sem liggur við
bryggju í Njarðvíkurhöfn og
búið er að úrelda. Báturinn hét
hér áður fyrr Búrfell og var
gerður út frá Keflavík. Er útgerð
hans keypti núverandi Erling
KE frá Samherja á Akureyri var
Búrfellið sett upp í kaupin til
úreldingar er þeir Sam-
herjamenn fengju nýjan frysti-
togara sem kom til landsins fyrir
skemmstu.
Á síðasta sumri kom hins-
vegar upp áhugi hjá einum
frægasta skútumanni lslend-
mga, Bergþóri Hávarðarsyni, að
breyta Búrfellinu í skútu. Varð
það að samkomulagi milli Þor-
steins Baldvinssonar hjá Sam-
herja og Þorsteins Erlingssonar
hjá Saltveri hf. í Njarðvík sem
átti skipið áður að gefa Bergþóri
bátinn gegn því að hann yrði
fjarlægður af skipaskrá og frá
landinu. Hefur Bergþór búið að
undanförnu i bátnum við
bryggju í Njarðvík og unnið að
því að gera bátinn gangfæran á
ný, svo það tækist.
Einhver dráttur hefur orðið á
því að báturinn færi frá íslandi.
Er Samherji fékk nýja togarann
var Búrfellið úrelt og jafnframt
samið við Dráttarskip hf. á
Siglufirði um að báturinn yrði
Fasteignagjöld 1993
Lokiö er álagningu fasteignagjalda í Keflavík fyrir áriö 1993 og álagningarseölar
sendir út. Álagningarreglur eru óbreyttar frá fyrra ári en gjalddögum hefur veriö
fjölgaö og eru nú sjö.
Gjalddagar eru 20. janúar, 20. febrúar, 20. mars, 20. apríl, 20. maí, 20. júní og 20.
júlí. Eindagi er 20 dögum eftir gjalddaga.
Eftirfarandi reglur voru notaöar:
íbúöarhúsnæöi:
Fasteignaskattur...... álagn. 0,36% af álagningarstofni og lóöarmati
Vatnsgjald............ álagn. 0,13% af álagningarstofni og lóðarmati
Holræsagjald.......... álagn. 0,13% af fasteignamati og lóðarmati
Sorppokagjald......... álagn. 2.180.- á ári á íbúö.
Atvinnuhúsnæði:
Fasteignaskattur...... álagn. 0,90% af álagningarstofni og lóðarmati
Vatnsgjald............ álagn. 0,13% af álagningarstofni og lóöarmati
Holræsagjald..........álagn. 0,13% af fasteignamati og lóðarmati
Sorppokagjald.........álagn. 2.180.- á fasteignanúmer á ári
Afsláttur af fasteignaskatti íbúöarhúsnæöis til eigin afnota, hjá elli- og ör-
orkulífeyrisþegum hefur veriö ákveöinn sem hér segir:
A. Ellilífeyrisþegar fæddir áriö 1922 eöa fyrr - lækkun allt aö kr. 19.000,-
B. Ellilífeyrisþegar fæddir áriö 1923, 1924 og 1925 - lækkun allt aö kr. 9.500,-
C. Sjómanna-ellilífeyrisþegar kr. 9.500,-
D. Örorkulífeyrisþegar 75% örorkumat lækkun allt aö kr. 19.000,-
Lækkunin hefur þegar veriö framkvæmd. Gjaldheimta Suöurnesja er einn-
heimtuaöili og innheimtir meö gíróseðlum. Allar nánari upplýsingar eru veittar á
skrifstofu Keflavíkurbæjar, sími 16700.
Bæjarstjórinn í Kefiavík,
Eliert Eiríksson.
mál
dreginn til Irlands í brotajárn.
Þessu hefur Bergþór ekki viljað
una og segir m.a. að félagi hans
í Svíþjóð sé tilbúinn til að skrá
skipið á sitt nafn og hafi hann
því hug á að sigla því til Sví-
þjóðar undir sænsku flaggi þeg-
ar það sé tilbúið til þess. Þar
verði brevtingum lokið á skip-
inu, sem væntanlegri skútu.
„Þetta er hið versta mál, ég er
reglulega £ vondu máli þar sem
það togast á hvort ég láti Dráti-
arskip um að fjarlægja bátinn og
það að Bergþór vill halda hon-
um," sagði Þorsteinn Bald-
vinsson í samtali við blaðið.
Afmæli
Anna S. Guðmundsdóttir er
18 ára í dag. Hún tekur á móti
pökkum í F.S. í dag, mjúkir
pakkar væru vel þegnir.
Litlu frænkurnar.
Frímann Þórhallsson verður
30 ára 24. janúar. Það væri vel
þegið að gestir færðu honum
veiðigræjur, þar sem að hann
tapaði mikið af þeim síðasta
sumar.
Vinir
• Vikm fréttir |
• " fyrir •
: kröfuharða •
• lesendur! •