Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.03.1995, Side 6

Víkurfréttir - 16.03.1995, Side 6
6 VlffURPRÉTTIR Stærsta frétta- og auglýsingablaðið á Suðumesjum Útgefandi: Víkurfréttir hf. Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar: Vallargötu 15, símar 14717, 15717. Box 125,230 Keflavík. Póstfax nr. 12777. Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, heimas. 13707, bílas. 985-33717. Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, heimas. 27064, bflas. 985-42917. Auglýsingastjóri: Sigríður Gunnarsdóttir. Víkurfréttum er dreift ókeypis um öll Suðumes. Fréttaþjónusta fyrir Stöð 2 og Bylgjuna. Aðili að Samtökum bæja- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóöritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimildar sé getið. Útlit og umbrot: Víkurfréttir hf. Filmuvinna og prentun: Stapaprent hf., Njarðvík Þakkir Innilegar þakkir sencli ég þeim fjölmörgu vinum og œttingjum sem heiðruðu mig með nœrveru sinni, blóm- um, gjöfum og skeytum á 60 ára afmœlisdegi mínum og gerðu mér daginn ógleymanlegan. Lifið heil Agúst H. Mattíasson Grindavík Verslunarhúsnæði til leigu 220 fermetra verslunarhúsnæði við Víkurbraut 60 er til leigu. Upplýsingar veittar á skrifstofum Kaupfélags Suðurnesja í Keflavík. Rair2 BAR*RESTAURANT*CAFFE Hafnorgötu 19a • Siml 14601 Helgln á Ránni Trúbadorinn Eric qítarsnillinqur Hljómsveitin Grænir vinir föstudaqs- oq lauqardaqskvöld Karaoke fyrir alla á fimmtud. kl. 2Z-01 föstudaqskvöld kl. 22:00 Flugeldhús / Snjópuðningsdeild ÍIL Hilmar Sölvason og Co„ Kynnir: Kjartan Már Kjartansson MENU Rjómalöquð sperqilkálsúpa Jurtakryddaður ærvöóvi m^rænmeti, kartöflum oq sósu Ananas triffle Verðkt 1.800. -ptmann BOBÐ4P4\TAMIR í SÍMA 14601 AJ^LJJJL \7UL,LL<n\'UXnLí 16. MARS 1995 BEDID EFTIR LÖNDUN Hroguatnkn cr hafin nð fullu á Suðumesjum og eru vinna við fryst- ingti í mörgum frystihúsum allan sólarhringinn. Löndun t hrogna- tökii tckur lengri ttma en t.d. löndun til frystingar eða bræðslu. Hér er það ORN KE 13 sem liggur við bryggju í Keflavíkurhöfn og bíður löndunar í Helguvtk. VF-mynd/Hilmar Bragi. Olafi Jónssyni CK breytt fyrir /0 m.kr, Útgerðarmenn í Miðnesi hf. stefna að því að tvöfalda aflaverðmætið á úthafs- karfaveiðum með því að setja frystitæki í ísfisktogar- ann Ólaf Jónsson GK 404. Togarinn er nú í slipp og gert er ráð fyrir því að verk- inu ljúki í lok apríl. Aætlað- ur kostnaður vegna þessara breytinga er um 70 milljónir króna. Sett verða Ijögur frystitæki í togarann og er frystigeta þeirra er 28 tonn á sólarhring. Þá fjölgar í á- höfn um 8 manns en áður voru 16 ntanns í áhöfn á Ólafi Jónssyni. Breyting hefur staðið til allt frá árinu 1990 þegar togarinn fór til Póllands í viðgerð. Þá var lesturn breytt nteð tilliti til frystingar en endanlegri breytingu var síðan frestað þar til nú. Af sílikoni Ott öðrum furðum Ég las í blaði í vikunni, að með því að beina röntgengeisl- um gegnum sílikon mætti fá betri og skarpari myndir og nota þó minni geislun. Ekki skal ég efa þetta enda silikonið til margra liluta nytsamlegt. Tölvumenn kunna væntanlega vel að meta notagildi þess, en flestir munu kannast við Sil- icon Valley í Bandaríkjunum. Öllu fleiri er þó þeir, sem fyrst láta liugann reika til bað- strandarvarðanna fræknu þegar minnst er á silikonið, enda býst ég við því að stúlkurnar þar gætu hæglega sleppt kútunum, sem þær eru víst oftast með í bandi, því flotmagnið í öllu silikoninu hlýtur að nægja til þess að halda þeint ofansjávar. Ég tek reyndar sérstaklega fram að ég á þessum sjónvarpsþætti, Bráðavaktinni og alls slags væmnum tjölskylduþáttum það að þakka, að ég eyði nær aldrei tíma mínum í sjónvarpsgláp, heldur hef tíma í allt annað og skemmtilegra. Silikonið tengist því óánægju ntanna með útlitið, umfram allt annað, einnig er til að menn bæti sér upp ákveðna vankanta nteð hjálp tækninnar. Japanskt ungmenni, sem vantaði ein- hverja sentimetra upp á lág- markshæð sumo glímumanna lét t.d. setja silikonpúða undir höfuðleðrið á sér. Ekki nóg með, að þetta geti gert ntann háan og myndarlegan, heldur getur þetta auðveldað ntönnum að fá hátt og gáfulegt enni. Ný tækni Mér hefur reyndar kontið í hug, að hér á körfuboltasvæð- inu gæti orðið verulegur gróða- vegur fyrir sjúkrahúsið að græða styrkta sflikonpúða undir iljarnar á áhugasömum körfu- boltamönnum. Ætla má, að auka mætti meðalhæðina í u.þ.b. tvo metra og fá auk þess fram firna stökkkraft. Blessunarlega hefur mér vit- anlega ekki enn hafist silikon- væðing á pólitíkusum, en spurning hvort lýtalæknar eru ekki farnir að bjóða fram þjón- ustu sína. A.m.k. eru litagrein- ar, útlitshönnuðir og sérfræð- ingar um framkomu og talsmáta orðnir nauðsynlegur liluti af sirkusnunt kringum pólitíkina. Ekki má heldur gleyma myndasmiðunum, sem flengjast þessa dagana með frambjóðendur(m.a. undirritað- an) til að reyna að ná af þeim viðurkvæmilegum myndum til þess að þeir megi betur snúa kjósendum til rétts vegar. Gaddfreðin bros Við félagamir fórum einmitt í slíka myndaferð unt kjördænt- ið og er útkomunnar að vænta næstu daga. Sjá hefur mátt síð- ustu daga myndir af öðrum frambjóðendum standandi í snjónum með frostherkjur og flaksandi hár. Ég tilkynnti enda Guðmundi Arna það eftir nokkra veru f frostinu, að ég mundi berjast fyrir því að næstu Alþingiskosningar yrðu að hausti og ég held að hann hafi ekki verið verulega ósam- mála akkurat þá. En öll él stytt- ir upp um síðir og eftir að hafa skolfið úr mér mesta hrollinn undir sæng unt kvöldið gat ég raulað þetta yfir drengjunum mínum. Þið vitið, það verður brátt kosið, af vandvirkni æfa nienn brosið sem flókið er þó í frosti og snjó með andlitið freðið og frosið. Við kappamir fræknir og fríðir fukum um hóla og hlíðir, en loksins kom húmið, ég hélt beint í rúmið, og brosið mitt bráðnaði um síðir. Með kuldakveðju Hrafnkell ÓSKARSSON SKRIFAR

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.