Víkurfréttir - 05.06.1997, Blaðsíða 1
Keflavíkurþjálfarnir stóð við stóru orðin:
12stigog
hárið faift!
fqrir vaxandi fólh
5# HSPRRISJðOURIHH
I KEFLAVIK
Golfvöllurinn í Leim er án efa
einn besti golfvöllur landsins
og verður betri með hverju
árinu sem líður. Ný flöt var
útbúin á vellinum á dögunum.
Við segjum nánar frá golfvall-
arframkvæmdum og birtum
fleiri myndir í blaðinu í dag.
Súlu-Sæla
tókst vel!
Súlu-sæla sem haldin var í
Reykjanesbæ um síðustu
helgi þótti takast vel. Margir
mættu á hátíðarhöldin, enda
margt í boði. Myndin hér að
neðan er frá hátíðarhöldunum.
Fleiri myndir er að ftnna inni t'
blaðinu í dag.
Líí og fjön við
Husasmiöjuna
Húsasmiðjuhlaupið fór fram
um síðustu helgi. Fólk á öll-
um aldri tók þátt í hlaupinu.
Þegar hlaupinu var lokið var
ýmislegt til skemmtunar við
Húsasmiðjuna við Smiðju-
velli. Myndasmiður blaðsins
var á svæðinu og fleiri myndir
eru inni í blaðinu í dag.
Keflavíkur-
verktakar
í fjörtíu ár!
Keflavíkurverktakar fögnuðu
fjörtíu ára afmæli með glæsi-
legri veislu í íþróttahúsi
Keflavíkur á dögunum. Við
birtum myndir úr veislunni í
blaðinu í dag.
„Næst passa ég mig á því að hafa lokaðan munninn,11 sagði Gunnar Oddsson annar
þjálfari Keflavíkur þegar hann mætti í stólinn hjá Hársnyrtingu Harðar til að standa
við stóru orðin. Gunnar Oddsson og Sigurður Björgvinsson, þjálfarar meistaraflokks
Keflavíkur lýstu því yfir, óopinberlega að vísu, að ef liðið næði tólf stigum áður en
deildin færi í frí þá yrði hárið látið fjúka. Strákarnir í liðinu voru staðráðnir í því að
láta hár þjálfarana fara sem fvrst og gerðu sér lítið fvrir og tryggðu stigin tólf strax í
fvrstu fjórum leikjunum.
Gunnar Oddsson mætti í rakarastólinn hjá Hársnyrtingu Harðar á föstudaginn og það
kom í lilut Báru Skúladóttur að skella rakvélinni í höfuðið á þjálfaranum og raka hárið
af. Það var hins vegar Lilja Sigurðardóttir á Baldursgötunni sem rakaði hárið af
Sigurði Björgvinssvni. „Hún hefur séð um hárið á mér frá því ég fermdist og engin
önnur fær að fikta í því með skærum eða rakvél,“ sagði Sigurður við blaðið.
Föstudagun
til fjár
í verslunum
Fjölmargar verslanir í Reykja-
nesbæ taka þátt í Föstudegi til
fjár. Verslanir bjóða tilboð á
ýmsum vörum á morgun
föstudag og einnig gilda til-
boðin á laugardag í nokkmm
búðum.