Víkurfréttir - 05.06.1997, Side 8
Eftirlifandi stofendur Keflavíkurverktaka voru heiðradir á hátíðinni og eru frá
vinstri: Þorbergur Friðriksson, Sigurbjörn fíeynir Eiríksson, Jón Ásmundsson,
Guðrún Stefánsdóttir sem tók við viðurkenningunni fyrir hönd eiginmanns
síns Þórmars Guðjónssonar, IngvarJóhannsson, Guðbjörn Guðmundsson en
með honum var sonur hans, Björn H. Guðbjörnsson, Jóhann fí. Benediktsson,
Skúli Ásgeirsson sem tók við fyrir hönd Ásgeirs Skúlasonar, Friðrik Ben.
Þorbjörnsson, Jakob Árnason, Áki Granz og Eyjólfur Andrésson.
Sexhundruð manna afmælisveisla í Keflavík:
Keflaviurverktakar 40 ára
Haukur Ingason skrifstofustjóri Keflavíkurverktaka sem sá um
skipulagningu afmælishátíðarinnar á góðri stundu með
Jóhanni Sigurðarsyni, leikara og veislustjóra, Eddu Heiðrúnu
Bachmann, söngkonu og Jóhanni G. Jóhannssyni.
A milli fimm og sexhundruð manns sóttu afmælishátíðina.
Salurinn var glæsilega skreyttur eins og sjá má.
AxelJónsson vert skenkir afmælisgestum, f.v. Jakob Arnason stjórnarfor-
maóur KV, Tómas Tómasson, sem vargestur, Jón H. Jónsson, fram-
kvæmdastjóri KV, Ingvi Þorsteinsson náttórufræðingur, Ingvar Jóhannsson,
framkvæmdastjóri JPK og Sigurður Halldórsson, verkfræðingur...
Myndarlegar og hressar spúsur á afmælishátíð.
Karlakór Keflavíkur söng nokkur lög við góðar undirtekir.
Keflavíkurverktakar
fögnuðu 40 ára afmæli sínu
nieð veglegu afmælishófi í
íþróttahúsi Keflavíkur 24.
maí sl.
A milli fimm og sexhundr-
uð manns mættu í hófíð og
nutu góðrar skemmtunar
og veiga í mat og drvkk og
tók Haukur Ingi Hauksson,
Ijósmvndari meðfylgjandi
myndir við þetta tækifæri.
Að Keflavíkurverktökum
standa fjögur verktakafélög
og þar hafa hundruð
manna starfað í fjóra
áratugi. Saga fyrirtækis
hófst 9. apríl 1957 en á
aðalfundi Iðnaðarmanna-
félags Keflavíkur var kosin
fímm manna nefnd til að
undirbúa stofnun
verktakafélaga í 4 iðn-
greinum en þegar hafði
verið stofnað eitt, Raf-
magnsverktakar.
Nefndin starfaði hratt og
vel á og næsta fundi í félag-
inu 15. apríl skilaði hún
áliti og var þar ákveðið að
stofna 4 til viðbótar. Það
var gert í aprflmánuði og
þá urðu til Bygginga-
verktakar (BVK), Járn- og
pípulagningaverktakar
(JPK), Málaraverktakar
(MVK) og Múrarafélag
Keflavíkur, sem starfaði
stutt vegna verkefnalevsis.
Þegar þessi félög höfðu
starfað um nokkurn tíma,
aðallega á Kefla\íkur-
flugvelli, stofnuðu þau
Samvinnunefnd eða
Keflavíkurverktaka og
hófu rekstur á sameigin-
legri skrifstofu og hefur sú
skipan mála haldist til
þessa dags.
Samvinna þessara fjögurra
hlutafélaga hefur gengið vel
í 40 ár og starfseinin aukist
með hverju ári.
8
Víkurfréttir