Víkurfréttir - 19.06.1997, Síða 8
Þjóðhátíðarstemmning á Snðnrnesjnm
vigdis Johannsdottir for med
hlutverk Fjallkonunnar á 17. júní
Ad nedan má sjá þann mikla
fjölda sem varí gardinum.
Til vinstri erþað tónlistarfólk úr
Njarðvík sem spilar.
íbúar Reykjanesbæjar nutu ein-
stakrar veðurblíðu á hátíðarhöld-
uni á þjóðhátíðardaginn 17. júní
og sótti fjöldi fólks hinar ýmsu
uppákomur í tilefni dagsins.
Um morgunin lék 7. ilokkur
drengja knattspvrnuleik á
Njarðvíkurvelli og haldið var
púttmót fyrir alla aldurshópa á
púttvellinum í Njarðvík. Farið var
í víðavangshlaup við
Njarðvíkurvöll.
Hátíðarmessur voru í öllum
kirkjum og farið var í skrúð-
göngur frá Keflavíkur- og
Njarðvíkurkirkju.
Mikill fjöldi var samankominn í
skrúðgarðinum í Keflavík |)ar
sem boðið var upp á einstaklega
vel heppnaða dagsskrá. Tómas
Tómasson dró þjóðfánann að
húni á stærstu fánastöng á land-
inu en hún er 17 metrar að hæð.
Karlakór Keflavíkur söng
þjóðsöng Islendinga og Guðríður
Halldórsdóttir setti hátíðina.
Fjallkona í ár var Vigdís
JóhannsdóttirogAlbert K.
Sanders flutti ræðu dagsins. Sossa
Björnsdóttir var útnefnd
Listamaður Reykjanesbæjar 1997
og atlienti Jónína Sanders for-
maður bæjarráðs henni viðurken-
ninguna. Nokkrir listamcnn úr
höfuðborginni mættu á staðinn og
fór þar fremstur í flokki Skari
Skrípó og Maggi Scheving og féla-
gar hans úr Latabæ sem gerðu
mikla lukku hjá vngri gestunum.
Dagskráinni í skrúðgarðinum
lauk með söngi Páls Oskars.
Boðið var upp á ýmiskonar leik-
tæki í skrúðgarðinum á meðan á
dagskránni stóð sem vakti mikla
lukku. Má þar nefna
Hoppukastala, tvær tevgjurólur
og Go-cart bíla.
Um kvöldið var að venju
kvöldskemmtun á torginu við
Tjarnargötu þar sem m.a.
Léttsveit tónlistarskólana í
bænum lék nokkur lög og efnileg-
ir söngvarar úr bæjarfélaginu
tóku lagið. Töframaðurinn Pétur
Pókus leysi sig úr spennitrevju
hangandi úr krana og Einar
Júlíusson tók nokkur lög.
Spaugstofufélagar komu fram og
lauk dagskránni á tónleikum
hljómsveitarinnar Reggie on Ice.
í Stapanum var boðið upp á
dansleik fvrir fjölskylduna þar
sem hljómsveit Birgis
Gunnlaugssonar lék fyrir dansi.
Harmoníkuball var í Selinu fvrir
eldri borgara. Kaffisala var
víðsvegar um daginn í boði
Körfuknattleiksdeildar Kefla-
\ íkur, Kvenfélags Njarðvíkur og
Kvenfélags Keffavíkur.
Safnhúsin í Innri-Njarðvík og
Vatnesi voru opin almenningi þar
sem m.a. mátti sjá sýningu á stein-
hrúðum í húningum frá ýmsum
tímabilum Islandssögunnar.
Hátíðardagskrá fór einnig fram í
Garði, Sandgerði, Vogum og
Grindavík.
Sossa listamaðui
J Sossa Björnsdóttir myndlist-
I arkona var valin listamaður
I Reykjanesbæjar árið 1977.
I Nafn hennar mun því fá sinn
I stað á stöpul listaverks Erlings
• Jónssonar „Hvorki fugl né
J fiskud' ásamt nöfnum listaman-
[ na Keflavíkur sem eru Erlingur
I Jónsson myndhöggvari, Gunnar
I Þórðarson hljómlistarmaður,
I Halla Haraldsdóttir myndlis-
I tarkona og Hilmar Jónsson
I rithöfundur.
Jónína Sanders formaður bæjar-
ráðs afhenti Sossu viðurkenn-
I inguna við hátíðlega viðhöfn í
I skrúðgarðinum í Keflavík á
I þjóðhátíðardaginn en að
I launum hlýtur Sossa afsteypu af
I listaverki Erlings til eignar,
J viðurkenningarskjal og styrk að
j upphæð kr. 350.000.
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar
I samþykkti í maí sl. reglur um
I listamann Reykjanesbæjar sem
I____________1-______________
byggja að mestu leyti á reglum
sem viðhafðar voru um val á
listamanni Kettavíkur áður en
kom til sameiningar sveitarféla-
ganna. Listamaðurinn er valinn
í samráði við menningamefnd
Reykjanesbæjar og auglýst var
eftir tilnefningum.
Sossa er fædd á Akranesi árið
1954 og fluttist hún til
Keflavikur 3 ára gömul.
Foreldrar hennar eru þau Sjöfn
Jónsdóttir og séra Björn
Jónsson sem var sóknarprestur í
Keflavík um árabil. Sossa lauk
námi frá Myndlista- og
handíðaskóla Islands árið 1979
og lauk hún framhaldsnámi í
Kaupmannahöfn árið 1985.
Árið 1989 ákvað Sossa að fara
til Bandaríkjanna til frekari
náms þaðan sem hún lauk
meistaragráðu í myndlist frá
háskóla í Boston árið 1992.
Sossa flutti aftur á heimaslóðir
8
Víkurfréttir