Víkurfréttir - 19.06.1997, Síða 10
Lumar þú á góðri frétt? Fréttavakt allan sólarhringinn í síma 898 2222
Sólstöðuganga
frá Grindavík!
Laugardaginn 21. júní kl. 22:00 er
fyrirhugad að koma saman við
Sólarvéið í Grindavík og ganga
þaðan á Þorbjörn.
Þegar upp er komið verður kveikt í
brennu, sungið og dansað og
upplifað sólsetur lengsta dags
ársins við stórkostlegt útsýni.
Þaðan er svo gengið niður að Bláa
lóninu þar sem fólk getur fengið
sér miðnætursundsprett.
Ferðamálaráð.
Starfsmenntun
til framtíðar
Á haustönn 1997 getum við enn
bætt við nokkrum nemum á
vélstjórnarbraut og í
grunndeild tréiðna.
Vinsamlegast hafið samband við
skrifstofu skólans (opin kl. 09-16)
vegna frekari upplýsinga og
skráningar.
Skólameistari.
Hafið þökk fyrir
Mig langar með nokkrum
fátæklegum orðum að þakka
alla þá samúð og umhyggju
sem mér og allri minni fjöl-
skyldu var sýnd við skyndi-
legt og ótímabært fráfall
bróður mfns, Júlíusar
Baldvinssonar, Garði. Meira
að segja veðurguðirnir voru
svo tillitsamir að sýna þá
bestu hlið sem hægt var að
hugsa sér, daginn sent útför
hans fór frarn, 5. júní sl.
Hér áður fyrr á árum dvaldi
ég sjálf í Garðinum og kynnt-
ist fólkinu þar að nokkru
marki. Þær minningar eru
allar rnjög góðar. Margar
þeirra lifa enn og munu gera
um ókomna tíð. En í seinni tíð
varð mér stundum á orði við
Júlla að ekki gæti ég hugsað
mér að búa þar sem svo langt
væri til fjalla og ekkert skjól
að finna þegar vindur og regn
lamdi. En Júlli svaraði því til
að hvergi væri betra að vera
og hvergi væri mannlífið fjöl-
breyttara. Dagana fyrir og
daginn sem útför hans fór
fram sá ég hvað liann átti við.
Allt þetta fólk sem sýndi
honum hinstu virðingu og
þakkir kom mér loksins til
fullnustu í skilning um hve líf
hans hefur verið innihaldsríkt
og gjöfult meðal ykkar
Suðurnesjabúa. Hann hefur
blómstrað í leik og starfi og
allir hans góðu eiginleikar
hafa fengið að njóta sín. Þessi
vitneskja er mikilsvirði.
Einnig og ekki minna mikil-
vægt er að Júlli tengdist fjöl-
skyldu sem tók honum sem
sínunt eigin og það var
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð
og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns
míns, föðurokkar, sonar, bróðurog afa,
Júlíusar Sævars Baldvinssonar
Skagabraut 44, Garði.
Sérstakar þakkir til félaga knattspyrnufélagsins Viöis í Garði.
Guð blessi ykkuröll.
Hafrún Ólöf Víglundsdóttir,
Baldvin Haukur Júliusson,
Kristín Jóh. Júlíusdóttir,
Anna Hulda Júlíusdóttir,
Karl Júliusson,
Júlíus Júlíusson,
Anna Hulda Júlíusdóttir,
Baldvin Jóhannsson,
systkini, barnabörn og tengdafólk.
honum einskonar lífæð sem
nærði liann og gerði að enn
betri dreng. Eftirl ifandi
eiginkona hans, börnin og
barnabörnin eiga góða að á
komandi tíma sent, ásamt
okkur öllum, kemur til með
að lækna og sefa sárasta
söknuðinn.
Hafið þökk fyrir
Asdís Eva Baldvinsdóttir,
Sigluflrði.
Konur á sólarkvöldi
Sturlaugun hlaut fenn venðlaun
Fyrirsögn með grein IVá skólaslitum Holtaskóla í Keflavík í
næst síðustu viku var ekki alveg rén. Þar er sagt að Sæmundur
Oddsson og Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir hafi hlotið flest
verðlaun en þau hlutu fem verðlaun, þrenn bókleg auk þess
sem þau voru kjörin íþróttafólk skólans. Sturlaugur Jón
Bjömsson hlaut einnig fem verðlaun. Hann var með hæstu
einkunn í ensku, sögu og frönsku og hlaut viðurkenningu fyrir
góðan árangur í eðlisfræði. Uni leið og við óskunt þessu unga
fólki til hamingju biðjum við Sturlaug afsökunar á þessum
mistökum.
Konur tóku vel á móti sumrinu sl. föstudag á Glóðinni þegar
haldið var sólarkvöld á vegum Smart, Stúdíó Huldu, Þel-Hár-
hús, Kóda og Golfbúðar Sigurðar Sigurðarsonar.
Kvöldið hófst með fordrykk og sumarávaxtahlaðborði og með-
al skemmtiatriða var sýning frá Stúdíó Huldu, það heitasta í
baðfötum og undirfötum frá Smart, sumarlfnur og hárlitir frá
Þel-Hárhús, kynning á námskeiðum f fatastíl, tískusýning frá
Kóda og Golfbúð Sigurðar Sigurðarsonar og þá var einnig
sýnd förðun. Kynnir á kvöldinu var Hulda Lárusdóttir og var
mikil stemmning á Glóðinni þar sem fjöldi kvenna mætti til
þess að skemmta sér og skoða tískuna.
10
VíL.