Víkurfréttir - 19.06.1997, Síða 13
Þessarmyndir voru teknar í
Bessastadaheimsókn
Keflavíkurblásara Tón-
listarskólans í Keflavík á
dögunum. Forsetahjónin,
Gudrún Katrín Þorbergs-
dóttir og ÓlafurRagnar
Grímsson kunnu vel að
meta Ijúfa Keflavíkurtóna.
♦ Kjartan Már Kjartansson, skólastjóri Tónlistarskólans í Keflavík
og Karen Sturlaugsson, hljómsveitarstjóri lúðrasveitarinnar með
forsetahjónunum Olafi Ragnari og Guðrúnu Katrínu.
♦ Á stóru myndinni að ofan má sjá fríðan hóp tónlistarkrakka ásamt
forsetahjónunum sem buðu Keflvikingum m.a. upp á ískalt Kóka
Kóla.
♦ Á myndinni til hægri má sjá lúðrasveitina í „Bessastaða-aksjón".
Það hljómar vel á Bessastöðum!
Lúðrasveit Tónlistarskólans í Keflavík hermdi
loforð upp á forseta vor, Ólaf Ragnar Grímsson
ekki alls fyrir löngu. Fyrir uni ári síðan spilaði
sveitin á kosningafundi hjá honum í Keflavík og
að því loknu sagðist hann að bjóða sveitinni í
heimsókn á Bessastaði yrði hann forseti. Það
„kosninga“-loforð efndi Ólafur síðan nú á
dögunum og fór fríður hópur tónlistarfólks frá
skólanum á Bessastaði. Lúðrasveitin var á
lúðrasveitarmóti í Reykjavík og „leit við“ hjá
forsetahjónunum í leiðinni og þáði léttar veitingar.
Iþróttaráð og Iþróttabandalag Reykjanesbæjar:
undirritaðlr
Bæjarstjóri handsalar samninginn
við fulltrúa skotdeildar Keflavíkur.
Iþróttaráð Reykjanesbæjar og
Iþróttabandalag Reykjanes-
bæjar veittu nýverið styrki úr
Afreks- og styrktarsjóði
ásamt því að undirrita fjöl-
marga samninga við félög og
klúbba í Reykjanesbæ.
Alls var úthlutað að þessu
sinni kr. 1.650.000 úr Afreks-
og styrktarsjóði til 12 deilda
og félaga innan ÍRB. Á
fjárhagsáætlun bæjarstjómar
1997 er áætlað kr. 4.000.000
í sjóðinn og á árinu hefur
I____________________________
verið úthlutað alls kr.
2.845.000.
Undirritaðir voru samningar
við íþróttafélög og klúbba að
upphæð kr. 22.117.000 auk
afnota á fþróttamannvirkjum
bæjarins og aðstoð frá
Vinnuskóla Reykjanesbæjar.
Þar á meðal er samningur við
skotdeild Keflavíkur vegna
uppbyggingar skotsvæðis í
Heiði, samningur við sund-
deild Ketlavíkur og UMFN
og Margréti Sanders um rek-
stur sundnámskeiða í suntar
og samningur við aðalstjóm
UMFN og íþrótta- og ung-
mennafélagsins Keflavík um
rekstur íþrótta- og leik-
jaskóla. Jafnframt undinitaði
Tómstundaráð Reykjanes-
bæjar samning um hátíðar-
dagskrá á 17. júní sem var
gerður við Ungmennafélag
Njarðvíkur og íþrótta- og
ungmennafélagið Keflavík
að upphæð kr. 2.000.000 eins
og undanfarin tvö ár.
Lóurnar hans Jóns
Ólafía Kristin Guðjóns-
dóttir, Lóa hans Jóns
Norðfjörð skemmti sér
vel i fimmtugsafmæli
bóndans.
Afmælisskrifara Víkurfrétta urðu á mis-
tök í síðasta tölublaði þegar greint var
frá hinu skemmtilega afmæli Jóns
Norðfjörð í Sandgerði. Þar var sagt að
eiginkona hans héti Jóhanna en það er
ekki rétt. Hún heitir Ólafía Kristín
Guðjónsdóttir og er alltaf kölluð Lóa en
dóttir þeirra hjóna heitir Jóhanna. Því
má hins vegar bæta við að barnabarn
þeirra heitir líka Ólafía Kristín og er
auðvitað líka kölluð Lóa og hún var að
sjálfsögðu í veislunni og skemmti þar
viðstöddum með spili og söng við
góðar undirtektir. Vinkona okkar í
Nýmynd hún Sólveig Þórðardóttir tók
myndirnar í afmælinu og við látum
fylgja mynd af Lóunum úr afmælinu
um leið og við biðjumst velvirðingar á
þessum mistökum.
Olafia Kristín Norðfjtirð eða Lóa litla spilaði og söng fyrir afa sinn og
sést hér meðÓla læk sem fór á kostum sem veislustjóri kvöldsins.
Víkuifréttir
13