Víkurfréttir - 19.06.1997, Side 15
r
I Grindvíkingar unnu góðan sigur á
Fram í Sjóvá-Almennra deildinni í
knattspyrnu í gærkvöld. Lokatölur
urðu 2:1 og var þetta fyrsti sigur
Grindvíkinga á sumrinum. Þeir lyftu
sér af botninum og eru komnir með
fintm stig.
Það var Kekic Sinisa sem skoraði
bæði mörk Grindvíkinga. Það fyrra
kom á 25. mínútu. Olafur Orn
Bjamason átti þá góða sendingu fram
völlinn á Óla Stefán Flóventsson sem
framlengdi boltann inn í teig. Þar tók
Ólafur nafni hans Ingólfsson boltann
og skaut að marki. Boltinn fór í vam-
armann en Kikic var réttur maður á
réttum stað og skoraði 1:0. Annað
markið kom ekki fyrr en fimm mín-
útum fyrir leikslok. Óli Stefán var
aftur höfúndur að undirbúningi þess.
Hann gaf góða sendingu fyrir markið
frá homfána vinstra megin. Kikic tók
á móti boltanum hægra megin við
markteig og skaut góðu skoti í fjær-
homið, óverjandi fyrir Ólaf Péturs-
son, markvörð Frantara. Þeir blá-
| klæddu minnkuðu muninn rétt fyrir
leikslok þegar varamaðurinn As-
mundur Amarsson lyfti boltann yfir
Albert Sævarsson, markvörð Grinda-
víkur eftir að hafa fengið stungusend-
ingu inn í miðan vítateig.
Bæði lið áttu nokkur færi sem hefðu
með smá heppni getað gefið mörk.
Óli Stefán Flóventsson átti skalla í
þverslá og þá komst Kikic Sinisa
einu sinni einn inn fyrir vítateig Fram
en missti boltann frá sér. Baráttan var
aðalsmerki Grindavíkur í þessum leik
en Framarar virðast ekki vera upp á
sitt besta þessa dagana.
L
Þolinmóðir Keflvíkingar
niðurlægðu skrautlið KR
- Tróna á toppi deildarinnar eftir 2:1 sigur á KR
„Þolinmæði var lykiiorð okkar í
þessum leik gegn KR. Við viss-
um að þeir ætluðu að leggja allt
undir til að sigra. Okkar taktík
gekk upp og sigur okkar var
verðskuldaður", sagði Sigurður
Björgvinsson, annar þjálfara
Keflavikur eftir sigur á Vestur-
bæjardrengjunum úr KR á
heimavelli jreina íFrostaskjóli í
gærkvöld 1:2. Fyrir þennan leik
hafði KR ekki tapað á heima-
velli í síðustu tuttugu leikjum.
Keflvflcingar eru með þessum
sigri komnir með jafn mörg stig
í deildinni og allt tímabilið í
fyrra. Fullt hús eftir sex leiki.
Markatalan 11:2.
Topplið Keflavíkur sýndi það í
leiknum gegn KR af hverju þeir eru á
toppnum. Þeir sýndu afburða knatt-
spyrnu oft á tíðum og yfirspiluðu út-
taugað Vesturbæjarliðið sem vissi ekki
hvort það var að koma eða fara. Ey-
steinn Hauksson skoraði fyrra mark
Keflvíkinga á 24. mínútu. Hann fékk
boltann rétt utan við vítateiginn vinstra
rnegin við bogann og skaut fimaföstu
skoti í hægra markhornið án þess að
Kjartan Finnboga landsliðsmarkvörður
kærni nokkrum vörnum við. Fyrir
markið hötðu Keflvíkingar sótt stíft og
átt tvö góð skot að marki. Annað mark
lá í loftinu en það kom þó ekki fyrr en á
42. mínútu. Keflavík fékk aukaspymu á
miðjurn vellinum. Gunnar Oddsson
sendi boltann inn i teig en sofandi vam-
armenn KR misreiknuðu dæmið og
boltinn barst til Jóhanns Guðmundsson-
ar sem skaut góðu skoti í hægra hornið.
Óverjandi fyrir Kristján. Þeir röndóttu
máttu hrósa happi að vera aðeins
tveimur mörkum undir í leikhléi.
Heimamenn mættu örlítið hressari í síð-
ari hálfleikinn og uppskám ntark efir tíu
mínútur. Þar var að verki Einar Þór
Daníelsson. Hann átti í baráttu við
Snorra Má Jónsson við vítateigs-
lfnuna eftir sendingu frá Rikharði
Daðasyni og náði skoti á markið
og fór boltinn undir Ólaf Gott-
skálksson. Margir vildu meina að
Einar hefði ýtt Snorra þannig að
hann féll.
Eftir um tuttugu mínútna sprikl
Vesturbæinga sent jú var spáð tit-
ilinum fimmta árið í röð fóru
Keflvíkingar að sækja meira aftur.
Bæði lið áttu þokkaleg færi það
sem eftir lifði en það voru hinir
bláklæddu Keflvíkingar sem fóru
með öll stigin og eru eftir þessa
sjöttu umferð enn með fiillt hús.
Gunnar Oddsson, Eysteinn
Hauksson og Ólafur Gottskálks-
son voru bestu nienn í jöfnu liði
Keflvíkinga. Vörnin er traust. Karl
Finnboga, Kristinn Guðbrands og ný-
liðinn Guðmundur Oddsson, sem hefur
svo sannarlega komið á óvart með frá-
bærri franunistöðu í sumar, vinna vel
saman eins og reyndar allt liðið. Haukur
Ingi Guðnason og Jóhann Guðmunds-
son eru stórskemmtilegir í framlínunni
og mátti sjá hvernig KR-ingar lögðu
mikla áherslu á að passa þá báða í þess-
um leik. „Baráttan hefur alltaf verið að-
alsmerki Keflavíkur og hún verður það
áfram“, sagði Sigurður Björgvinsson í
leikslok og það eru orð að sönnu.
J
Bláa lóns mótaröðin í golfi:
Kristinn vann Helga í bráðabana
Kristinn G. Bjamason, landsliðsmaður og Helgi Þórisson úr GS
urðu efstir og jafnir án forgjafar í þriðja og sfðasta Bláa lóns
mótinu í golft sem fram fór á Vallarhúsavelli í Sandgerði sl.
sunnudag.
Þeir léku báðir á 71 höggi en Kristinn hafði síðan betur í bráða-
bana um 1. sætið og fékk Ameríkuferð með Flugleiðum en
Helgi Evrópuferð fyrir 2. sætið. I 3.-4. sæti vom þeir Bjöm V.
Skúlason og Guðmundur R. Hallgrímsson á 73 höggum en Vík-
ingurinn vann bráðabanann og fékk 3. sætið. Það er Ijóst að
Bjöm er með stáltaugar því hann hafði betur í bráðabana gegn
Davíð Jónssyni í Olís-mótinu á dögunum. Það var hins vegar
Davíð sem varð Bláa Ións meistari án foigjafar með 54,5 stig en
með forgjöf Gylft Héðinsson GR með 41,25 stig.
Með forgjöf í þessu þriðja og síðasta móti sigraði Alma Jóns-
dóttir, GSG á 64 höggum nettó. Bertel Amftnnsson, NK varð
annar á 66 og með sama höggafjölda var Kjartan Guðjónsson,
GKG á 66 höggum.
Suðurnesjaliðin áfram í bikarnum
Keflavík og Grindavík komust bæði áfram í 16
liða úrslit bikarkeppninnar í knattspymu.
Keflvíkingar sigmðu IR eftir framlengingu 2:1 á
útivelli með mörkum Eysteins Haukssonar og Jó-
hanns Guðmundssonar og mæta Fram í Keflavflc í
næstu viku. Grindvíkingar heimsóttu Garðmenn
og höfðu sigur með marki Ólafs Ingólfssonar úr
vítaspymu. Þeir mæta liði Breiðabliks í næstu um-
ferð.
Reynismenn urðu að láta í minni pokann fyrir
Stjömumönnum 0:2 og ungmennalið Keflavíkur
tapaði heima gegn Valsmönnum 0:2.
Þá er aðeins ógetið úrslita úr einum knattspymu-
leik síðustu helgar en það er viðureign ÚMFN
gegn Bruna frá Akranesi. Njarðvíkingar sigruðu
4-1 og skomðu þeir Guðni Erlendsson, Helgi Am-
arsson, Högni Þórðarson og Magnús Ólafsson
mörkin.
Absolute
power
Shine
Fimmtudag og
föstudag kl. 9
Abs°/ute
sun,
'Huda,
}9klg
***«««. 9
nÖJUd*gkl.9
Næstu myndir:
the fifth element
«g
Dantespeak
Víkurfréttir
15