Víkurfréttir - 30.07.1997, Síða 10
Byggðastofnun:
Löggutékk
Styrkir til Suður-
nesja 11 milljónir
Starfsleyfi um næstu áramót?
Byggðastofnun veitti styrki að
upphæð 160 milljónir á síð-
asta ári. Þar af fóru 11 millj-
ónir til Suðumesja.
Sæfiskasafnið í Höfnum hlaut
styrk að upphæð 2.500 til
uppbyggingar á aðstöðu til
fyrirlestra og kennslu í tengsl-
um við líffræði sjávar. Brunn-
ar ehf. sem sem stofnað var í
Grindavík hlaut 750 þúsund
króna styrk fyrir tölvustýrða
víramælingavél fyrir togvíra
fiskiskipa en tölvustýringin
var unnin í samvinnu við
Tölvuhugbúnað hf. í Kefla-
vík. Fyrirtækið Sæbýli hf. í
vogum hlaut 800 þúsund
króna styrk til eldis á sæeyra.
Markaðs- og atvinnumála-
skrifstofa Reykjanesbæjar
hlaut kr. 3.767 til atvinnuráð-
gjafar, 1.780 til ferðamálaráð-
gjafar og kr. 1.809 til 3 ára
samnings um atvinnuþróun.
Kostnaður íslenska
Magnesíumfélagsins hf. við
undirbúning Magnesíumverk-
smiðju í Sandhöfn Suðumesj-
um er nú orðinn 200 milljónir
króna að meðtalinni framlagri
vinnu hluthafa en safnað
hlutafé og önnur fjármögnun
er 250-260 milljónir króna.
Islenska Magnesíumfélagið
hefur nú gert samkomulag við
kanadíska fjármálafyrirtækið
Nesbitt Bums (NB) sem er í
eigu Bank of Monteal um að
afla viðbótarhlutafé og veita
lán til byggingar verksmiðj-
unnar.
Skýrsla um umhverfisáhrif
fyrirhugaðrar magnesíum-
verksmiðju hefur verið afhent
yfirvöldum og vonast forráða-
menn félagsins til þess starfs-
leyfi verði tilbúið um næstu
áramót verði ákveðið að ráðst
í byggingu verksmiðjunnar.
Gamla Keflavík:
Mjólk vap
munaðarvara
í mínu ungdæmi var mjólk
nánast munaðarvara. Hún var
yfirleitt seld í skúrum sem
tíðkaðist að byggja við hús,
sem inngang, söluna önnuðust
húsmæður.
Skilyrði til búskapar voru
mjög takmörkuð, þó var
smávegis fengist við búskap.
Jóhann á Vatnesi með mesta
búið 6 til 7 kýr. Þar var
mjólkin sett í brúsa hvers og
eins, sem vinnumaðurinn fór
Ólafur Björnsson
fyrrv. útgerðar-
maður skrifar um
gömlu Keflavík.
Þegar aldurinn fœrist
yfir veröur tnanni
gjarnan hugsaö til
haka. Margt afþví
sem mín kynslóö liföi
fellur óöum ígleym-
sku, þrátt J'yrir allar
œvimiminningarnar.
Heiniildir eru af
skornum skanvnti
uni niargt. Eg hefi
því oröiö aö styöjast
viö ntinni mitt og
annarra sent ég heji
boriÖ tnig santan viö
tini sumt af því sent
hér veröur rakiö.
með til Ágústu Sigurjóns-
dóttur á Hafnargötu 51. ýmist
á handvagni eða í hjólbörum.
Þangað sótti svo hver sinn
mjólkurbrúsa og skildi tóman
eftir til næsta dags.
Sigurður Pétursson, útgerðar-
maður ræktaði upp mela út
með Kirkjveginunt og hafði
nokkrar kýr. Hann hafði tjós
og hlöðu efst við Íshússtíginn,
sem enn standa. Þau höfðu
fjósamann. Birna kona hans
seldi mjólkina heima hjá sér
við Kirkjuveg. Þau fluttu
héðan þegar nýbyggt hús
þeirra brann og hann varð
gjaldþrota 1933.
Jón Brandson átti fyrst eina
kú með Einari Sveinsyni til
eigin þarfa að mestu. Um
1935 keypti hann af Einari og
bætti við sig annari kú, þá fór
Katrín kona hans að selja
mjólk „við innganginn”. Þau
áttu heima í húsi sem stóð eitl
sér vestast ofan við Kirkju-
veginn.
Kristín var á Ishússtíg 6, nú
Túngötu 23. Hún var með 3
til 5 kýr og seldi mjólk ..við
innganginn”. Seinna bætti hún
við skúrinn og seldi þar
ýmsan smávaming.
Það ég ntan er þá aðeins eftir
Helga Geirs. Hún átti I til 2
kýr. lengi þá einu hér í
Keflavík. Þær mæðgur Helga
og móðir hennar Ingunn
bjuggu að Aðalgötu 9 og
seldu þar mjólk „við inn-
ganginn” þar til slíkt var
bannað.
Þeir sem bjuggu á Hæðinni
munu aðallega hafa skipt við
Vatnsnesbúið. Sigurbjörg
Magnúsdóttir kona Svavars
Sigfinnssonar múrara, mun
hafa selt mjólkina frá Stór-
Hólmi í Leiru. Fyrst var hún
að Suðurgötu 30 síðan
Hafnargötu 58 og loks á
Hafnargötu 68. Þaðan fluttu
þau í Ytri-Njarðvík.
Byggðin sunnan Tjamargötu
var kölluð inná hæð af þeint
sem bjuggu norðan Tjarnar-
götu.
Eitthvað var um að mjólk
væri send beint í hús úr
Njarðvíkunum.
Hólmfríður átti engar kýr en
hún seldi mjólk,.sem hún fékk
hér úr nágreninu. Gunnar
maður hennar var skósmiður
og rak litla verslun að
Aðalgötu 6. Hólmfríður seldi
mjólkina „við innganginn” á
vesturhliðinni. Var reyndar
með ntjólkina inni í eldhúsi.
Við keyptum mjólkina hjá
Hólmfríði, okkur þótti vænt
um hana.
Allt voru þetta mestu
sómakonur. Oft þuiftu þær að
skammta mjólkina, þá
miðuðu þær yfirleitt við fjölda
ungbarna á heimilum.
Stundum rættist úr með mjólk
þegar kom frarn á daginn.
Sími var fágætur, þær kölluðu
því bara í okkur krakkana
þegar við áttum leið hjá og
báðu okkur að láta mömmu
vita að hún gæti fengið pott
eða hálfpott t viðbót. Lítri
heyrðist ekki nefndur í þá
daga.
Aðallega kom mjólkin sunnan
af Miðnesi, úr Garðinum og
Leirunni. Eftir að Hjörtur í
Klöpp fór að keyra inneftir (til
Reykjavíkur ) kom hann með
af mjólk þaðan.
Eftir að Alþýðubrauðagerðin
opnaði hér útsölu, í skúr við
endann á Ingimundarbúð,
Hafnargötu 19, var seld þar
mjólk sem konr innanað.
Seinna fékk Kaupfélagið alla
mjólkursöluna. Fólki fjölgaði
ört og mjólkskortur var hér
meira og minna framyfir
1950.
Langaði í
sólpall
Lögreglan í Keflavík upp-
lýsti um helgina þjófnað á
umtalsverðu rnagni af
pallaefni frá porti Húsa-
smiðjunnar í Keflavík en
tilkynnt var um stuldinn
þann 23. júlí sl. Er talið að
þjófnaðurinn haft átt sér
stað um síðustu mánaðar-
mót.
Lögreglan fékk vísbend-
ingu um aðila sem hafði
notað vörubifreið til
þjófnaðarins og kom í Ijós
að þjófurinn hafði þegar
reist sér girðingu úr efn-
inu og hafði hafíst handa
við byggingu sólpalls.
Eyðilögðu bíl
sem var
ætlaður til
æfinga
Bifreið sem hafði verið
lánuð til almannavamaæf-
ingarinnar Samvörður 97,
sem fram fór um síðustu
helgi, var stolið úr gryfju
skammt fyrir utan Sand-
gerði sl. fimmtudag.
Bifreiðinni hafði verið
komið fyrir til æfinga og
var hún ekki gangfær.
Fannst hún skammt frá
gryfjunni þar sem hún
hafði verið gereyðilögð.
Ekki er vitað hvetjir voru
þama að verki.
Annríki hjá
lögreglu um
helgina
Mikil ölvun var í mið-
bænum um helgina og
mikið um rúðubrot og
skemmdir á eignum. A
fimmtudagskvöld bárust
Lögreglunni í Keflavík 16
tilkynningar um eigna-
tjón.
Tveir ökumenn vom tekn-
ir grunaðir um ölvun við
akstur f vikunni og er tala
ölvaðra ökumanna frá
áramótum því kornin upp
í 72 sem er nokkuð hátt
að sögn Lögreglunnar í
Ketlavík.
Þrjátíu ökuntenn voru
teknir fyrir of hraðan akst-
ur. Þar af vom tveir teknir
á Reykjanesbraut á yfir
160 kflómetra hraða þar
sem hamarkshraði er 90
km. Ökumennirnir voru
báðir sviptir ökuleyfum til
bráðabirgða.
10
Víkurfréttir