Víkurfréttir - 30.07.1997, Qupperneq 15
Stórveldin Arsenal 09 Liverpool
sýna Jóhanni og Hauki Inga áhuga
Enska knattspyrnuliðið Liver-
pool hefur sett sig í samband
við stjóm Knattspymudeildar
Keflavíkur og óskað eftir að
fá Jóhann B. Guðmundsson
og Hauk Inga Guðnason í
vikudvöl á Anfield til að
skoða þá.
Að sögn Kjartans Mássonar,
framkvæmdastjóra knatt-
spyrnudeildarinnar, hefur
Liverpool áhuga á að skoða
þá með samning í huga og er
það knattspyrnudeildarinnar
að segja til um hvaða vika
verði fyrir valinu og verður
það jafnvel ekki fyrr en að
tímabilinu loknu.
Einnig hefur enska félagið
Arsenal óskað eftir því að fá
Hauk Inga á Higbyry til pmfu
sem og Hollenska stórliðið
PSV Eindhoven. Þess skal
getið að Arsenal hefur jafnvel
áhuga á að skoða fleiri leik-
rnenn frá Keflavík.
Haukur Ingi mun að öllum
líkindum fara út að tímabilinu
loknu og var hann að vonum
ánægður með áhuga knatt-
spymuliðanna. „Þetta er bara
frábært enda hefur það alltaf
verið stefnan að fara í at-
vinnumennsku“.
Þess má geta að Arsenal er
uppáhaldslið Hauks Inga en
þó sagði hann að það eitt
myndi ekki ráða vali sínu
fengi hann einhver tilboð.
„Það væri frábært að komast
að hjá Arsenal en maður má
samt ekki fara þangað bara til
þess að vera þar. Ef einhvað
betra tækifæri gefst myndi
maður hugsa sig um og velja
það sem hentar manni best'‘.
Attu von á því að komast
strax að?
„Nei, Maður þarf nú einhvem
tfma til þess að þroskast og
aðlaga sig knattspyrnunni
þama. það tæki örugglega ein-
hvem tíma“.
Ertu bjartsýnn á að þetta
gangi upp?
„Já, ég er nokkuð bjartsýnn að
það gangi eitthvað af þessu
upp en hvort það verður
Arsenal veit ég ekki“.
Jóhann mun fara út til Liver-
pool og aðspurður sagði hann
það leggjast bara bel í sig. „Ég
vona bara að þetta gangi vel.
Þetta er rosalega gott tækifæri
enda stefnir maður náttúru-
lega að atvinnumennsku ef
maður er í knattspymu af ein-
hverri alvöru“.
Þrír á þrjá í
Sparisjóðnum
Körfuboltamenn framtíðarinn-
ar fjölmenntu f „Þrjá á þrjá“
götukörfuboltamót sem
Sparisjóðurinn í Keflavík stóð
fyrir á dögunum. A myndinni
að ofan má sjá „íþróttasér-
fræðinga“ Sparisjóðsins, þá
Magnús Haraldsson og Daða
Þorgrímsson með hressum
körfuboltastrákum.
Olafup til Hibernian
Ólafur Gottskálksson mark-
vörður Keflavíkur og ís-
lenska landsliðsins hefur
skrifað undir þriggja ára
samning við skoska úrvals-
deildarfélagið Hibemian í
Skotlandi.
Enn hefur ekki fengist upp-
gefið kaupverð Ólafs en
samkvæmt óstaðfestum
fréttum DV er það á bilinu
12 til 14 milljónir.
Hann kemur til með að
spila með liðinu á sunnu-
daginn gegn Celtic og verð-
ur leikurinn sýndur beint á
sjónvarpstöðinni Sky sport.
Ljóst þykir að þetta verður
gífurleg blóðtaka fyrir
Keflavíkurliðið þar sem
hann hefur spilað mjög vel í
sumar. Bjarki Freyr Guð-
mundsson mun leysa Ólaf
af í markinu.
Víkurfréttir
15