Víkurfréttir - 29.10.1997, Qupperneq 2
■ Reykjanesbær:
Heiðarhvammur 8 Keflavík. 3ja herb. íbúð á 3. hæð. Endaíbúð með glugga á
baðherbergi. Hagstæð lán áhvílandi með lágum vöxtum. Verð kr. 5.500.000.-
Heiöarbraut 13, Keflavík
141 ferm. einbýli ásamt 34
ferm bílskúr. Vandað hús í alla
staði. Skipti á minni fasteign
kemur til greina.
13.000.000,-
Birkiteigur 11, Keflavík
120 ferm. einbýli ásamt 40
ferm. bílskúr. Húsið er í góðu
ástandi m.a. ný málað, lóð vel
ræktuð. Skipti möguleg á
minni fasteign.
Tilboð.
Faxabraut 36a, Keflavík
79 femi. 3ja herb. efri hæð.
Búið að skipta um allar lagnir
og nýlegir gluggar. Mjög
góðir greiðsluskilm. Útborg-
un aðeins kr. 200 þús.
Tilboð.
Kvartmilljarðs þjónustu-
samningur við SBK
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar
samþykkti á fundi sínum þann
21. október sl. verksamning
við SBK hf. um rekstur al-
menningsvagna í Reykjanes-
bæ.
Ritað var undir verksamning-
inn þann 16. september sl. og
gildir hann frá I. janúar 1997
fram til 31. desember árið
2002.
Reykjanesbær mun greiða
SBK Itf. kr. 42 milljónir næstu
sex árin fyrir rekstur almenn-
ingsvagna bæjarfélagins sem
er samanlagt 250 milljónir og
kallaði Ellert Eiríksson bæjar-
stjóri Reykjanesbæjar verk-
samninginn í gamni „vöggu-
gjöf' til handa SBK eftir að
það var gert að hlutafélagi.
Við undirskrift kom jafnframt
fram að rekstur almennings-
vagna Reykjanesbæjar verður
boðinn út að sex árum liðnum
þegar að samningur bæjarfé-
lagsins við SBK hf. rennur út.
Heiðargarður 4, Keflavík
142 ferm. einbýli ásamt 25 ferm.
bílskúr. Húsið er í mjög góðu
ástandi m.a. nýlegar innrettingar
og nýleg gólfefni. Skipti á minni
fasteign möguleg. Nánari
upplýsingar um söluverð og
greiðsluskilmála á skrifstofunni.
Valbraut II, Cíarði
135 ferm. einbýli ásamt 37
ferm bílskúr. 4 svefnherb. og
forstofuherb. Nýtt þak.
Vandað hús. Nánari upplýsin-
gar um söluverð og greiðsluk-
ilmála á skrifstofunni.
Tilboð.
rrrr^K
Sunnubraut 6, Keflavík
4ra-5 herb. efri hæð mcð
sérinngangi ásamt rúmgóðri
skúrbyggingu sem gefur mikla
möguleika. Eftirsóttur staður.
Skipti á ódýrari íbúð kemur til
greina.
Tilboð.
Kaupir land
undir magnes-
íumverksmiðju
Reykjanesbær hefur
keypt land undir
fyrirhugaða
magnesíumverk-
smiðju á Reykjanesi fyrir
tæpar 60 millj. króna.
Samningar þess efnis voru
undirritaðir í húsnæði bæj-
arfélagsins sl. fimmtudag.
Um er að ræða 320 hektara
landspildu úr jörðunum
Kalmannstjörn og Junk-
aragerði í Höfnum í Reykja-
nesbæ. Einn liður í þessum
kaupsamningi er þannig að
verði samningar um magnes-
íumverksmiðju ekki gerðir
fyrir 31. desember 1998 og
kaupandi telur sig ekki hafa
þörf fyrir hið umsamda land
fellur hann úr gildi án nokk-
urra réttinda eða skyldna
hvors aðila.
Falli samningar aðila um
landakaupin niður greiðir
kaupandi hins vega seljanda
kr. 1.250 þús. kr. í ómaksþók-
nun. Sú upphæð var greidd
við undirritun samnings og
verður til frádráttar greiðslu
verði af viðskiptunum.
, J>etta er mikið hagsmunamál
fyrir bæjarfélagið. Með þess-
um landakaupum vill Reykja-
nesbær leggja sitt af mörkum
svo þessi stóriðja eða önnur
verði að veruleika. Venjan er
sú að viðkomandi opinber
aðili þar sem stóriðja er reist
kaupi land og framleigi",
sagði Ellert Eiríksson,
bæjarstjóri að lokinni undir-
skrift í samtali við Víkur-
fréttir.
Lokaundirbúningur vegna magnesíum-
verksmiðju í fullum gangi:
Leit að fjárfestum
stærsti þátturinn
-segir Júlíus Jónsson, stjórnarformadur
Islenska magnesíumfélagsins
Fastewnasalan
HAFNARGÖTU 27 - KEFLAVÍK O SÍMAR421 1420 OG421 4288
Heiðarbakki 5, Kcflavík
164 ferm. einbýli ásamt 52
ferm. bílskúr. Vandaðar inn-
réttingar. Glæsileg eign á
eftirsóttum stað. 15_80)).0(H)_.
Mávabraut 9b, Ketlavík
3ja herb. íbúð á 3. hæð í góðu
ástandi. Mjög góðir greiðslu-
skilmálar, hægt að taka bifreið
upp í útborgun. ...........
Þórustígur 3, Njarðvík
103 ferm. neðri hæð með
sérinngangi ásamt 44 ferm.
bílskúr. Hagstæð lán áhvíl-
5.900.000,-
„Þessi landakaup eru einn af
nokkrum stórum þáttum í
lokaundirbúningi að byggingu
magnesíumverksmiðju.
Stærsti þátturinn af um það bil
fjórum er fjármögnun þriðj-
ungs framkvæmdakostnaðar
upp á tíu milljarða króna en
heildarkostnaður er áætlaður
um 30 milljarðar króna",
sagði Júlíus Jónsson, stjómar-
formaður íslenska magnes-
íumfélagsins hf.
Þessir fjórir þættir sem eftir
eru þurfa allir að ganga upp
svo að af verksmiðjunni geti
orðið. Það er í fyrsta lagi að
finna öfluga fjárfesta. Sú leit
stendur nú yfir og eru þegar
aðilar búnir að sýna áhuga á
málinu. Aðrir þættir eru að
ljúka forhönnun á verk-
smiðjunni auk hagkvæmni-
athugunar, leggja inn mat á
umhverfisáhrifum og beiðni
um starfsleyfi. „Ef þessir liðir
verða allir komnir á hreint í
lok janúar, sem stefnt er að,
auk sölusamninga upp á 50-
60% afurða verksmiðjunnar
til tíu ára, geta framkvæmdir
hafist með vorinu", sagði
Júlíus.
Aðspurður um það hvort eitt-
hvað óvænt hafi komið upp á
borðið í lokaundirbúningnum
sagði Júlíus svo ekki vera.
„Það er kannski það furðulega
í þessu. Það hefur enn ekkert
komið upp sem hefur stoppað
okkur. Við þokumst nær með
hverju skrefi", sagði Júlíus.
Reykjanesbær:
2
Víkurfréttir