Víkurfréttir - 29.10.1997, Side 23
Nokkrir aðalhvatamanna að stofnun Tónlistarfélags Keflavíkur
mættu á afmælistónleikana í leikhúsinu. Meðal þeirra voru Vigdís
Jakobsdóttir, Guðmundur Norðdal og Ragnar Björnsson sem sjást
ásamt fleirum á þessari mynd.
Ekið var á sjötugan mann á reiðhjóli á Frekjunni við
Samkaup í vikunni. Hann slasaðist ekki alvarlega og fékk
að fara heim að lokinni skoðun á Sjúkrahúsi Suðurnesja.
EKIÐÁ
UNGAN DRENG
Ekið var á ungan dreng á
Njarðvíkurbraut í Innri
Njarðvík kl. átta í morgun.
Hann slasaðist ekki alvar-
lega en varflutturá
Sjúkrahús Suðurnesja til
skonunar. Hann fékk að fara
heim að lokinni skoðun.
t
Elskulegi eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi
Matthías Guðmundsson
Hringbraut 104
Keflavík
Iéstsunnudaginn26. október.
Jarðarförin ferfram frá Keflavíkurkirkju
miðvikudaginn 5. nóvemberkl. 14:00.
Friðbjörg Ólina Kristjánsdóttir
Sigurður Sævar Matthiasson
Hafdís Matthíasdóttir Sigurbjörn Ingimundarson
barnabörn og barnabamabarn.
Afmælisveisla Tónlistarskólans
Þriðji þáttur í afmælishaldi Tónlistarskólans i Keflavík fór fram
á sunnudag en þá komu yngstu nemendur skólans fram á tón-
leikum í leikliúsinu við Vesturbraut í Keflavík. Að tónleikunum
loknum var kaffisamsæti í KK-salnum og voru þar margir
velunnarar skólans, kennarar, nemendur og fyrrverandi
forvígismenn og upphafsfólk hans. Vikurfréttamenn voru og
staðnum og tóku meðfylgjandi myndir.
Tímapantanir í síma 421-4585
Náttúruvæn
hárgreiðslustofa
Ica-v
&LÍNUR
Hafnargötu 35 - Keflavík
HaraldurArni Haraldsson, skólastjóri Tónlistarskólans í Njarðvík afhenti Eiríki Arna
Sigtryggssyni gjöfí tilefni frumflutnings á sinfóníunni sem hann samdi. VF/mynd-hbb.
Viðamikil Suðunnesjasinfónía á
vel heppnuöum sinfoniutonleikum
aveda
Sinfóníuhljómsveit íslands
hélt tónleika í Iþróttahúsinu í
Keflavík sl. laugardag í tilefni
þess að 40 ár eru liðin frá
stofnun Tónlistarfélags og
Tónlistarskóla Keflavíkur.
Það var ánægjulegt að sjá all-
an þann fjölda bæjarbúa sem
mætti á tónleikana og margir
tóku böm sín með enda aldrei
of snemmt að njóta klassískr-
ar tónlistar.
Lúðrasveit Tónlistarskóla
Keflavíkur lék í upphafi
ásamt Sinfóníuhljómsveitinni
j og fórst þeim það vel úr hendi
j og sérstaka aðdáun vakti ung-
ur trommuleikari sem aldrei
missti úr slag og stóðst fylli-
lega samanburð við reynda
slagverksleikara Sinfóníu-
hljómsveitarinnar. Það hefur
án efa verið mikilvægt fyrir
nreðlimi lúðrasveitarinnar að
fá tækifæri til þess að leika
með Sinfóníuhljómsveitinni
en stjómandi sveitarinnar er
Karen Sturlaugsson.
Sinfóníuhljómsveitin lék
nokkur lög í útsetningu Her-
berts H. Agústssonar sem
starfaði lengi sem skólastjóri
Tónlistarskóla keflavíkur.
Eftir hlé var verk keflvíkings-
ins Eiríks Áma Sigtryggsson- j
ar, Sinfónía nr. 4 með undir- j
titlinum Keflavík, frumflutt
og tóku bæði Kvennakór Suð-
urnesja og karlakór Suður-
nesja þátt í flutninginum
ásamt þremur einsöngvurum;
Steini Erlingssyni, Marfu
Guðmundsdóttur og Birnu
Rúnarsdóttur. Hljómsveitar-
stjóri var Guðmundur Óli j
Gunnarsson.
Þetta var viðamikið verkefni
og greinilegt að mikið er til af
söngfólki á Suðurnesjum.
Tónleikagestir tóku sinfóní- |
unni vel og könnuðust þeir j
við nokkur stef. Mátti m.a. |
heyra óminn af laginu Suður-
nesjamenn sem átti vel við.
náttúrulegar hársnyrti-
vörur unnar úr lífrænt
ræktuðum jurtum
Er hárið þurrt og slitið eftir sumarið?
Remedy blómaolíu næringakúrinn endurlífgar
þurrt og þreytt hár, gefur því glans og fyllingu.
Við bjóðum þér að koma og prufa.
15% AFSLÁm/R
af öllum litunum og
Remedy djúpnæringu
-fimmtudag til þriðjudags
Víkurfréttir
23