Morgunblaðið - 01.04.2016, Síða 1

Morgunblaðið - 01.04.2016, Síða 1
F Ö S T U D A G U R 1. A P R Í L 2 0 1 6 Stofnað 1913  75. tölublað  104. árgangur  MISTÖKIN LEIDDU TIL BÓKARSKRIFA LEIKIÐ UM FRAMTÍÐ STARFAR VIÐ FRAMANDI AÐSTÆÐUR MADE IN CHILDREN 30 DAGUR VERKFRÆÐINNAR 15KRYDDJURTARÆKT 12 Uppgjör Icelandic Group komst í eigu Framtakssjóðs Íslands árið 2010.  Sjávarútvegsfyrirtækið Icelandic Group, sem að öllu leyti er í eigu Framtakssjóðs Íslands, skilaði ríf- lega 560 milljóna hagnaði í fyrra og sneri við taprekstri ársins 2014. Það ár skilaði félagið ríflega 570 milljóna tapi. Árni Geir Pálsson, forstjóri fyr- irtækisins, segir við Morgunblaðið að sameining þriggja fyrirtækja í Bretlandi og samstillt átak alls starfsfólksins hafi skilað þeim árangri sem rekstrarniðurstaða ársins ber vitni um. Á síðasta ári seldi Icelandic starf- semi sína í Asíu til Brims hf. Við söl- una bókfærði fyrirtækið tap. Sé lit- ið til þeirrar starfsemi sem félagið hefur áfram á sinni hendi nam hagnaður af starfsemi þess hluta um 1,1 milljarði króna. Velta Icelandic Group á síðasta ári nam rúmum 75 milljörðum króna. »16 Icelandic Group skilaði hagnaði á nýliðnu rekstrarári Baldur Arnarson baldura@mbl.is Vilhjálmur Þorsteinsson fjárfestir hefur frá aldamótum byggt upp eignarhaldsfélag sem hefur tengsl við mörg skattaskjól. Þannig hefur félag hans, Meson Holding, sem er skráð í Lúxemborg, átt að fullu félög í Guernsey og á Kýpur. Þá hafa fulltrúar, eða félög, frá Tortóla á Jómfrúreyjum, Belize og Sviss átt sæti í eignarhaldsfélag- inu. Vilhjálmur var skráður í stjórn félagsins árið 2007 en var afskráður 2010. Vilhjálmur sagði af sér sem gjaldkeri Sam- fylkingarinnar í fyrradag vegna umfjöllunar um eignarhaldsfélagið. Athugun á skjölum félagsins í fyrir- tækjaskrá Lúxemborgar bendir til að Vilhjálmur hafi enn ekki gert fulla grein fyrir fjárfestingum sínum í afsagnarbréfi sínu á Eyjunni. Þá virðist eignarhaldsfélag hans í Lúxemborg hafa framan af verið skattfrjálst að mestu. Hins vegar rit- aði Vilhjálmur á Facebook-síðu í fyrradag að hann hefði ekki skráð fé- lagið í Lúxemborg af skattalegum ástæðum, heldur vegna ókosta krón- unnar sem gjaldmiðils. Félagið var með krónu sem uppgjörsmynt þar til í ársbyrjun 2014. Fulltrúar Kaupþings í Lúxemborg áttu í samstarfi við Vilhjálm vegna stofnunar og reikningsskila félags- ins í Lúxemborg. Fyrsti aðgengilegi ársreikningurinn er gerður af félagi sem er skráð á Tortóla. Á þremur aflandseyjum  Félag Vilhjálms Þorsteinssonar hefur tengingu við Kýpur, Guernsey og Tortóla  Fulltrúar frá Belize hafa verið skráðir í eignarhaldsfélagi hans í Lúxemborg MTengsl við mörg … »14 Vilhjálmur Þorsteinsson Morgunblaðið/Árni Sæberg Þjórsá Urriðafoss er í nýting- arflokki en með „rauðu spjaldi“. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Það vekur athygli að ekkert er horft til spurningarinnar um hag- kvæmni eða til efnahagslegra áhrifa. Ákvarðanir eru teknar út frá svæð- um og verndargildi þeirra en ekki metið á móti efnahagslegt mikilvægi eða hagkvæmni,“ segir Gústaf Adolf Skúlason, framkvæmdastjóri Sam- orku, um drög að tillögum verkefna- stjórnar 3. áfanga rammaáætlunar sem kynnt voru í gær. „Við munum nýta niðurstöðurnar sem enn eitt lóð á þá vogarskál að friðlýsa allt miðhálendið sem þjóð- garð,“ segir Snorri Baldursson, for- maður Landverndar. „Þetta er ákveðið áfall, ekki aðeins fyrir Norðurorku heldur Norðlend- inga, að bæði Héraðsvötn og Skjálf- andafljót fari í verndarflokk,“ segir Helgi Jóhannesson, forstjóri Norð- urorku, en fyrirtækið á aðild að Hrafnabjargavirkjun í Skjálfanda- fljóti sem gert er ráð fyrir að fari allt í verndarflokk. »10 Ekki spurt um hagkvæmni  Skiptar skoðanir um nýjar tillögur um rammaáætlun Litfagur mandarín-andarsteggur var í gær á andapollinum við Sundlaug Akureyrar. Slíkur fugl hefur ekki áður sést þar í bæ, segir Sverrir Thorstensen fuglaáhugamaður, en þeirra hefur þó orðið vart á Norðurlandi. Mandarínendur eru flækingar frá Bretlandi, voru forðum ræktaðar í görðum aðalsmanna og hafðar til skrauts, og þær sem flækjast hingað hafa trúlega sloppið úr dýragörðum. „Mandarínendur sjást víða um land á hverju vori, einkum steggirnir. Kollurnar hafa aldrei orpið hér, eftir því sem best er vitað,“ seg- ir Jóhann Óli Hilmarsson fuglafræðingur. Leikur og gleði í sambúð andanna á Akureyri Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Litskrúðug mandarínönd er flækingsfugl sem vekur athygli  Ekki ríkir 110 ára leynd yfir skjölunum um uppgjör gömlu bankanna, sem alþingismenn hafa fengið að skoða í trúnaði, eins og skilja hefur mátt af fréttum. Um þau atriði í skjölunum þar sem er að finna upplýsingar um fjár- hagsleg málefni einstaklinga gild- ir 80 ára trúnaðarregla sam- kvæmt lögum um opinber skjalasöfn. Formaður og varaformaður fjárlaganefndar Alþingis, Vigdís Hauksdóttir og Guðlaugur Þór Þórðarson, ætla að óska eftir því við fjármálaráðuneytið að trúnaði yfir skjölunum verði aflétt. » 18 Ekki 110 ára leynd yfir bankaskjölum Samningar sem Ríkisútvarpið gerir við verktaka skulu gerðir eftir opnu, faglegu og gagnsæju ferli. Þá skulu allar lausar stöður auglýstar og í þær ráðið eftir opnu ferli. Þetta er, samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins, meðal atriða í nýjum þjón- ustusamningi menntamálaráðuneyt- isins við Ríkisútvarpið ohf. en efni hans var kynnt stjórn fyrirtækisins í fyrrakvöld. Einnig eru í samningn- um ný ákvæði um til dæmis stjórnun og starfsemi RÚV, svo og starfs- og siðareglur. Gunnlaugur G. Sverrisson, stjórn- arformaður RÚV, segir að strangar kröfur um stjórn og starfsemi Rík- isútvarpsins séu í þjónustusamn- ingnum nýja, sem sé betra stjórn- tæki en fyrri samningur var. Samningurinn feli ekki í sér að fara þurfi í hagræðingaraðgerðir hjá RÚV, því ásættanleg niðurstaða um fjármögnun starfseminnar á líðandi ári hafi þegar legið fyrir. Reiknað er með að samningurinn verði undirritaður af stjórn RÚV ohf. nk. þriðjudag. »11 Samið verði við verk- taka RÚV í opnu ferli

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.