Morgunblaðið - 01.04.2016, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. APRÍL 2016
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Veglegt myndasafn Stefáns Þormars
Guðmundssonar, fráfarandi veitinga-
manns Litlu kaffistofunnar, hefur ver-
ið selt. Um er að ræða sögulegar
myndir úr heimi knattspyrnunnar á
Íslandi og er sú elsta frá árinu 1911
þegar fyrsti knattspyrnuleikurinn fór
fram á Melavellinum á milli Fram og
Fótboltafélags Reykjavíkur, síðar KR.
Stefán gekk út af vinnustaðnum í síð-
asta skipti í gær eftir aldarfjórðungs
rekstur fyrir Olís. „Það fengu færri
safnið en vildu. Margir hringdu og
spjölluðu við mig og komu að skoða
þetta. Þegar ég fór yfir þetta fannst
mér svo erfitt að gera upp á milli fólks.
Ég valdi því þann fyrsta sem sýndi
þessu áhuga. Ég seldi þetta ekki á
neinu okurverði, heldur bara rétt upp í
kostnað og kannski aðeins meira,“
segir Stefán og bætir við: „Ég gat ekki
hugsað mér eftir 60 ára áhuga á knatt-
spyrnu að okra á einum eða neinum.
Þetta er mér persónulegt og ég mun
sjá eftir þessu úr Litlu kaffistofunni en
ég skil vel afstöðu stúlknanna tveggja
sem fannst þetta tengjast minni per-
sónu of mikið,“ segir Stefán.
Vildi myndirnar ekki í kassa
Hann segist hafa óttast það að safn-
ið myndi enda ofan í kassa. „Safnið er
fjölmiðlum að þakka því myndirnar
eru fengnar þaðan. Ég byrjaði á því
að klippa út úr blöðum. Höfuðdjásn
kaffistofunnar er fyrsta símamyndin
sem birtist í Morgunblaðinu 19.
ágúst 1959. Á henni eru bræðurnir
Hörður og Bjarni Felixsynir frá því
Ísland keppti við Danmörku á
Idrætsparken,“ segir Stefán en leik-
urinn endaði með jafntefli, 1-1. Hann
segir að kaupandinn hafi beðið um
trúnað bæði hvað varðar kaupverð og
hver hann sé. „Ég held að hann ætli
að afhenda einhverjum öðrum það,
einhverju safni eða í atvinnu-
starfsemi,“ segir Stefán sem tók lof-
orð af kaupandanum um að safnið
mundi fá virðulegan sess.
Tók loforð um að safnið
mundi fá virðulegan sess
Safn knattspyrnumynda af Litlu kaffistofunni selt
Morgunblaðið/Golli
Genginn út Stefán Þormar Guðmundsson yfirgefur Litlu kaffistofuna í gær,
í síðasta sinn sem rekstraraðili. Nýir aðilar taka við rekstrinum fyrir Olís.
SVIÐSLJÓS
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
Veitingastaðurinn McDonalds verð-
ur opnaður aftur á Íslandi í sumar
en athafnamennirnir Sigmar Vil-
hjálmsson og Jóhannes Ásbjörns-
son hafa tryggt sér sérleyfi til að
selja hamborgara frá matsöluris-
anum. Til að fagna áfanganum
verður boðið í fyrirpartí en þeir fé-
lagar fengu stóra sendingu frá
Bandaríkjunum á þriðjudag. Ætla
þeir að bjóða upp á Big Mac-máltíð
á aðeins 99 krónur á veit-
ingastaðnum Shake & Pizza í
Keiluhöllinni í Grafarvogi en stað-
urinn verður opnaður klukkan 11 í
dag.
Þeir félagar stefna að því að
opna fyrsta McDonalds-staðinn af
fimm með pomp og prakt í júní og
segja að dagsetningin 17. júní
hugnist þeim vel.
„Okkur hefur tekist að halda
þessu leyndu töluvert lengi en fyrst
þetta hefur spurst út þá get ég
staðfest fréttirnar. McDonalds
verður opnaður á ný og þetta fyrir-
partí í dag er bara til að fá Íslend-
inga til að muna eftir gamla góða
bragðinu,“ segir Jóhannes en Sig-
mar hefur unnið baki brotnu und-
anfarna mánuði við að tryggja þeim
félögum öll tilskilin leyfi.
„Ég fór til Los Angeles fyrir
skömmu til að klára þetta og við
erum búnir að skrifa undir alla
pappíra,“ segir Sigmar en Mc-
Donalds seldi sinn síðasta ham-
borgara hér á landi árið 2009.
Hvergi bangnir
McDonalds-staður var opnaður
hér á landi hinn 9. september 1993
þegar Davíð Oddsson fékk sér
fyrsta Big Mac-borgarann og urðu
veitingastaðirnir mest fjórir; við
Suðurlandsbraut, í Kringlunni, á
Smáratorgi og í miðbænum. Eftir
gengishrunið var rekstur McDon-
alds erfiðari vegna gengis krón-
unnar og tolla.
En Jóhannes og Sigmar eru
hvergi bangnir og munu að mestu
flytja inn hráefni í McDonalds--
réttina, eins og kjöt, ost og græn-
mæti, og aðföng frá erlendum
birgjum samkvæmt kröfum og
stöðlum McDonalds. „Þetta hefur
verið í undirbúningi í langan tíma.
Nú er þetta í höfn og það er gaman
að geta boðið Íslendingum upp á
þessa víðfrægu hamborgara aftur,“
segir Jóhannes.
Fæða 68 milljónir á dag
McDonalds er í 119 löndum og
með 36 þúsund útibú. Hamborg-
arakeðjan gefur um 68 milljón
manns að borða á hverjum einasta
degi.
Um ein og hálf milljón manna
vinnur fyrir McDonalds um allan
heim. Þeir eru frægastir fyrir ham-
borgara sína en einnig fyrir morg-
unmat og eftirrétti. Þá hafa þeir
víkkað matseðilinn og bjóða upp á
salat, fisk og fleira heilsusamlegt.
Hamborgari í pítsukeppni
Þegar Sigmar fór til Las Vegas í
byrjun mars sl. til að keppa í
stærstu pítsusamkeppni í heimi,
International Pizza Expo, þar sem
beikonsultupizza Shake&Pizza
hafnaði í fjórða sæti, fór hann í
leiðinni til Los Angeles og skrifaði
nafn sitt undir samninga við mat-
sölurisann.
„McDonalds lokar hér á landi ár-
ið 2009 og við opnum Fabrikkuna
ári síðar eða 2010 og það er gaman
að hafa þetta tvennt á okkar veg-
um. Þetta verður fyrsti staðurinn
af fimm sem stefnt er á að opna og
verður hér í Keiluhöllinni. Við mun-
um opna klukkan 11 í dag og bjóða
upp á Big Mac-máltíð á 99 krónur
svo lengi sem birgðir endast,“ segir
Sigmar.
Gefa ársbirgðir
Jóhannes segir að hérlent áhuga-
mannafélag um McDonalds hafi tal-
að við sig og það sé gott að vita af
fastakúnnum nú þegar.
„Nú getum við og megum til-
kynna þessa opnun, sem verður, ef
allt gengur að óskum, í júní. Af því
tilefni höfum við sett saman lítinn
leik á mbl.is þar sem við munum
gefa ársbirgðir af Big Mac. En
fyrirpartíið er í dag og það verður
mikil hátíð hjá okkur hér í Grafar-
vogi á Shake & Pizza.
Plássið sem við höfum hér er
mikið og McDonalds mun sóma sér
vel í Keiluhöllinni. Hamborgari og
keila fara vel saman,“ segir Jó-
hannes. Sigmar bendir á í lokin að
þótt fólk vinni ársbirgðir af Big
Mac sé hann ekki endilega að mæla
með því að borða slíkt á hverjum
degi.
McDonalds aftur til Íslands
Athafnamennirnir Sigmar Vilhjálmsson og Jóhannes Ásbjörnsson ætla að opna fimm McDonalds-
staði Fyrirpartí í dag í Keiluhöllinni á Shake & Pizza Bjóða upp á Big Mac á 99 krónur
Morgunblaðið/Golli
Tilbúnir Sigmar Vilhjálmsson og Jóhannes Ásbjörnsson með sýnishorn af veitingum McDonalds.
Egilshöll Félagarnir fyrir utan Shake & Pizza þar sem gleðin fer fram.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
UP! MEÐ
ÖRYGGIÐ
VW Up! frá aðeins:
1.790.000 kr.
Borgarráð samþykkti í gær tillögu að nýju
deiliskipulagi á svonefndum Kennarahá-
skólareit við Stakkahlíð, þar sem fyrirhugað er
að þétta byggð með 160 íbúðum, þar af 100 fyr-
ir námsmenn og 60 fyrir eldri borgara.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sátu hjá
við afgreiðslu málsins. Í bókun benda þeir m.a.
á að þrátt fyrir hörð mótmæli íbúa í hverfinu,
síðast á borgarafundi 9. mars sl., hafi tillögunni verið í engu breytt. Engin
merki sjáist þess að tekið hafi verið tillit til sjónarmiða íbúanna. Velta þeir
fyrir sér tilgangi opinna samráðsfunda, undir því yfirskini að verið sé að
vinna með íbúum að mótun deiliskipulags, ef ekkert tillit er síðan tekið til
ábendinga og athugasemda íbúa.
Athugasemdir íbúa við KHÍ-reit hunsaðar
Svona gæti KHÍ-reitur litið út.