Morgunblaðið - 01.04.2016, Page 10

Morgunblaðið - 01.04.2016, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. APRÍL 2016 ar, sagði á kynningarfundinum í gær að huga þyrfti að laxastofninum við umhverfismat og leyfisveitingar. Í verndarflokk er lagt til að fari fjögur svæði með eftirtöldum virkj- anakostum: Héraðsvötn, Skjálf- andafljót, Skaftá og Þjórsá vestur. Á þessum svæðum eru Villinganes- virkjun og Skatastaðavirkjanir í Héraðsvötnum í Skagafirði. Í Skjálfandafljóti eru þrjár útgáfur af Hrafnabjargavirkjun auk Fljóts- hnúksvirkjunar. Kjalölduveita er í Þjórsá. Fyrir eru í verndarflokki svæði með 16 virkjanahugmyndum. Þau rök eru einkum færð fyrir verndun Héraðsvatna að Jökulsárn- ar séu mikilvægar fyrir ferðaþjón- ustu í héraði og á landsvísu. Einkum er vísað þar til nýtingar þeirra til flúðasiglinga. Rætt er um áhrif Hrafnabjargavirkjana og annarra virkjana í Skjálfandafljóti á ferða- mennsku og útivist en einnig áhrif á menningarminjar og varpstöðvar fugla. Í biðflokk eru ellefu virkjanakost- ir flokkaðir. Þar eru tveir kostir í Hólmsá, Búðartunguvirkjun, Haga- vatnsvirkjun, Stóra-Laxá, Trölla- dyngja, Innstidalur, Hágönguvirkj- un, Fremrinámar og Búrfellslundur. Ekki lágu fyrir nægjanleg gögn til að meta Austurgilsvirkjun í Ísa- fjarðardjúpi og fer sá kostur því einnig í biðflokk. Þá eru ótaldir 28 virkjanakostir sem bíða frekari umfjöllunar. Athygli vekur að þeir tveir vind- myllugarðar sem Landsvirkjun til- kynnti um fóru hvor í sinn flokkinn. Blöndulundur er í nýtingarflokki, samkvæmt tillögunni, en Búrfells- lundur sem er lengra kominn í um- hverfismatsferli, í biðflokk. Blöndu- lundur er á röskuðu svæði með frekar lágu verndargildi. Búrfells- lundur er einnig á röskuðu svæði en áhrif hans á ferðir og útivist eru tal- in mikil. Mikill munur er á einkunn- um faghópa og telur verkefnisstjórn, með tilliti til almannahagsmuna, að bíða með ákvörðun um ráðstöfun svæðisins. Þrjú fljót fara í verndarflokk  Verkefnisstjórn rammaáætlunar kynnir drög að tillögum  Skjálfandafljót, Héraðsvötn og Skaftá verði vernduð svæði  Virkjanir í Neðri-Þjórsá settar í orkunýtingarflokk en með rauðu „flaggi“ Kynning » Verkefnisstjórnin kynnir drög að tillögu sinni á opnum fundum víða um land á næst- unni. » Að þeim loknum og eftir samráð við nokkrar stofnanir mun verkefnisstjórn ganga frá tillögum sínum og auglýsa formlega eftir athugasemdum. » Ætlunin er að ganga frá til- lögu og afhenda umhverfis- ráðherra 1. september þannig að hægt verði að leggja þings- ályktunartillögu um verndar- og orkunýtingaráætlun fyrir Alþingi í haust. BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Allar virkjanahugmyndir í Héraðs- vötnum í Skagafirði, Skjálfandafljóti í Þingeyjarsýslu og Skaftá, auk Kjal- ölduveitu í Þjórsá, fara í verndar- flokk samkvæmt drögum að tillögu verkefnisstjórnar 3. áfanga ramma- áætlunar sem kynnt var í gær. Sjö virkjanakostir bætast við orkunýt- ingarflokk, þar á meðal Holta- virkjun og Urriðafossvirkjun í Þjórsá. Verkefnisstjórnin leggur til að í nýtingarflokk fari eftirtaldir virkjanakostir: Skrokkölduvirkjun, Holtavirkjun, Urriðafossvirkjun, Austurengjar, Hverahlíð II, Þverár- dalur og Blöndulundur. Bætast þessir virkjanakostir við 10 kosti sem fyrir eru í orkunýtingarflokki samkvæmt núgildandi rammaáætl- un. Verndað vegna ferðamennsku Þess er getið í greinargerð verk- efnisstjórnar við Holtavirkjun og Urriðafossvirkjun að þótt þær komi báðar vel út úr einkunnagjöf fag- hópa þurfi að huga að laxastofninum sem hafi sérstöðu á heimsvísu hvað varðar stærð og aðlögun að óvenju- legu umhverfi. Faghópur lagði þannig til að Urriðafossvirkjun fengi „rautt flagg“ af þeim sökum. Stefán Gíslason, formaður verkefnastjórn- „Við munum nýta niðurstöðurnar sem enn eitt lóð á þá vogarskál að friðlýsa allt miðhálendið sem þjóðgarð. Þetta er sterk stuðningsyfirlýsing við okkur og önnur náttúruverndarsamtök,“ segir Snorri Baldursson, for- maður Landverndar. Hann segir drög verkefnastjórnar vera betri en samtökin þorðu að vona. Hann segir að svo virðist sem verkefnastjórnin hafi fallist á mikið verndargildi hálendisins með því að færa þrjú vatnasvið í verndarflokk, það er að segja Skjálf- andafljót, Héraðsvötn og Skaftá. „Þegar þetta er tekið saman er langt yfir helmingur hálendis Íslands þegar verndaður og restin þjóðlenda. Við erum býsna sátt við þetta,“ segir Snorri. Fallist á mikið verndargildi hálendisins Snorri Baldursson „Ég varð fyrir vonbrigðum að þessir kostir skyldu þó ekki allavega fara í biðflokk þannig að okkur gæfist kostur á að rannsaka ýmsa þætti frekar,“ segir Helgi Jóhannesson, forstjóri Norðurorku, sem hefur verið að þróa Hrafna- bjargavirkjun í Skjálfandafljóti í samvinnu við fleiri fyrir- tæki og heimamenn. Allt Skjálfandafljót er sett í verndar- flokk í tillögunum. Helgi segir að fljótt á litið virðist flokkunin ráðast af víðerni og ósnortinni náttúru. Það sé metið út frá ferða- mönnum. „Mér finnst sérstakt að mat fárra einstaklinga ráði slíku.“ Hrafnabjargavirkjun er eini stóri virkjanakosturinn sem Norður- orka á aðild að. „Þetta er ákveðið áfall, ekki aðeins fyrir Norðurorku heldur Norðlendinga, að bæði Héraðsvötn og Skjálfandafljót fari í verndarflokk. Það sitja eftir spurningar. Ekki virðist mega virkja á okkar svæði af því að það er öðrum svo mikilvægt en við horfum meira á atvinnu og þá möguleika sem svæðin gefa okkur, þótt auðvitað viljum við öll vernda náttúruna.“ Áfall fyrir Norðlendinga Helgi Jóhannesson „Það hefur orðið stórkostlegt tjón af tveggja ára töf á að hefja undirbúning að virkjunum,“ segir Jón Gunn- arsson, formaður atvinnuveganefndar Alþingis. Hann vísar til þess að meirihluti atvinnuveganefndar lagði til að fleiri virkjanir yrðu færðar með Hvammsvirkjun úr biðflokki í nýtingarflokk, sérstaklega hinar virkj- anirnar í Neðri-Þjórsá og Skrokkölduvirkjun. Það komst ekki í gegn um þingið. Jón segist hafa áhyggjur af stöðunni á orkumarkaði þótt þrjár vatnsaflsvirkjanir bætist við. Lengri tíma taki að undirbúa jarðvarma- virkjanir. „Mikil þörf er á orku fyrir orkutengdan iðn- að og þar liggja mikil tækifæri, ekki síst í hinum dreifu byggðum lands- ins. Við erum að sjá fram á áframhaldandi stopp í því og erfitt er að svara eftirspurn frá fjölbreyttum fyrirtækjum sem þurfa orku til sinnar starfsemi,“ segir Jón. Mikið tjón vegna tafa á virkjunum Jón Gunnarsson „Það vekur athygli að ekkert er horft til spurning- arinnar um hagkvæmni eða til efnahagslegra áhrifa. Ákvarðanir eru teknar út frá svæðum og verndargildi þeirra en ekki metið á móti efnahagslegt mikilvægi eða hagkvæmni,“ segir Gústaf Adolf Skúlason, fram- kvæmdastjóri Samorku. Hann vekur athygli á því að umframeftirspurn er eftir orku í landinu og því séu þessar spurningar uppi. „Þessi nálgun, að horfa ekki til hagkvæmninnar, endurspeglast meðal annars í því að það eru stórir og hagkvæmir vatnsaflskostir sem hljóta ekki náð fyrir augum verkefn- isstjórnarinnar.“ Gústaf Adolf Skúlason Ekki horft til hagkvæmni og efnahags „Ég get ekki ann- að sagt en að verkefnisstjórnin hafi unnið sína vinnu vel. Henni var falið vanda- samt verk. Þetta er ákveðin jafn- vægislist, að meta þessa kosti, og endalaust hægt að takast á um flokkun þeirra,“ seg- ir Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- ráðherra. Að loknu samráðsferli mun verk- efnisstjórnin afhenda umhverfis- ráðherra endanlega tillögu sína, 1. september. Hún mun síðan leggja tillögu sína fyrir Alþingi á haust- þingi. „Ég veit ekki hvort tillagan verður svipuð og var kynnt í dag. Ef ég verð sæmilega sátt mun ég leggja hana fram óbreytta. Það er mín óskastaða að þurfa engu að breyta.“ Óskastaðan að þurfa engu að breyta Sigrún Magnúsdóttir Opið 09-23 | Laugavegi 12 | 101 Rvk. | Sími 551 5979 | lebistro.is franskur, íslenskur, enskur eða heilsu Brunch alla daga frá 9-14 ÞÚF ÆRÐ VÉLS LEÐA - FATN AÐIN NHJ ÁOK KUR STORMUR EHF | KLETTHÁLSI 15 | S: 577 1717 | WWW.STORMUR.IS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.