Morgunblaðið - 01.04.2016, Page 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. APRÍL 2016
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Ástæðan fyrir því að þessibók verður til er að églendi í því að gera alls kon-ar mistök í krydd-
jurtarækt. Ég fer að kortleggja mis-
tökin og líka að skrifa niður það sem
ég geri rétt. Út frá þessu stofnaði ég
facebook-síðu fyrir mig og vinkonur
mínar til að halda utan um þetta,
eins konar gagnagrunn sem stækk-
aði og stækkaði,“ segir Auður Rafns-
dóttir, höfundur bókarinnar Krydd-
jurtarækt fyrir byrjendur, sem kom
út nýverið. Þess má geta að í dag eru
meðlimir í facebook-hópnum sem
hún stofnaði, Áhugafólk um krydd-
jurtaræktun, orðnir tæplega 10 þús-
und. Í þessum hóp hefur fólk skipst á
ráðum og upplýsingum á þeim þrem-
ur árum sem síðan hefur verið í loft-
inu. „Mér fannst það liggja einhvern
veginn beinast við að gefa þetta út á
pappír. Í rauninni er fólkið á síðunni
búið að skrifa þessa bók en ég tók
hana saman,“ segir Auður.
Gagnagrunnsmiðuð
Auður vinnur hjá fyrirtækinu
Creditinfo sem sérhæfir sig í fjöl-
miðla- og fjármálagagnagrunni. Hún
segist sjálf vera svolítið „gagna-
grunnsmiðuð“.
Í bókinni er farið yfir öll helstu
atriði sem byrjendur þurfa að hafa í
huga þegar þeir hefja kryddjurta-
ræktun. Ýtarlegar upplýsingar eru
um 12 kryddjurtir allt frá sáningu til
gómsætra uppskrifta og krydd-
blandna. Í bókinni eru einnig minn-
isblaðsíður til að skrifa niður hjá sér.
Auður bendir á að reynslumiklir
ræktendur læri alltaf eitthvað nýtt á
Mistök leiddu til
bókarskrifa
Einlægur áhugi á kryddjurtaræktun hefur leitt Auði Rafnsdóttur til bókarskrifa, í
sjónvarpsþáttagerð, pistlaskrif og á samfélagsmiðla. Kryddjurtarækt fyrir byrj-
endur nefnist bókin hennar sem kom nýverið út. Hún segir það ekki í boði að vera
kjarklaus í lífinu heldur fylgja áhuganum á þann stað sem það leiðir mann.
Matargerð Ferskar kryddjurtir eru einstaklega góðar í matargerð.
Þurrkun Vel ræktaðar kryddjurtir gefa mikið af sér sem gott er að þurrka.
Það er alltaf gaman að leyfa huganum
að reika, sérstaklega í ferðalög til
framandi landa. Heimasíða ferða-
bloggarans Alastairs Humphreys er
forvitnileg fyrir margra hluta sakir.
Þar er að finna flottar og fræðandi
sögur af ferðalögum til ýmissa landa.
Humphrey er ævintýramaður fram í
fingurgóma og hefur m.a. ferðast
gangandi yfir Indand, róið yfir Atlants-
hafið, hjólað um heiminn og gengið
um Ísland. Tímaritið National Geo-
graphic útnefndi Humphrey ævintýra-
mann síðasta árs fyrir að hvetja fólk
til að fara í litlar ævintýraferðir og
stíga út fyrir þægindarammann. Hann
hefur skrifað fjölda bóka og heldur
einnig fyrirlestra víða um heim. Það
þurfa ekki allir að takast á við jafn
krefjandi verkefni og Humphrey en á
heimasíðunni hans er að finna ýmis
góð ráð, t.d. við val á áfangastöðum
og heppilegar fjallgöngur.
Vefsíðan www.alastairhumphreys.com
Fjallganga Alastair Humphrey hvetur fólk til að stunda fjallgöngur.
Hvetur fólk til ævintýraferða
Þær Gyða Valtýsdóttir og Shahzad Is-
maily halda tónleika í Mengi í kvöld,
föstudagskvöld. Tónleikarnir hefjast
klukkan 21 og er miðaverð tvö þús-
und krónur.
Gyða hóf tónlistarferilinn á tán-
ingsaldri með hljómsveitinni Múm.
Hún yfirgaf sveitina til að einbeita
sér að klassísku tónlistarnámi og
lærði meðal annars í Rimsky-
Korsakov Conservatory í St. Péturs-
borg og Hochschule für Musik í Basel
þar sem hún lauk meistaranámi í
sellóleik hjá Thomas Demenga og
frjálsum spuna hjá Walter Fähndrich.
Shahzad Ismaily er þúsundþjala-
smiður í tónlist sem hefur unnið með
stórum hópi tónlistarmanna.
Endilega …
… hlýðið á Gyðu og Shahzad
Tónlistarkona Gyða Valtýsdóttir.
Kvikmyndin Crossing Iceland verður
sýnd í Bíó Paradís í kvöld kl. 19.30 og
frítt er inn. Þar segir frá ofurhug-
anum Jerome Josserand sem fór 200
km leið yfir hálendi Íslands á skíðum
og á flugdreka. Hann langaði að fara
yfir hálendið frá suðri til norðurs á
einum degi á þessum búnaði.
Jerome Josserand býr í frönsku
Ölpunum þar sem hann ólst upp og
eyddi mikilum tíma á skíðum. Hann
setti heimsmet árið 2007 þegar hann
flaug í 450 metra hæð yfir jörð í flug-
dreka. Hann er hugfanginn af kraft-
miklum vindi sem myndast oft í
kringum fjöll. Þegar hann kynntist Ís-
landi þá þótti honum snjórinn og
vindurinn heillandi og ákvað því að
kanna hvort hann gæti komist yfir
þetta landsvæði á þessum tiltekna
tíma. Þess má geta að við tökur á
myndinni fór vindhraðinn í 80 km/
klst. Hvort honum tókst ætlunar-
verkið kemur í ljós í myndinni.
Kvikmyndin Crossing Iceland
Á skíðum og á flugdreka yfir
stormasamt hálendi Íslands
Ofurhugi Mynd um ferð Jerome Josserand yfir hálendi Íslands sýnd í kvöld.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
fenix 3 sameinar glæsilega hönnun og fjölnota GPS snjallúr
Íþrótta- og útivistarfólk þarf ekki lengur að velja á milli – fenix 3 er bæði fullkomið íþróttaúr, útivistarúr,
snjallúr og úr sem þú notar daglega í vinnu og leik. Þú getur einnig sérsniðið úrið að þínum þörfum með
mismunandi upplýsingagluggum, forritum eða úraskífu með Connect IQ appinu frá Garmin.
Ögurhvarfi 2, 203 Kópavogur, sími 577 6000, garmin.is
toppaðu
gærdaginn