Morgunblaðið - 01.04.2016, Side 13
Morgunblaðið/Eggert
Ástríðufullur kokkur „Ég rækta kryddjurtir til þess að geta eldað betri mat,“ segir Auður Rafnsdóttir sem var
að gefa út bókina Kryddjurtarækt fyrir byrjendur, sem er samantekt á haldgóðum ráðum.
hverju ári og því mikilvægt að halda
utan um þær upplýsingar.
Ræktar til að elda
„Ég rækta kryddjurtir til þess
að geta eldað betri mat. Ég er ekki
þessi ástríðufulli ræktandi heldur vil
ég rækta heima í stofu og úti á svöl-
um. Markmiðið með bókinni er að
nálgast þennan hóp fólks sem býr í
blokk og er með lítinn garð en vill
samt rækta,“ segir Auður. Innt eftir
því hvort hún hljóti ekki að vera mik-
ill matgæðingur segist hún ekki geta
neitað því. „Þeir sem þekkja mig vita
að ég hef yndi af matreiðslu og elska
að borða góða mat. Ég hef líka svo
gaman af að gefa að borða, það er
þessi móðurtilfinning í manni.“
Auður segir áhugann á heima-
ræktun hafa aukist mikið á síðustu
árum. Hún rekur það bæði til hruns-
ins og eins til breytinga á lífsstíl
fólks. Fólk vill í auknum mæli vita
hvaðan hráefnið sem það neytir
kemur. „Það er tvennt ólíkt að nota
sína eigin kryddjurt í matargerð og
einhverja sem er keypt úti í búð því
þá veit maður ekkert hverju hefur
verið sprautað yfir hana. Það er svo
gaman að sjá kryddjurtina vaxa og
dafna í eldhúsglugganum og nota
hana svo í matargerð,“ segir Auður.
Áhuga Auðar á kryddjurtum
má líkja við snjóbolta sem heldur
áfram að rúlla og stækka. Hún held-
ur ekki eingöngu utan um facebook-
síðuna sem hún stofnaði fyrir þrem-
ur árum heldur hefur hún skrifað
pistla á Spyr.is, verið með þætti á
sjónvarpsstöðinni Hringbraut og í
ofanálag er hún öflug á samfélags-
miðlunum. Á instagram og á snapc-
hat er hægt að fylgjast með henni
undir nafninu kryddjurtir. Núna
undirbýr hún gerð þátta heima hjá
sér sem verða væntanlega á dagskrá
hjá Hringbraut næsta vor.
Hún bendir á að þetta sé eins og
svo margt sem fólk hefur áhuga á að
áhugamálið tekur yfir. „Fyrir mér er
bókin líka það að þora. Þegar maður
þorir þá er maður svolítið óöruggur í
smátíma á meðan bókin er að koma
út. Ef maður þorir ekki þá er maður
svolítið að missa sjálfan sig. Þú ert
að tapa og hika. Maður þarf að þora í
lífinu, það þýðir ekkert annað. Ann-
ars situr maður bara heima fyrir
framan sjónvarpið,“ segir Auður og
hlær.
Hún viðurkennir að það ein-
kenni hana að vera frekar drífandi
og kjörkuð. Það sem hún tekur sér
fyrir hendur verður henni að takast,
eins og hún orðar það sjálf. „Ég tók
þetta markvisst enda er bókin fyrir
þá sem vilja gera þetta á sem mögu-
lega réttastan hátt,“ segir Auður. Í
þessu samhengi nefnir hún að al-
gengustu mistökin sem fólk gerir,
t.d. með basilíku, séu að taka
stærstu blöðin af henni. Það á að
taka efst af plöntunni því stóru blöð-
in taka birtuna svo hún geti vaxið og
dafnað. Þegar litlu nýju blöðin eru
tekin þá þéttist plantan.
Auður eins og allir kryddjurta-
ræktendur á þessum árstíma er að
sá fræjum núna og hlakkar til sum-
arsins sem er víst rétt handan við
hornið.
Hægt er að fylgjast með krydd-
jurtaræktun Auðar undir nafninu
kryddjurtir á instagram og snap-
chat og einnig á facebook.com í
hópnum áhugafólk um krydd-
jurtaræktun.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. APRÍL 2016
Enn eru laus pláss á stutt, létt og lif-
andi leiklistarnámskeið sem Leiklist-
arskólinn Opnar dyr heldur 5. apríl
næstkomandi. Námskeiðið er fyrir
alla 17 ára og eldri. Á þessu nám-
skeiði er áherslan á sköpun, leik og
gleði. Gerðar verðar æfingar sem
auka jákvæðni og gleði og opna fyrir
sköpunarflæði og tjáningarfrelsið.
Kennarar á námskeiðinu eru Ólöf
Sverrisdóttir leikari og leiklistar-
kennari og Ólafur Guðmundsson leik-
ari og leiklistarkennari.
Námskeiðið verður á þriðjudögum
kl 20.15 -22.30 í fimm þriðjudaga og
kostar 28 þúsund krónur. Skráning
og frekari upplýsingar í iceolof-
@hotmail.com og í síma 845-8858.
Leiklistarskólinn Opnar dyr hefur
það að markmiði að gefa fullorðnu
fólki tækifæri til að kynnast leik-
rænni tjáningu í afslöppuðu og
öruggu umhverfi. Námskeiðin eru
ætluð þeim sem vilja skemmta sér,
losa um hömlur og fá útrás fyrir
sköpunargleðina í spuna og leik.
Leiklistarnámskeið
Morgunblaðið/G.Rúnar
Leikari Ólöf kennir á námskeiðinu.
Æfingar sem
auka gleðiAð nota næringarsnauða mold
Mikilvægt er að nota alltaf
næringarmikla mold. Hjá rækt-
unarstöðvum er hægt að kaupa
góða mold sem blönduð hefur
verið með moltu. Kryddjurtin
mun einfaldlega sýna þér það í
stærð og vexti að hún nærist vel.
Að leyfa jurtinni
að blómstra
Mikilvægt er að klippa burt
blóm ef jurtin fer að blómstra.
Annars mun hún einbeita sér að
blómguninni á kostnað lauf-
anna.
Að gefast upp
Ekki gefast upp eftir fyrstu
tilraun. Þolinmæði er mikill
kostur þegar fólk prófar sig
áfram með ræktun af öllu tagi.
Þegar þú nærð tökum á rækt-
uninni færðu erfiðið margfald-
lega launað. Það er fátt meira
gefandi en að nota sínar eigin
kryddjurtir í matreiðslu og miklu
ódýrara en að kaupa ferskar
kryddjurtir úti í búð.
ÚR BÓKINNI
Nokkur atriði
sem ber að
varast
Ég er loksins orðinn ögnlíkari uppáhalds StarWars-karakternum mín-um. Ég er nefnilega orð-
inn faðir, eins og Svarthöfði. Reynd-
ar vona ég að ég verði ögn betri faðir
en Svarthöfði var. Líkurnar á því að
ég mæti syni mínum í einvígi um ör-
lög vetrarbrautarinnar eru sem bet-
ur fer hverfandi, hvað þá að því ein-
vígi muni ljúka með því að hann
þurfi að leita á náðir stoðtækja-
smiðsins Össurar. Það er því
kannski ekki svo hár þröskuldur
sem ég þarf að yfirstíga til þess að
toppa Svarthöfða gamla í foreldra-
deildinni.
Ekki það að ég hafi ekki freistast
nokkrum sinnum til þess að segja
„Nei, ég er faðir þinn!“ við litla
krílið í örmum mér. Hann
mun skilja það seinna, þegar
ég neyði hann til þess að
horfa á Empire Strikes
Back með mér. Gamli bíð-
ur þeirrar stundar með
mikilli eftirvæntingu.
En þangað til þarf
að sinna ýmsum
verkefnum.
Bleyjuskiptum,
pelagjöfum,
sótthreins-
unum. Ég efast
um að tedrekk-
andi Tjalli frá
Tálknafirði sem
er sísólginn í
Earl Grey hafi
soðið jafnmikið
vatn síðustu tvær vikurnar og ég. Á
verstu stundunum hugsar maður
með sér hvað maður sé eiginlega bú-
inn að koma sér út í. En þær líða
fljótt hjá og það næsta sem ég veit
er að ég get eiginlega ekki hugsað
mér lífið eins og það var áður. Krílið
brosir, og þótt ég viti að hann sé enn
of ungur til þess að gera það vilj-
andi fyllist ég ótrúlegri gleði
og gleymi því að nokkrum
sekúndum fyrr prumpaði
hann framan í mig.
Faðir. Þetta orð. Það pass-
ar eitthvað svo illa við það að
mér líður enn eins og ég sé
18 ára gamall, jafnvel þó að
sá tími tilheyri annarri öld.
Ég er faðir þinn.
Tími til að fullorðnast.
Við Benni getum
kannski bara gert
það saman?
»Faðir. Þetta orð. Þaðpassar eitthvað svo
illa við það að mér líður
enn eins og ég sé 18 ára
gamall, jafnvel þó að sá
tími tilheyri annarri öld.
Heimur Stefáns Gunnars
Stefán Gunnar
Sveinsson
sgs@mbl.is
Salvör Davíðsdóttir
Sölufulltrúi
www.fr.is
Sylvía G.Walthersdóttir
Löggiltur fasteignasali. sylvia@fr.is
FRÍTT VERÐMAT
ENGAR SKULDBINDINGAR
HRINGDUNÚNA
8208081