Morgunblaðið - 01.04.2016, Síða 14

Morgunblaðið - 01.04.2016, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. APRÍL 2016 Til sölu eru eignir þrotabús Sveinbjörns Sigurðssonar hf. Eignirnar samanstanda af bifreiðum, vinnuvélum, vinnupöllum, vinnubúðum og ýmsum öðrum búnaði. Eignirnar verða til sýnis næstu daga. Tilboð í eignir skulu berast í síðasta lagi föstudaginn 8. apríl nk. til undirritaðrar. Nánari upplýsingar um eignir eru veittar samkvæmt beiðnum sem óskast sendar á netfangið hulda@LL3.is Hulda Rós Rúriksdóttir hrl. skiptastjóri þrotabús Sveinbjörns Sigurðssonar hf. semi félagsins eru aðgengileg á vef fyrirtækjaskrár Lúxemborgar. Helstu atburðir í sögu félagsins eru raktir á grafi hér fyrir ofan. Þar má sjá að það var stofnað í samstarfi við Kaupthing Bank Luxembourg. Sama mynstur kemur hér fram og hjá mörgum félögum sem voru í eigu Íslendinga í Lúxemborg, að félög frá Tortóla eiga sæti í stjórn og eru skráð sem umsjónarmaður (fr. commissaire). Vilhjálmur kemur inn í stjórnina 2007, en árið 2010 hætta hann og fulltrúar Tortóla-félaganna í stjórn félagsins og í staðinn koma Hollendingur, Lúxemborgari og félag skráð í Belize, skattaskjóli í Karíbahafinu, sem heitir Diretora Corporate Services S.A. Sumarið 2014 kemur fram í skjöl- um Meson Holding að kona að nafni Denise Lopez komi inn í stjórn sem fulltrúi félagsins frá Belize. Vísar til óstöðugleika á Íslandi Hafði Meson Holding þá tekið upp evru sem uppgjörsmynt í ársbyrjun 2014. Það vekur athygli í ljósi þeirra skrifa Vilhjálms í áðurnefndum pistli að félagið væri „ekki í Lúxemborg vegna skattahagræðis, heldur fyrst og fremst vegna krónunnar, gjald- eyrishafta og óstöðugleika íslensks efnahags og stjórnmálaumhverfis“. Tveir einstaklingar koma inn í stjórn félagsins í nóvember sl., Fabrice Geimer og Roberto Chi- appalone (ættarnafn er tilgreint á undan eiginnafni í grafinu hér). Þá kom André Spörri, búsettur í Sviss, inn sem fulltrúi Diretora Corporate Services í byrjun þessa árs. Frá stofnun hefur eignarhalds- félagið Meson Holding því m.a. haft fulltrúa félaga/félög frá Tortóla, Be- lize, Lúxemborg, Hollandi og Sviss. Þá hefur félagið sem áður segir átt hlutabréf í félagi í Bretlandi og 100% hlut í félögum á Guernsey og Kýpur. Vilhjálmur tjáði sig um félagið í Lúxemborg í spjallþræði á Facebook í fyrradag og skrifaði þar að „Lúx- emborg ætti reyndar ekki að nefna í sömu andrá og Panama og Tortóla (Jómfrúreyjar) því landið er innan EES, hlutafélög þar eru skattlögð hærra en á Íslandi (21,84% tekju- skattur vs. 20%), og í gildi er tví- sköttunarsamningur milli Íslands og Lúxemborgar … Ég á félag í Lúx- emborg … það er ekkert leyndar- mál. Það er fullskattlagt félag sem greiðir 21,84% tekjuskatt. Skattar eru ekki ástæðan fyrir því að ég vil hafa félagið þar, heldur krónan,“ skrifaði Vilhjálmur. Var skattfrjálst að mestu Fram kemur í eldri skjölum Meson Holding að það var svokallað 1929-félag og skattfrjálst að mestu. Í mars 2010 er hlutverk félagsins endurskilgreint og virðist það hafa haldið því skipulagi síðan. Vilhjálmur á margar eignir á Ís- landi. Fram kemur í ársreikningi Miðeindar árið 2013 – félagið hét áð- ur Teton B. ehf. – að hluthafar voru þrír; Meson Holding S.A. (40%), K13 Holding S.A. (40%) og GSSG Hold- ing S.A. (20%). Samkvæmt fyrir- tækjaskrá Creditinfo áttu félögin sömu hlutdeild í Teton 31.12. 2014. Athugun á skjölum K13 Holding S.A. í fyrirtækjaskrá Lúxemborgar sýnir að hjónin Örn Karlsson og Hellen Magnea Gunnarsdóttir hafa þar setið í stjórn. Þá sýnir athugun á skjölum GSSG Holding S.A. í sömu skrá að Gunnlaugur Sigmundsson sat þar í stjórn. Heimilisfang K13 Holding var flutt frá Lúxemborg til Möltu í lok síðasta árs. Loks hefur GSSG Holding nýbirt fimm skjöl með ársreikningum 2009-13. Meson Holding SA Helstu atburðir í sögu félagsins* *Heimild: Fyrirtækjaskrá Lúxemborgar, alls 31 skjal. 30.10.2000 Félagið stofnað í Lúxemborg. Íslensk króna er uppgjörsmynt félagsins. 8.2.2008 Ársreikningur birtur fyrir árið 2006. 4.4.2008 Tilkynning um óbreytta skipan stjórnar- manna. 3.2.2010 Tilkynning um breytt markmið með rekstri félagsins. Fjallað er um það í greininni. 3.2.2010b Önnur sambærileg tilkynning. 16.3.2010 Ársreikningur birtur fyrir árið 2007. 16.3.2010b Ársreikningur birtur fyrir árið 2008. 17.3.2010 Heimilisfangi félagsins breytt í 5 Avenue Gaston Diderich. Birefield Holding Limited, Starbrook International Limited, Rothly Company Limited, ogVilhjálmur Þorsteinsson hætta í stjórn. Hollendingurinn Dennis Marc Bosje kemur inn í stjórn, sem og Lúxemborgarinn Sinan Omer. Jafnframt kemur félagið Diretora Corporate Services SA inn í stjórn. Það er skráð til heimilis íWithfield Tower, Coney Drive, Belize-borg, Belize. Fram kemur að Svíþjóð sé nú heimalandVilhjálms. Félagið Kohnen &Associés S.á.r.l. tekur við sem commissaire hjá félaginu. 27.4.2010 Tilkynning um að Waverton Group Limited sé farið úr stjórn. 11.8.2011 Ársreikningur birtur fyrir árið 2009. Hlutafjáreign í einstökum félögum er tilgreind. 28.11.2011 Sömu upplýsingar en á ensku. 26.3.2012 Tilkynning um hluta- fjáreign. 11.6.2012 Ársreikningur birtur fyrir árið 2010. 10.12.2012 Ársreikningur birtur fyrir árið 2011. 13.6.2014 Tilkynning um að Denise Lopes, til heimilis að Jaribu Street í Belize, sé fulltrúi Diretora Corporate Services S.A. 16.6.2014 Ársreikningur birtur fyrir árið 2012. 11.8.2014 Tilkynning um að uppgjörsmynt félagsins sé króna frá og með 1. janúar 2014. Miðað er við gengi svissneska bankans Credit Suisse, sem sagt er 229,62 krónur fyrir evruna. 11.8.2014b Tilkynning ummarkmið félagsins og skiptingu hlutafjár sem nú er tilgreind í evrum. 20.1.2015 Ársreikningur birtur fyrir árið 2013. 20.11.2015 Tilkynning um að Dennis Marck Bosje og Sinan Omer hafi hætt í stjórn. Breyting á skráningu Diretora Corporate Services SA.Geimer Fabrice og Chiap- palone Roberto koma inn í stjórn. 18.12.2015 Ársreikningur birtur fyrir árið 2014. 2.2.2016 Tilkynning um aðAndré Spörri, búsettur í Basel í Sviss, sé nú fulltrúi Diretora Corporate Services SA. 28.5.2003 Fulltrúi Kaupthing Bank Luxembourg S.A. undirritar ársreikning fyrir árið 2001. Rothley Company Limited, félag á Tortóla-eyju, fór með gerð árs- reikningsins. Björn Jónsson undirritar ársreikninginn sem skoðunarmaður. 12.4.2006 Ársreikningur birtur fyrir árið 2002. Fram kemur að félagið gangi í 100.096.034 króna ábyrgð fyrir Kaup- thing Bank Luxembourg, samkvæmt samkomulagi (e. „M-trade“). 20.12.2006b Ársreikningur birtur fyrir árið 2004. Hluthafar samþykkja að auka hlutafé um allt að 100 millj. 9.10.2007 Ársreikningur birtur fyrir 2005. Fram kemur að heimild til að auka hlutafé hafi verið nýtt að hluta, eða að fjárhæð 29.340.000 kr. 7.7.2003 Félögin Birefield Holding Ltd.,Waverton Group Ltd. og Starbrook International Ltd. á Tortóla-eyju koma inn sem stjórnandi (fr. administrateur). Rothley Company Ltd. er um- sjónarmaður (fr. commissaire). 6.11.2006 Félagið breytir um heimilisfang, flytur sig yfir til 35a Avenue J.F. Kennedy, Lúxemborg. 20.12.2006 Ársreikningur birtur fyrir árið 2003. 12.2.2007 Vilhjálmur Þorsteinsson kemur inn sem stjórnandi (fr. administrateur) hjá félaginu. Birefield Holding Ltd. og Starbrook International Limited eru áfram sem administrateur. Rothley Company Limited er commissaire. 5.11.2007 Tilkynning um óbreytta skipan stjórnar- manna. Tengsl við mörg skattaskjól  Vilhjálmur Þorsteinsson fjárfestir hefur átt hluti í félögum í Guernsey, Kýpur, Íslandi og Lúxemborg  Í eignarhaldsfélagi hans í Lúxemborg hafa meðal annars verið fulltrúar frá Tortóla, Belize og Sviss *Evra varð uppgjörsmynt 1. 1. 2014. Afkoma Meson Holding S.A. í krónum Eignir félagsins Hagnaður/ tap 2000 270.698.387 -27.661.669 2001 175.401.110 -145.447.412 2002 193.333.926 29.818.945 2003 185.798.231 20.720.083 2004 226.191.403 13.257.213 2005 212.991.427 15.690.853 2006 460.812.764 101.289.268 2007 354.230.457 31.714.460 2008 519.719.882 162.722.109 2009 1.699.035.468 721.892.685 2010 1.025.697.343 -681.314.999 2011 1.052.581.275 13.224.777 2012 1.058.052.353 9.729.318 2013 1.031.854.493 -21.930.575 2014 (í evrum)* 6.313.906 -204.014 Eignarhlutur Meson Holding S.A. í öðrum félögum Samkvæmt ársreikningum félagsins 2009, 2012, 2013 og 2014* *Þessar upplýsingar eru ekki tilgreindar í ársreikningi 2010. Félag Heimili Hlutur2009 Hlutur 2011 Hlutur 2012 Hlutur 2013 Hlutur 2014 Teton ehf. Ísland 40% 40% 40% 40% 40% Teton B. ehf. Ísland 100% Verne Holdings ehf. Ísland 1% 1% 0,2% 0,2% 0,2% CCP hf. Ísland 2,4% 2,4% Extrada Limited Bretland 19,89% 19,89% 19,89% Auður Capital hf. Ísland 9,17% 8,44% 8,33% Gogogic ehf. Ísland 2,5% DataMarket ehf. Ísland 6,12% 6,90% 5,69% 5,69% Gogo Holdings slhf. Ísland 10% 10% 10% 10% 10% Jacinth Guernsey 100% Dohop ehf. Ísland 2,09% 2,19% 2,19% 1,97% Alamina Limited Kýpur 100% 100% 100% Virðing hf. Ísland 4,01% 3,63% AC eignarhald hf. Ísland 7,56% Miðeind ehf. Ísland 100% Green Qloud Ísland 3,14% 2,3% BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Vilhjálmur Þorsteinsson fjárfestir hefur frá aldamótum átt eignar- haldsfélagið Meson Holding S.A. í Lúxemborg. Hefur það farið með eignarhald á félögum á Kýpur og Guernsey, auk þess að eiga fimmt- ungshlut í breska félaginu Extrada Limited. Flestar eignirnar hafa þó verið á Íslandi, eins og sýnt er hér til hliðar. Vilhjálmur rifj- aði í fyrradag upp í pistli á Eyjunni, með fyrirsögnina Um meint „aflandsfélög“ og „skattaskjól“, að hann stofnað hug- búnaðarfyrirtæki árið 1983, ásamt félaga sínum, og seldi það svo til erlends félags á tíunda áratugnum. „Síðan þá hef ég verið vel settur fjárhagslega,“ skrifaði Vilhjálmur en í niðurlagi greinarinnar greindi hann frá afsögn sem gjaldkeri Samfylk- ingarinnar, vegna umræðu um félag- ið í Lúxemborg. Sú umræða tæki at- hyglina frá almennri umræðu um „aflandsfélög og skattaskjól [og] það sem máli skiptir: ríkisstjórnina og stjórnarmeirihlutann í landinu“. Skilaði hagnaði flest árin Eignarhaldsfélagið Meson Hold- ing, eða Miðeind á íslensku, hefur skilað hagnaði flest árin frá stofnun. Um 30 skjöl sem tengjast starf- Vilhjálmur Þorsteinsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.