Morgunblaðið - 01.04.2016, Side 16

Morgunblaðið - 01.04.2016, Side 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. APRÍL 2016                                     ! "#  " $" # ! " %"  $#! $%" &'()* (+(      ,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5 $  $ "##  $ #  %"!#  # $%" #   "#$ ! $"! # #$ %""  "%$ $%# !% Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Gistinóttum á hótelum hérlendis fjölgaði um 37% í febrúar, miðað við sama mánuð í fyrra. Voru þær 267.900 að þessu sinni. Gistinætur erlendra gesta voru 89% af heildarfjölda þeirra og fjölgaði gistinóttum um 41% hjá þeim hópi. Gistinóttum Íslendinga fjölg- aði í febrúar um 15% frá sama tímabili í fyrra. Bretar voru með 101.600 gistinætur, Bandaríkjamenn 47.900 og Þjóðverjar komu þar á eftir með 17.700 nætur. Langflestar gistinæturnar voru skráðar í Reykjavík eða ríflega 200 þúsund tals- ins. Næstflestar voru þær á Suðurlandi, 35.600. Sprenging varð í fjölda gistinátta í febrúar ● Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hækk- aði um 0,23% í viðskiptum gærdagsins og hefur nú hækkað um 0,26% frá því um áramótin. Í gær voru mest viðskipti með hlutabréf í VÍS og nam heildarvelta þeirra viðskipta rúmum milljarði króna. VÍS var jafnframt það félag sem leiddi hækkun gærdagsins en bréf þess hækkuðu um 1,86% frá fyrra degi. Næstmest voru viðskipti með bréf í Ice- landair Group eða 453 milljónir og þar á eftir kom Marel en viðskipti með bréf í fyrirtækinu námu 340 milljónum króna. Úrvalsvísitalan nálægt gildi sínu um áramót STUTTAR FRÉTTIR ... BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Sjávarútvegsfyrirtækið Icelandic Group skilaði rúmlega fjögurra milljóna evra hagnaði í fyrra, sem jafngildir um 560 milljónum króna. Fól það í sér umskipti upp á tæpar níu milljónir evra frá árinu á undan þegar félagið tapaði 4,8 milljónum evra eða 570 milljónum króna. Á síðasta ári seldi Icelandic starf- semi sína í Asíu til útgerðarfyrir- tækisins Brims hf. Bókfært tap af sölu þess hluta starfseminnar nam 3,9 milljónum evra. Því nam hagn- aður af þeirri starfsemi sem enn er á höndum félagsins ríflega 7,9 millj- ónum evra á síðasta ári, eða 1,1 milljarði króna. Tap af sömu starf- semi nam 5,4 milljónum evra á árinu 2014, en það ár afskrifaði félagið rúmlega 6,7 milljónir evra, eða um 940 milljónir króna, af óefnislegum eignum og hafði það töluverð áhrif á niðurstöðu ársins. Tekjuvöxtur upp á 9% Tekjur af starfsemi síðasta árs námu ríflega 536 milljón evrum, rúmum 75 milljörðum króna, og juk- ust þær um 9% frá fyrra ári þegar þær námu 494 milljónum evra. Árni Geir Pálsson, sem tók við sem forstjóri Icelandic Group í októ- ber 2014, segir að bætta rekstrar- niðurstöðu megi að stærstum hluta þakka samstilltu átaki starfsfólks félagsins. „Fyrirtækið er á mörgum stöðum í mörgum löndum og okkur hefur tekist að stilla vel saman strengina, bæði hér heima og í ein- ingunum erlendis. Stærsti einstaki parturinn snýr einnig að því að við sameinuðum þrjú fyrirtæki í Bret- landi og hagræðing í tengslum við það hefur skilað sér vel og dregið verulega úr kostnaði við yfirstjórn. Um leið náum við að koma sterkari fram gagnvart stórum viðskiptavin- um okkar í Bretlandi.“ Kostnaðarverð seldra vara fór úr 432 milljónum evra í 466 milljónir evra á síðasta ári. Rekstrarkostnað- ur félagsins jókst lítillega milli ára og nam hann rúmum 59 milljónum evra eða 8,3 milljörðum króna en var tæpar 58 milljónir króna árið 2014. EBITDA-hagnaður reyndist 18,3 milljónir evra á árinu 2015, eða 2,6 milljarðar króna, í samanburði við 12,6 milljónir evra á árinu 2014. EBITDA-hlutfallið fór á sama tíma úr 2,7% í 3,4%. Traust eiginfjárstaða Eiginfjárhlutfall Icelandic í lok árs 2015 reyndist 47,3% og nam eig- ið fé þess 139,7 milljónum evra eða 19,6 milljörðum króna. Heildareign- ir jukust um rúm 11% og voru 295 milljónir evra. Skuldir félagsins námu 117,9 milljónum evra í lok árs en voru í upphafi þess 96 milljónir evra. Umskipti hjá Icelandic Group Morgunblaðið/Golli Uppgjör Icelandic er með 15% markaðshlutdeild á sínu sviði í Bretlandi. Eigendur Icelandic » Icelandic Group er að öllu leyti í eigu Framtakssjóðs Ís- lands (FSÍ). » Fyrirtækið komst í eigu FSÍ þegar sjóðurinn keypti eignar- haldsfélagið Vestia af Lands- bankanum í ágúst 2010. » FSÍ er í eigu 15 lífeyrissjóða, Landsbankans og trygginga- félagsins VÍS.  570 milljóna tapi snúið í ríflega 560 milljóna hagnað í fyrra Fjármálaeftirlitið telur að verklag Landsbankans við sölu á eignarhlut í Borgun hafi ekki að öllu leyti sam- ræmst eðlilegum og heilbrigðum við- skiptaháttum samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki. Athugun FME á viðskiptaháttum Landsbankans á sölu á 31,2% hlut í Borgun í nóvem- ber 2014 bendir til að verklagi hafi verið áfátt og það hafi ekki verið til þess fallið að skila bestri niðurstöðu fyrir bankann. FME hóf athugunina eftir að í ljós kom að Landsbankinn hafði ekki samið um tilkall til hlutdeildar í greiðslum til Borgunar í tengslum við kaup Visa Inc. á Visa Europe. Var markmið hennar að kanna hvort verklag bankans við framkvæmd söl- unnar samræmdist eðlilegum og heilbrigðum viðskiptaháttum og venjum á fjármálamarkaði. Í niðurstöðu FME segir meðal annars að gera verði sérstaklega ríka kröfu til fagmennsku og vand- virkni í vinnubrögðum þegar verið sé að selja eignir í eigu viðskiptabanka að stærstum hluta í eigu ríkisins, ekki í opnu söluferli og með einn til- boðsgjafa. Í því felist m.a. að leggja sérstakt mat á orðsporsáhættu sem getur fylgt því að hafa söluferlið ekki opið og kanna hvort sérfræðiaðstoð þriðja aðila og/eða sjálfstæð áreiðan- leikakönnun sé til þess fallin að veita bankanum aukinn aðgang að gögn- um og upplýsingum um félagið í söluferlinu. Í kjölfar niðurstöðu FME í gær tilkynnti Landsbankinn nýja stefnu og aðgerðaáætlun sem bankaráð hefur samþykkt til að efla stjórnar- hætti varðandi sölu eigna. Morgunblaðið/Kristinn Eignir Landsbankinn hyggst efla stjórnarhætti varðandi sölu eigna. Verklagi áfátt við Borgunarsölu  Samrýmist ekki eðlilegum viðskipta- háttum, segir FME Aflaverðmæti íslenskra skipa jókst um 11% á síðasta ári samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands. Alls nam aflaverðmætið 151 millj- arði króna á árinu 2015 og jókst um tæpa 15 milljarða á milli ára. Verðmæti þorksafla nam 61 millj- arði króna á síðasta ári og jókst um 15% á milli ára. Alls nam aflaverð- mæti botnfisks 103 milljörðum sem var tæplega 12% aukning. Verðmæti uppsjávarafla nam tæplega 35 millj- örðum, 3,6% meira en árið 2014, en aflaverðmæti loðnu jókst mjög á meðan verðmæti síldar dróst veru- lega saman. Mest aflaverðmæti fór beint til vinnslu innanlands eða fyrir 81,6 milljarða króna. Það var 21% aukn- ing á milli ára. Sjófryst var fyrir 43,9 milljarða en afli fyrir 20,4 milljarða fór á markað til innlendrar vinnslu. Sé litið til verðmætis afla eftir staðsetningu verkunarstaðar var það mest í Reykjavík eða 38 millj- arðar króna og jókst um 13% milli ára. Á Suðurnesjum var aflaverð- mætið ríflega 25 milljarðar króna á síðasta ári og á Austurlandi nam verðmæti aflans tæplega 24 millj- örðum. Þar jókst einnig aflaverð- mæti mest á milli ára eða um 27%. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Þorskar Verðmæti þorskafla nam 61 milljarði í fyrra og jókst um 15%. Verðmæti afla jókst um 11%  Heildarverðmæti 151 milljarður í fyrra HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI Hágæða vinnuföt í miklu úrvali Sérmerkjum fyrir fyrirtæki Verkfæri og festingar Mikið úrval af öryggisvörum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.