Morgunblaðið - 01.04.2016, Side 22

Morgunblaðið - 01.04.2016, Side 22
✝ Árni Ingólfs-son fæddist á Flugustöðum í Álftafirði 5. desem- ber 1935. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 21. mars 2016. Árni var sonur hjónanna Stefaníu Stefánsdóttur, f. 29. ágúst 1907, d. 2. mars 1992, og Ingólfs Árnasonar, f. 11. októ- ber 1895, d. 2. mars 1972. Hann var fjórði í röð sjö systkina en þau eru: Aðalbjörg, f. 1930, d. 1996, Anna, f. 1932, Svava, f. 1933, d. 1989, Sigurður, f. 1938, d. 2002, Flosi, f. 1940, d. 2016, og Eysteinn, f. 1945. Þann 11. ágúst 1962 kvæntist Árni Þóru Kristinsdóttur, f. 4. desember 1942, d. 23. maí 2015. Hún var dóttir hjónanna Guð- í Álftafirði við hefðbundin bú- skaparstörf en sem ungur mað- ur fór hann að starfa við brúar- vinnu og smíðar í sveitinni sinni og nærliggjandi sveitum. Hann fluttist til Reykjavíkur 1958 og fór að starfa við smíðar, lauk sveinsprófi í húsasmíði árið 1964 og meistaraprófi 1968. Hann starfaði við húsasmíðar allan sinn starfsaldur uns hann lét af störfum árið 2003. Árni kynntist Þóru árið 1960 og hófu þau búskap nýgift árið 1962 í Grundargerði og síðar á Háaleitisbraut. Eftir fæðingu barna þeirra fluttu þau í Eyja- bakka 10 en byggðu sér síðan hús í Grjótaseli 17 og bjuggu þar í 21 ár. Árið 1998 minnkuðu þau við sig og fluttu í Rauða- gerði 10 og síðar í Ársali 1 í Kópavogi. Árni seldi síðan Ár- salina í vetur og afhenti íbúðina og flutti í Boðaþing 24 nokkr- um dögum fyrir andlát sitt. Árni verður jarðsunginn frá Seljakirkju í dag, 1. apríl 2016, og hefst athöfnin kl. 15. rúnar Þórð- ardóttur, f. 27. mars 1921, d. 17. ágúst 2013, og Kristins Níls Guð- mundssonar, f. 7. nóvember 1909, d. 13. október 1972. Systur Þóru eru Guðrún, f. 1948, og Erna, f. 1962. Börn Árna og Þóru eru: 1.) Ing- ólfur, f. 10. júlí 1966, sambýlis- kona Guðbjörg Lilja Bergsdótt- ir, f. 14. október 1981. Synir Ingólfs eru: a) Ketill Árni, f. 19. apríl 1996, b) Tómas Kristinn, f. 20. janúar 1998, og c) Hinrik Ari, f. 29. júní 2001. Sonur Guð- bjargar Lilju er Anton Snær Guðjónsson, f. 25. mars 2002. 2.) Kristrún, f. 10. október 1967. Árni ólst upp á Flugustöðum Elsku pabbi minn kvaddi okk- ur snögglega, þetta var svo óvænt og aðeins tæpum 10 mánuðum á eftir mömmu, lífsförunaut sínum til 55 ára sem hann saknaði svo sárt. Ég hugga mig þó við að for- eldrar mínir séu nú saman á ný og er þakklát að pabbi hafi ekki þurft að þjást og fékk að fara svona fljótt fyrst ástand hans var alvar- legt. Pabbi var einstaklega góð- hjartaður, rólegur og yfirvegaður, jarðbundinn en gat verið fastur á sínu. Hann var sveitastrákur sem elskaði sveitina sína Álftafjörð og æskuheimilið Flugustaði. Hann var einstaklega góður smiður, vandvirkur og útsjónarsamur og hefur átt ansi mörg handtök í gegnum tíðina á mínu heimili. Þegar eitthvað bilaði hjá mér hringdi ég í pabba og sagði að nú værum „við“ í vanda. Hann var alltaf fljótur að bregðast við og aðstoða stelpuna sína. Ég datt svo sannarlega í lukku- pottinn þegar mér var úthlutað foreldrum, saman bjuggu þau okkur systkinunum hlýtt og öruggt umhverfi og vildu allt fyrir okkur gera. Bróðursynir mínir þrír veittu foreldrum mínum ómælda gleði, þau nutu þess að hafa þá hjá sér og stjana við þá. Það var pabba mikils virði að hafa þá og bróður minn í kringum sig eftir að mamma lést síðasta vor. Elsku drengirnir hafa því misst mikið síðasta árið en hafa staðið sig eins og hetjur. Það var einstaklega gaman að fara með pabba austur á æsku- slóðirnar og það styrkti feðgina- bönd okkur enn frekar þegar við fórum nokkur skipti bara tvö. Þá fórum við að vori í lok sauðburðar á Flugustöðum og nutum þess að reyna að hjálpa til við að merkja lömb og keyra fé inn í dal. Í sept- ember sl. drifum við okkur austur og áttum góðar stundir á Flugu- stöðum og í Júllatúni með bræðr- um pabba og þeirra konum. Það var ákveðin hvíld eftir erfitt ár vegna veikinda og andláts mömmu. Síðasta ferð okkar pabba saman í Álftafjörðinn var í janúar sl. til að fylgja Flosa, bróð- ur hans, til grafar og voru það honum þung spor. Ekki hvarflaði að manni þá að svona stutt yrði milli þeirra bræðra en það er ákveðin huggun í því að þarna hitti hann marga ættingja og gamla sveitunga sem hann hafði ekki séð lengi, sem er dýrmætt núna. Síðustu vikur voru annasamar, pabbi var búinn að selja íbúðina í Ársölum og leigja sér fallega þjón- ustu- og öryggisíbúð í Boðaþingi. Þar ætlaði hann að njóta þess starfs og þjónustu sem í boði er í þjónustumiðstöðinni. Hann flutti í byrjun mars en eyddi dögunum í Ársölum að pakka og þrífa ásamt góðum hópi fólks og afhenti íbúð- ina að kvöldi 17. mars. Að kvöldi næsta dags veiktist hann og lést rúmum tveimur sólarhringum síð- ar. Eftir stöndum við dofin og í áfalli en við eigum góða að og hafa systur mömmu og þeirra fjölskyld- ur verið okkur ómetanleg hjálp á þessum erfiðu stundum sem og oft áður. Ekkert getur búið mann undir að missa helstu stoðir lífs síns með svona stuttu millibili, pabba, mömmu og ömmu Dúnu en á að- eins rúmum tveimur og hálfu ári eru þau öll farin. En ég trúi því að þau vaki yfir okkur og sendi okk- ur styrk. Elsku hjartans pabbi minn, hafðu þökk fyrir allt og allt. Þín dóttir, Kristrún. Elsku pabbi. Nú hefur þú kvatt þetta líf svo skömmu eftir að mamma dó. Þú hefur á þeim stutta tíma verið ótrúlega sterkur og sýnt svo um munaði hvað þú elskaðir mömmu mikið. Allar pæl- ingarnar í því hvernig leiðið ætti að vera og blómin og svo allir göngutúrarnir sem þú fórst í í sumar að vökva og dytta að leið- inu. Þú hefur líka verið ótrúlega sterkur í þínum veikindum í 18 ár og tekið þeim af algjöru æðru- leysi. Þú hefur sigrast á tveimur krabbameinum og svo ofan á það veikindum ömmu og mömmu. Ég veit ekki hvar ég á að byrja og gat aldrei þakkað þér að fullu fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig. Þú varst náttúrlega ótrúleg- ur þegar þú varst að hjálpa mér að byggja í Tunguásnum. Komst þar á hverjum degi þegar þú hafð- ir heilsu til. Síðan veittuð þið mér húsaskjól þegar ég skildi og svo fékk Ketill að fylgja með þegar hann fór í Versló. Hann fékk svo að vera hjá ykkur þegar ég flutti til Vestmannaeyja. Svo veiktist mamma og ég kom til baka en þá bættust bara hinir tveir gaurarnir við. Við höfum haft þau forréttindi að fá að vera hjá ykkur allan þennan tíma. Ég vona í hjarta mínu og trúi því að þið hafið haft ánægju af því líka. Það er margs að minnast frá æskunni en helst eru það náttúr- lega ferðirnar austur í sveitina þína, Álftafjörðinn, sem standa upp úr. Þá var oft gist í tjaldi ein- hvers staðar á leiðinni úti í nátt- úrunni við lítinn læk. Þú varst nú samt oft orðinn ansi pirraður á okkur systkinum fyrir að muna ekki hvað fjöllin heita á leiðinni en ég man núna alltaf hvar Lóma- gnúpur er. Ég man ekki mikið eft- ir árunum sem þú fórst og vannst á Grænlandi en man þó eftir namminu sem ég fékk þegar þú komst til baka enda bara fimm ára. En það var oft talað um þetta ár í fjölskyldunni … þ.e. t.d. þetta eða hitt gerðist árið eftir eða áður en Árni var á Grænlandi svipað og við kristnir menn notum fyrir og eftir Krist. Ég og strákarnir mínir eigum eftir að sakna þín mjög mikið. Takk fyrir allt og allt, þinn son- ur, Ingólfur Árnason. Ég fékk að verja meiri tíma með afa en flest barnabörn. Ég bjó hjá honum og ömmu í þrjú ár og eftir að amma dó fyrir tæpu ári bjó ég áfram hjá afa. Það var gott að búa með ömmu og afa í Ársöl- um og afar erfitt að kveðja þau bæði á jafn stuttum tíma. Afi var nýbúinn að flytja í nýja íbúð þegar hann veiktist skyndilega. Aðeins tveimur sólarhringum seinna kvöddum við fjölskyldan hann að- faranótt mánudags. Það er erfitt að takast á við svo óvænt brott- hvarf úr lífi okkar. Ég held að ekkert okkar hafi grunað á sunnu- deginum að við ættum aðeins fá- einar klukkustundir eftir með afa. Síðasta ár var afa erfitt. Fyrst missti hann ömmu og svo yngsta bróður sinn, Flosa, fyrir stuttu, bæði dóu þau úr krabbameini. Afi bar alltaf höfuðið hátt en hann saknaði ömmu innilega. Hann sá vel um leiðið hennar og tók nánast daglega göngutúra að heimsækja hana. Afi mætti þessu sorgarári af æðruleysi og svo fór alveg fram að síðustu stundu. Takk fyrir þann kærleika og hlýju sem þú sýndir mér, það ör- læti og þolinmæði og að leyfa mér að búa hjá ykkur í þessi ár. Það var alltaf gott að geta komið heim til ykkar ömmu, ég á eftir að sakna þess sárt. Ketill Árni. Árni mágur er búinn að vera lengur en ég í fjölskyldunni. Árið sem ég fæddist kvæntist Árni henni Þóru systur. Þetta er sér- stakt en vegna aldursmunar á mér og Þóru systur, sem eru 20 ár, hefðu þau getað verið foreldr- ar mínir. Þegar ég er síðan 10 ára gömul deyr pabbi en þá umvöfðu Þóra og Árni okkur. Oft tóku þau mig með í ferðalögin austur á æskuslóðirnar við Álftafjörðinn. Þar voru skyldmennin heimsótt og finnst mér nú sem þau tilheyri mér líka. Þegar Gunna systir mörgum árum seinna var eitthvað að ýja að því að ég hefði verið svo mikil frekja og erfiður krakki sagði Árni að ég hefði alltaf verið svo góð og yndisleg. Ég veit nú ekki alveg með það. Árni hefur verið mér og mínum svo góður og um- hyggjusamur að ég á erfitt með að koma því í orð hversu vænt mér þótti um hann. Ég fór oft með þeim Þóru, Árna, Ingólfi og Kristrúnu í önnur ferðalög en bara austur. Þvæld- umst hingað og þangað og áttum dýrmæta tíma saman á sumrin, t.d. í sumarbústöðum með allri fjölskyldunni í Munaðarnesi, Apa- vatni og síðar á Stóra-Hofi. Þá var spilað og leikið frá morgni til kvölds. Oftast mættu allir og var þá þröng á þingi. Mamma hafði ofurtrú á Árna. Sem dæmi er enn hlegið að því í fjölskyldunni þegar mamma flutti í Dalselið en þá var Elías minn kominn til sögunnar og mældi fyr- ir hana hvort ísskápurinn myndi komast fyrir í innréttingunni. Sagði hann henni að hann passaði ekki, það væri of þröngt. Mamma svaraði þá: „Já, já – við skulum nú láta hann Árna mæla þetta.“ Eins og opið stækkaði eitthvað við það. Hún gat hreinlega lagst í rúmið ef ég var að þrasa við Árna og henni fannst ekki fyndið þegar ég sagði að þetta væri Álftafjarðar-þver- móðskan. Árni var listasmiður, frá því ég man eftir mér hefur Árni alltaf lagað allt. Ef eitthvað bilaði voru dætur mínar ekki gamlar þegar þær sögðu Árni lagar. Eftir að hann hætti að vinna innréttaði hann allan kjallarann hjá okkur Elíasi, smíðaði skápa, skrifborð og kojur. Hann var ótrúlega útsjónarsamur og hver hlutur átti sinn stað. Hann var nýtinn á efni og fleygði helst ekki nothæfu timbri eða plötum sem gætu nýst einhverjum einhvern tímann seinna enda var bílskúrinn yfirfullur af smíðaefni. En hann var meistari í að koma hlutum þannig fyrir að auðvelt væri að nálgast þá aftur. Síðastliðið ár var Árna erfitt vegna veikinda og andláts Þóru og síðar Flosa bróður hans. Að lokum vil ég segja: Takk, elsku Árni, fyrir að gera æsku mín svona skemmtilega. Takk fyrir að reynast mömmu svona vel. Takk fyrir umhyggju þína fyrir fjölskyldunni minni. Takk fyrir elsku þína til Kolfinnu og Siggu. Takk fyrir allar skemmtilegu stundirnar. Takk fyrir góðu fjölskylduna þína í Álftafirði. Takk fyrir alla ást þína og hlýju. Elsku Ingólfur, Kristrún, Ket- ill, Tómas og Hinrik, söknuðurinn er sár en minning um góðan mann mun lifa. Blessuð sé minning Árna mágs. Erna Kristinsdóttir. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð, hjartans þakkir fyrir liðna tíð. Lifðu sæll á ljóssins friðarströnd, leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir.) Árni mágur minn hefur nú kvatt okkur hér á jörðu og er kominn í Sumarlandið góða að hitta stóru ástina sína, hana Þóru, systur mína, en þau voru aðeins aðskilin í tíu mánuði, þessi ein- staklega samrýndu hjón. Árni kom inn í okkar sam- heldnu fjölskyldu upp úr 1960 þegar ég var 12 ára en þá var Þóra systir að verða 18 ára gömul og loksins búin að finna sér fal- legan kærasta af Austurlandi, og ég sem hélt hún myndi aldrei ganga út eins gömul og hún var orðin. Betri mann var vart hægt að hugsa sér, hann var ljúfur og góður og alveg einstakt prúð- menni. Árni ræktaði svo sannar- lega garðinn sinn í orðsins fyllstu merkingu. Hann elskaði að dunda í garðinum í Grjótaselinu enda fá- ir garðar í hverfinu fallegri en hans. Hann var fjölskyldumaður af lífi og sál og fannst fátt skemmtilegra en hitta fólkið sitt. Þegar við fólkið „hennar ömmu Dúnu“ hittumst þá skemmti hann sér manna best þó stundum væri ansi hávaðasamt því allir þurftu að koma sínum skoðunum á fram- færi og auðvitað hann líka. Árni elskaði börnin sín og var prúðu afadrengjunum sínum hinn besti afi, einnig reyndist hann for- eldrum mínum yndislegur tengdasonur og mér afar góður mágur. Þegar faðir minn lést og mamma varð ekkja með Ernu litlu systur okkar 10 ára gamla, þá reyndist hann mömmu sem besti sonur. Mamma kunni svo vel að meta Árna sinn og var það gagn- kvæmt því hann bauð henni að búa í aukaíbúðinni í Grjótaselinu hjá þeim Þóru þegar Erna litla flutti að heiman. Þar leið mömmu einstaklega vel, enda sagði og gerði Árni „allt rétt“ og þótti henni miður og setti jafnvel ofan í við okkur ef við mótmæltum því sem hann sagði. Árni reyndist okkur systrum eins og besti faðir. Hann leiddi mig upp að altarinu þegar ég gift- ist Jóa mínum, hann var strákun- um mínum afar góður og alltaf tilbúinn að rétta þeim hjálpar- hönd þegar á þurfti að halda. Ömmustelpunum mínum var hann sem besti afi og minnumst við hans öll með miklu þakklæti og virðingu. Hann Árni minn var sveitapiltur af lífi og sál, unni sínu landi og virti það sem landið gaf. Hann var heiðarlegur og réttsýnn en hafði engu að síður sterkar skoðanir á landi og þjóð. Hann Árni minn var búinn að selja fallegu íbúðina þeirra Þóru í Ársölum þar sem við fjölskyldan höfum átt yndislegar stundir sam- an og var um það bil að flytja í glæsilega þjónustuíbúð í Boða- þingi þegar hann lést svo skyndi- lega. Hans er sárt saknað af öllu fólkinu hennar ömmu Dúnu og vil ég þakka honum af öllu hjarta fyr- ir samfylgdina – það var gott að hafa Árna með sér á lífsins göngu í ríflega hálfa öld. Svo, vinur kæri, vertu sæll, nú vegir skilja að sinni. Þín gæta máttug verndarvöld á vegferð nýrri þinni. Með heitu, bljúgu þeli þér ég þakka kynninguna, um göfugan og góðan dreng ég geymi minninguna. (Höf: ókunnugur) Guðrún Guðmunda (Gunna mágkona). Árni Ingólfsson 22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. APRÍL 2016 ✝ María Trausta-dóttir fæddist 19. júlí 1963 í Reykjavík. María lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 21. mars 2016. Foreldrar Maríu eru Trausti Þor- láksson, fæddur 30. mars 1938, og Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir, fædd 21. júní 1942. Systkini Maríu eru Magnús Traustason, fæddur 28. ágúst 1959, Guðlaug Traustadóttir, fædd 6. desember 1960, og Þorlákur Trausta- son, fæddur 26. janúar 1972. María eignaðist fjögur börn, þau Trausta Þrastar- son, fæddur 20. janúar 1981, Viðar Þrastarson, fædd- ur 3. júní 1983, Evu Sólveigu Þrastardóttur, fædd 3. febrúar 1985, og Elvar Þór Gunn- arsson, fæddur 28. september 1993. Útför Maríu fer fram frá Fossvogskapellu í dag, 1. apríl 2016, klukkan 13. Elsku María systir, nú þegar Drottinn hefur kallað þig til sín og þú kvatt okkur lít ég yfir farinn veg. Við áttum margar góðar stundir og elskulegar. Þegar við vorum krakkar varstu hrókur alls fagnaðar og alltaf með létta lund og lífsglöð. Ég veit að lífið hefur ekki verið dans á rósum fyrir þig og oftar en ekki mjög erfitt, svo erfitt að það hefði bugað venjulega manneskju. Alltaf stóðstu upp aft- ur með lífsviljann og kátínuna að leiðarljósi. Þú stappaðir stáli í aðra og varst alltaf tilbúin að rétta hjálparhönd, hvernig sem viðraði hjá þér, þú varst alltaf mætt til að hugga og gefa af þér. Ég veit að þú hefur alltaf verið mjög trúuð og við áttum mörg samtöl um Drottin, trúna og gjöf hans til okkar. Við vorum þess fullviss að við myndum upp rísa og lifa í ljósinu við sæti Guðs. María mín, þegar þú veiktist varstu ekki að ásaka hann eða nokkurn annan. Þú tókst veik- indum þínum af ótrúlegum dugn- aði og seiglu, sama hvað þú varðst mikið veik gastu hlegið og gert að gamni þínu. Svo þessi ótrúlegi kraftur sem þú hafðir til að velja vers og sálma við kistu- lagningu og jarðarför þína – því- lík kjarnakona sem þú varst, María mín. Í kistulagningunni las prestur- inn vers sem þú valdir og bað Drottin í seinasta skiptið að fyr- irgefa þér og létta þér förina til hans. Mig langaði að færa þér tvö ljóð sem ég veit að þú elskaðir. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgrímur Pétursson) Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín, svo blundi rótt. (Matthías Jochumsson) Elsku María mín, nú kveð ég þig. Við sjáumst síðar við sæti Drottins og þá leikum við okkur saman eins og forðum. Elska þig, systir. Magnús (Maggi bróðir). Bilið milli lífs og dauða er stundum stutt. María hafði glímt við erfið veikindi í langan tíma en fráfall hennar var mikið áfall því enginn bjóst við að hún myndi kveðja svona skyndilega. Það verður ekki fyllt í hennar skarð en minning um góða systur og mág- konu lifir með okkur áfram. María var mjög fjörugur krakki. Hún var mikill dýravinur María Traustadóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og bróðir, ÓLAFUR GUNNARSSON, Lundargötu 12, Akureyri, andaðist að morgni 24. mars í faðmi fjölskyldunnar. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 7. apríl klukkan 13.30. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Heimahlynningu á Akureyri. Sendum þeim hjartans þakkir fyrir ómetanlega hjálp og stuðning í veikindum hans. . Kristín Antonsdóttir, Rósa Björg Hema Ólafsdóttir, Bragi Magnússon, Anton Gunnar Ólafsson, systkini og fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.