Morgunblaðið - 01.04.2016, Side 28
28 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. APRÍL 2016
Víkverji verður seint talinn meðvildarvinum sjónvarps enda hef-
ur hann gefið sjónvarpi frí að mestu
það sem af er ári. Fyrir vikið hefur
hann misst af hverju stórvirkinu á
eftir öðru, að sögn sjónvarpsfíkla, en
ekki þýðir fyrir hann að byrja að
horfa á framhaldsþætti vegna þess
að hann nær aldrei að sjá þá alla og
kemst því aldrei inn í söguþráðinn.
x x x
Sænski spennusagnahöfundurinnHenning Mankell skrifaði marg-
ar góðar bækur um lögregluforingj-
ann Kurt Wallander og mynd eftir
einni þeirra var á dagskrá danska
sjónvarpsins DR1 í fyrrakvöld. Vík-
verji ákvað að gefa sér tíma til þess
að horfa á spennumyndina og gerði
tilheyrandi ráðstafanir. Byrjaði á því
að fara út með hundinn svo hann
myndi ekki trufla þegar verst stæði
á, lagaði sænskt te til þess að tengj-
ast enn betur sögusviðinu og braut
niður páskaegg, sem hafði óvart
gleymst í hamaganginum á páska-
dag.
x x x
Súkkulaðið og teið kláraðist áðuren myndin hófst og dreifði því
ekki huganum og hundurinn svaf
vært eftir göngutúrinn. Eins og
gengur í spennumyndum var fólki
rutt úr vegi og síðan kom til kasta
Wallanders. Þegar lítið var eftir og
spennan í hámarki mátti heyra
saumnál detta. Víkverji heyrði fyrst
eitt plúmm. Svo annað. Það þriðja.
Taktfast og öruggt. Þegar hraði
plúmmanna óx stóðst Víkverji ekki
mátið og gekk á hljóðið í rökkvaðri
stofunni. Það er ofsagt að hann hafi
lent í sturtu en það dropaði ört úr
loftinu og fimm handklæði og tvær
stórar skálar þurfti til þess að þurrka
gólfið og taka við gruggugu vatninu.
x x x
Íbúarnir á efri hæðinni hringdu þeg-ar í tryggingafélag sitt og fljótlega
var starfsmaður Varðar kominn til
þess að meta ástandið og fyrirbyggja
meira tjón. Víkverji fékk líka góð ráð
hjá sínum manni í TM og í bítið í
gærmorgun voru viðgerðarmenn
mættir. Vel að verki staðið en Vík-
verji missti af endi myndarinnar og
sér ekki fram á að horfa á sjónvarp í
bráð. víkverji@mbl.is
Víkverji Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Einhver undirmál eru í gangi, sem
beinast gegn starfi þínu. Best er að ganga
hreint til verks og láta engan velkjast í vafa
um fyrirætlanir þínar.
20. apríl - 20. maí
Naut Þér finnst þú eiga gott skilið fyrir verk
þín. Vertu ekki með áhyggjur – fólk tekur þér
bara eins og þú ert. Gakktu glaður til verks.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Vertu þolinmóður, að öðrum kosti
getur þú skapað meiri ringulreið en þú ræður
við. Taktu greind fram yfir reynslu ef þú vilt
ráða fólk eða fara á stefnumót.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú hefur nóg á þinni könnu þessa
dagana og skalt ekki taka meira að þér í fé-
lagsstarfinu en þú ert fær um að standa við.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú er svoddan snillingur í að skapa þér
þína eigin velgengni að þú gleymir að stund-
um þarftu þess ekki. Ef þér mistekst geturðu
huggað þig við það að þú hafir að minnsta
kosti reynt.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þetta er ekki rétti tíminn til að byrja á
einhverju nýju. Nálgun þín við þetta framandi
ævintýri er hálfgerð klikkun.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það getur reynst hollt að draga sig að-
eins í hlé frá skarkala lífsins. Eigi allir hags-
muna að gæta væri viturlegast fá hlutlausan
aðila til að leysa málið.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú hefur oft skipt um skoðanir
yfir árin, en sumum hugmyndum viltu alls
ekki láta af. Vegna hæfileikans til þess að
nýta sér það sem hún hefur, ber hún meira úr
býtum en þú.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Hættu við þessa áætlun sem
veldur þér streitu og byrjaðu upp á nýtt.
Taktu þátt í samræðunum því þú getur lært
ýmislegt sem þú átt eftir að meta mikils.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Samskiptamálin eru á oddinum og
allir vilja fá sneið af þeirri verðbréfaköku.
Njóttu athyglinnar. Og þú sem elskar þá!
Óreiða er svo skemmtileg! Haltu í skítinn sem
þú elskar mest.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Skipuleggðu tíma þinn svo að þú
komir sem mestu í verk á sem skemmstum
tíma. Mundu að börn hugsa öðruvísi en full-
orðnir.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Fegurðarskyn þitt verður óvenju
næmt næsta mánuðinn. Margt er sagt í öf-
und og afbrýðisemi en þú skalt láta vera að
detta niður á það plan.
Því að hjá þér er uppspretta lífsins, í
þínu ljósi sjáum vér ljós.
Sálm. 36:10
Fía á Sandi segist yrkja þessa vísu áhverju vori, – og er gaman að þvi!
Vorið góða grátt og hvítt
góð er blessuð tíðin.
Allt er nú senn orðið nýtt
einkanlega hríðin.
Á mánudaginn skrifaði Ólafur Stef-
ánsson að hún fyndist ekki í dag lykt-
in, – „ekki í þurrafrostinu og svagl-
andanum, en hún var komin fyrir
nokkrum dögum og spáði vori. Það
var ekki birkilykt eða asparilmur,
ekki einu sinni fnykur af haug á
frosnu túni, heldur hin óbrigðula ís-
úra lykt sem berst með austanvind-
inum frá mýrarflæmunum, þegar
snjórinn gufar upp í þey og vet-
urstaðið gas losnar úr efstu lögum
jarðvegsins. Þá getur vorið komið
hvenær sem er.
Við hálfopinn glugga með hönd undir kinn,
hugsi, en enn þó á sporinu,
í leiðslu og vongleði lyktina finn,
sem leggur af ókomnu vorinu.“
Þessar hugleiðingar kalla fram vísu
úr Alþingisrímum:
Út við grænan Austurvöll
sem angar lengi á vorin
stendur væn og vegleg höll
vonin mænir þangað öll.
Hér er Ólafur Stefánsson í heim-
spekilegum hugleiðingum:
Hann fæddist, óx og eignaðist konu,
óðalsjörð og nokkra sonu.
En lítið entist það lífsins bras,
hann laut sem aðrir fljótt í gras.
Og vitnar í opinberunarbókina:
Um miðnæturstund sá ég mána í
skýjum,
það merlaði hrím við svörð.
Og hugsun mín leitaði að himni nýjum,
himni nýjum og jörð
Ólafur heldur síðan áfram:
Ég velti upp vonlausri byrði,
og vó það í hendi mér,
í lokin hvað um mig yrði,
að endaðri vistinni hér.
Sr. Skírnir Garðarsson sagðist um
daginn hafa farið til læknisins síns,
hans Kára, vegna eymsla og greind-
ist með sýkingu í nára. – „Þetta
gerðist hratt og þetta er sá nárinn
sem er normalt að norðanverðu í
hjónarúminu, svo það hlýtur að vera
útnárinn, ekki suðurnárinn.
Altsvo skarpgreindur með
slæmsku í útnára.
Ég upplifði óþekktan fjára,
og óðara dreif mig til Kára,
hann mig skoðaði’ að bragði
og við skarpgreindan sagði
„þetta’ er sclerosis prior í nára.“
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Vorið góða og hin
óbrigðula ísúra lykt
Í klípu
„KANNSKI ER ÞETTA REYNDAR EKKI
BARA ENN EITT KVÍÐAKASTIÐ.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„VISSIRÐU AÐ VIÐ HÖFUM VERIÐ GIFT Í
ÞRJÁR HEILAR VIKUR OG HVORUGT OKKAR
HEFUR EINU SINNI MINNST Á SKILNAÐ?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar uppáhalds-
frændinn kemur í
heimsókn.
ÉG ÆTTI AÐ HÆGJA Á MÉR
OG TAKA LÍFINU RÓLEGA
KANNSKI
SEINNA
ÞÚ
GETUR ENN
BJARGAÐ
ÞÉR!!
SEGÐU MÉR
HVERNIG! BEYGÐU ÞIG!
1. Notandi þarf að vera með fulla áskrift og
skráður á mbl.is
2. Það er gert á forsíðu mbl.is, efst í vinstra
horninu (Innskráning · nýskráning)
3. Þú færð Morgunblaðs-appið á App Store og
Play Store
4. Kennitala er skráð sem notandanafn
5. Lykilorð er það sama og á mbl.is
SVONA SKRÁIR ÞÚ ÞIG
Ef þú þarft frekari aðstoð hafðu þá samband
við okkur í síma 569 1100
VIÐBÓT FYRIR ÁSKRIFENDUR
v
Fáðu Moggann þinn hvar sem er og hvenær sem er
Nú fylgir Morgunblaðið í rafrænni útgáfu fyrir spjaldtölvur og snjallsíma
MOGGINN
ÁSKRIFENDUR ATHUGIÐ
*RAFRÆN ÚTGÁFA MORGUNBLAÐSINS, E-MOGGINN, FÆST BÆÐI FYRIR
IPAD OG ANDROID 2.2. OG NÝRRI ÚTGÁFUR.
**GILDIR FYRIR ÞÁ SEM ERU MEÐ FULLA ÁSKRIFT.
*
**